Tíminn - 23.06.1971, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 23. júní 1971
3
. i
TÍMINN
Verhlaim Skákhinqs
íslands afhent
SKEMMTIKVÖLD Á HÓTEL SÖGU
Það var orðin hefð hér í Reykja-
vík, í eina tíð, að líta inn hjá
Bláu Stjörnunni, þegar kom fram á
vorið, enda var Reykvíkingum
mikil eftirsjá í henni, þegar Har-
aldur Á. Sigurðsson og hans fólk
hætti starfsemi sinni.
Þess vegna var það mönnum mik
ið gleðiefni, þegar forráðamenn
Hótel Sögu stofnuðu til skemmti-
kvölda þeirra, sem nú hafa notið
sívaxandi vinsælda í höfuðstaðn-
um í rösklega tvö ár.
Á skemmtikvöldum þessum hafa
komið fram margir landskunnir
skemmtikraftar, eins og spékarlarn
ir Jón Gunnlaugsson, Karl Einars-
son, Ómar Ragnarsson og Svavar
Gests, svo og Sirrý Geirs, Kristín
Ólafsdóttir, Ríó Tríóið og Þrjú á
palli, svo eitthvað sé nefnt. Þegar
þessu ágætu fólki sleppir, þá er
ótalinn hlutur hljómsveitar Ragn-
ars Bjarnasonar, sem saman stend
ur af mönnum spés auk hinnar sjálf
sögðu spilamennsku.
Hafa vinsældir þessarar hljóm-
sveitar verið það mikil, að sótzt
hefur verið eftir henni allt frá
Valaskjálf til Vancouver.
Um þessar mundir eru síðustu
skemmtikvöldin að sinni að Hótel
Sögu, þar sem hljómsveitarmenn
fara bráðlega í sumarleyfi.
Fólk ætti þess vegna að bregða
sér á Sögu eitt föstudags- eða
sunnudagskvöld, þar eð í kvæðinu
stendur, að hláturinn lengi lífið.
Doktorsvörn
við heim-
spekideild
n.k. laugardag
Laugardaginn 26. júní nd£.-.ífeE!r
fram doktorsvörn við heimspeki-
deild Háskóla íslands. Björn Þor-
steinsson, cand. mag. mun verja
rit sitt „Enska öldin“ fyrir doktors
nafnbót í heimspeki. Forseti heim
spekideildar, prófessor Þórhallur
Vilmundarson, stýrir athöfninni,
en andmælendur af hálfu deild-
arinnar verða prófessor dr. Magn-
ús Már Lárusson og Lars Hamre,
prófessor við Oslóarháskóla.
Doktorsvörnin fer fram í hátíða
sal Háskólans og hefst kl. 2 e.h.
(Frá Háskóla íslands)
MÝRDAL A LAUGARDAGINN
Kappreiðar hestamannafélagsins
Sindra í Mýrdal og undir Eyja-
fjöllum, fara fram á Sindravelli,
laugardaginn 3. júlí n.k. og hefjast
með hópferð félagsmanna kl.
14,00.
Dagskrá: 1) Gæðingadómar með
nýju sniði. í ráði er að dómarar
verði fimm og dæmi hestana með
þremur einkunnum. a) Vilji og
mýKt,t(ffiW cjppWía.pna ^tjgi á bak
.deginum áður og gefi þá einkunn)
b) c) Ganghæfni.
— Þessar tvær-einkunnir séu gefn
ar þannig að dómarar gefa hver
um sig einkunn jafnóðum. Hæsta
og lægsta einkunn fellur úr.
2) Kappreiðar. a) 250 m. skeið.
1. verðlaun kr. 4000,00 (Lágm.-
tími). b) 250 m. folahlaup. 1. verð
laun kr. 1000,00. c) 300 m. stökk.
1. verðlaun kr. 2000,00. d) 800 m.
stökk. 1. verðlaun kr. 4000,00. —
c) 800 m. brokk. 1. verðl. verð-
launapeningur.
3) Naglaboðreið.
Lokaskráning sýningar- og kapp
reiðahesta fer fram á Sindravelli
föstudaginn 2. júlí að kvöldi. Að
öðrum kosti tilkynnist þátttaka
sr. Halldóri Gunnarssyni, Holti,
fyrir þann tíma.
Að kappreiðum loknum á laug-
ardagskvöldið dunar dansinn í
Leikskálum í Vík, við undirleik
Þorsteins Guðmundssonar og fé-
laga hans.
Aðalfundur
Framsóknar f élags
Grindavíkur
Nýlega var haldinn aðalfundur
Framsóknarfélags Grindavíkur. í
stjórn voru kosnir: Formaður
Svavar Svavarsson, múrari, ritari
Halldór Ingvason, kennari, gjald-
keri Sigurður Sveinbjörnsson,
verzlunarmaður. Meðstjórnendur
voru kjörnir Willard Ólason, skip-
stjóri og Ólafur Sigurðsson, bif-
reiðarstjóri.
Hrönn Pétursdóttir, eiginkona Gunn-
ars Gunnarssonar, tók við verðlaun-
um manns síns, þar sem hann var
f jarverandi.
FB—Reykjavík, þriðjudag.
Verðlsunaafhending sigurvegara
á Skákþingi íslands fór fram á
Hótel Loftleiðum á sunnudags-
kvöldið, en eins og fram hefur
komið í fréttum fór Skákþing is-
lands fram um páskana í Sjómanna
skólanum. íslandsmeistari í skák
1971 varð Jón Kristinsson. Afhenti
Guðmundur G. Þórarinsson forseti
Skáksambands íslands honum verð
launin, en 1. verðlaun voru 30
þúsund krónur í peningum, áritað
silfurfat, sem unnið var til eignar
og auk þess farandgripur, sem
Borgarsmiðjan í Kópavogi hefur
gefið.
Að þessu sinni voru í fyrsta sinn
veitt svokölluð fegurðarverðlaun.
Voru þau veitt fyrir fallegustu
skák mótsins. Hlaut þau Gunnar
Gunnarsson fyrir skák gegn Jóni
Briem. Verðlaun Gunnars voru
5000 krónur, og áritaður gripur til
eignar. Jafnframt fegurðarverð-
laununum hlaut Gunnar viðurkenn-
ingu fyrir að vera í 4. til 6. sæti á
mótinu.
Þá varð Friðrik Ólafsson hrað-
skákmeistari 1971. Verðlaun hans
voru 2000 krónur og áritaður silf-
urbakki til eignar.
Guðmundur G. Þórarinssan, forseti Skáksambands íslands, afhendir skák-
meistara íslands 1971, Jóni Kristinssyni, verðlaunin. ( Tímamyndir Gunnar)
KAPPREIÐAR SINDRA I
Friðrik Óiafsson tekur við verðlaun-
um sínum.
Fölsun Mbl.
i
Morgunblaðið var sæmilega
róiegt fyrst eftir kosningarnar,
en er nú óðum að færast í sinn
gamla ham aftur. Þannig er
það byrjað að snúa út úr og
falsa ummæli andstæðinganna
á fyrri vísu. í forustugrein
Mbl. í gær eru t.d. birt ef!;r-
greind ummæli úr grein, seiri
var í Tímanum síðastl. sunnu-
dag:
„Ef engin annarleg sjónar-
míð koma til sögu, ætti mál-
efnalegur ágreiningur ekki að
standa í vegi þess, að stjórnar-
andstöðuflokkarnir kæmu sér
saman um stjórnarmyndun. Ef
slík stjórnarmyndun tekst
ekki, stafar það af öðrum
ástæðum".
Þessi ummæli Tímans túlkar
Mbl. síðan á þá leið, að Tím-
inn hafi lagt blessun sína á
alla stefnuskrá Alþýðubanda-
lagsins.
Hið rétta er, að þessi um-
mæli Tímans eru slitin úr sam
hengi og þannig gefin alveg
ný merking. Ef ummæli Tím-
ans eru ekki slitin úr eðlilegu
samhengi, hljóða þau á þessa
leið:
„Ef engin annarleg sjónar-
mið koma til sögu, ætti mál-
efnalegur ágreiningur ekki að
standa í veg þess, að stjórnar-
andstöðuflokkarnir kæmu sér
saman um stjórnarmyndun. Ef
slík stjórnarmyndun mistekst
stafar það ag öðrum ástæðum.
ANNAÐ VERÐUR EKKI RÁÐ
IÐ AF MÁLFLUTNINGI
STJÓRNARANDSTÖÐU-
FLOKKANNA FVRIR KOSN-
INGAR.“
Með því að sleppa síðustu
setningunni, „Annað verður
ekki ráðið af málflutningi
stjórnarandstöðuflokkanna fyr-
ir kosningar", reynir Mbl.
að láta líta svo út, að Tíminn
hafi lagt blessun sína yfir alla
stcfnuskrá Alþýðubandalags-
ins!
í kosningabaráttu er það yfir
leitt þannig, að flokkar leggja
megináherzlu á viss mikilvæg
málefni, er mest þarfnast úr-
lausnar. Svo var einnig að
þessu sinni. Um slík málefni
voru stjórnarandstöðuflokkarn-
ir yfirleitt sammála í kosninga
baráttunni, þótt ágreiningur sé
um ýms framtíðarmarkmið,
sem minna eða ekkert var rætt
uin að þcssu sinni. Vitanlega
eru það málefnin, sem mest
áherzla var lögð á í kosninga-
baráttunni, er eiga að ráða
mestu um stiórnarmyndun, en
ekki hin, sem lágu að mestu
eða ölln í þagnargildi.
Komið ofndunum
Aiþf’ðiiblaðið segir í gær i
forustugrein, sem bað nefnir:
Kom'ð að efndunum:
„Stiórnavandstöðuflokkarnir
gengu að þessu <únni til þing-
kosninga sammála nm margvís
leg málefni — a.m.k. í orði.
Sam“iginlejra gáfu þeir þjóð-
inni ákveðin kosningaloforð.
Þeir lofuðu ákveðinni málsmeð
ferð í landhelgismálinu, sem
þeir sjálfir nefndu stærsta
sjálfstæðismál þjóðarinnar. og
liöfðu þar sameiginlega af-
Framhald á bls 1'