Fréttablaðið - 03.09.2002, Qupperneq 8
8 3. september 2002 ÞRIÐJUDAGUR
BÍLASALA Illa árar enn í bílasölu ef
marka má uppgjör Heklu á fyrri
helmingi ársins. Fyrirtækið tap-
aði 74 milljónum. Tap fyrir sama
tímabil í fyrra var 143 milljónir.
Bati varð á afkomunni milli fyrs-
ta og annars ársfjórðungs. Meira
en 50% samdráttur hefur orðið í
bílasölu frá árinu 2000. Sam-
dráttur fyrir fyrstu mánuði þessa
árs er 15%. Í tilkynningu félags-
ins kemur fram að markaðshlut-
deild fyrirtækisins hafi aukist á
tímabilinu um 3%. Markaðshlut-
deildin á fólksbílamarkaði er
23%. Mikill samdráttur er í sölu
þungavinnuvéla og er ekki búist
við breytingum á þeim markaði
fyrr en virkjana og stóriðjufram-
kvæmdir hefjast.
Fyrirtækið gerir ekki ráð fyr-
ir miklum breytingum á bíla-
markaði það sem af er ársins.
Hins vegar telja forsvarsmenn
fyrirtækisins að aukning verði í
sölu bíla á næsta ári. Framtíðar-
horfur séu góðar og bílamarkað-
urinn muni komast í eðlilegt horf
á næsta ári.
Enn samdráttur í bílasölu:
Þungavinnuvélar bíða virkjana
SAMDRÁTTUR
Samdráttur er ennþá í bíla-
sölu. Væntingar standa til
þess að sala nýrra bíla aukist
á næsta ári.
Öxnadalsheiði:
Tvær
skriður
féllu
SAMGÖNGUR Öxnadalsheiðin lokað-
ist um fjórar klukkustundir í fyrr-
inótt vegna skriðufalla. Féll skrið-
an á vestanverðri heiðinni um eitt-
leytið og þurfti að kalla til vega-
gerðarmenn frá Akureyri til að
hreinsa veginn. Brugðust þeir
skjótt við og var umferð komin á
aftur um fimmleytið í gærmorgun.
Að sögn lögrelgunnar á Akur-
eyri myndaðist nokkur bílaröð
beggja vegna skriðanna meðan
beðið væri eftir því að vegurinn
yrði ruddur.
WASHINGTON, LONDON, AP Colin
Powell, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, er ósammála Dick
Cheney, varaforseta Bandaríkj-
anna, um nauðsyn þess að ráðast
inn í Írak hið fyrsta.
Powell sagði í viðtali í Bret-
landi um helgina
að „fyrsta skrefið“
hljóti að vera að
senda vopnaeftir-
litsmenn Samein-
uðu þjóðanna aftur
inn í Írak og sjá
hverju þeir komast
að þar.
„Forsetinn hef-
ur tekið skýrt
fram að hann telji að vopnaeftir-
litsmennirnir eigi að snúa aftur,“
sagði Powell í viðtalinu, sem
breska sjónvarpsstöðin BBC
birti að hluta til á sunnudaginn.
Powell segir nauðsynlegt að
reyna þessa leið, jafnvel þótt
engin trygging sé fyrir því að
hún beri árangur.
Powell er þarna gjörsamlega á
öndverðum meiði við Cheney,
sem sagði í langri ræðu í síðustu
viku að hættulegt væri að bíða
öllu lengur með aðgerðir vegna
þess að Írak hafi þegar yfir gjör-
eyðingarvopnum að ráða.
Talsmaður George W. Bush
Bandaríkjaforseta, Scott McCl-
ellan, sagði í gær forsetann vera
sammála því að vopnaeftirlit sé
nauðsynlegt fyrsta skref í mál-
inu. Hins vegar sé engan veginn
víst að það dugi til.
Ágreiningurinn meðal banda-
rískra ráðamanna varðandi Írak
hefur tekið á sig ýmsar myndir
undanfarið. Málsmetandi flokks-
bræður þeirra Bush, Cheneys og
Powells hafa meðal annars varað
við því að láta til skarar skríða í
Írak án þess að hugleiða vel þær
hættur sem fylgja slíkri árás.
Chuck Hagel, repúblikani í ut-
anríkismálanefnd Bandaríkja-
þings, segir til dæmis ekkert
vafamál að Saddam Hussein sé
hættulegur jafnt Bandaríkjunum
sem og nágrannaríkjum Íraks.
Hins vegar geti reynst enn
hættulegra að gera innrás án til-
lits til aðstæðna. „Myndum við
valda frekara uppnámi í Mið-
Austurlöndum, Mið-Asíu, Suður-
Asíu?“ spurði Hagel. „Og auðvit-
að er ein stærsta spurningin hve
lengi bandaríski herinn þyrfti að
vera í Mið-Austurlöndum. Erum
við að tala um 250.000 hermenn?
Viljum við vera áfram í Bagdad
til að stjórna landinu þar, önnum
kafnir við að finna einhverja aðra
lausn?“
Bush á að flytja ræðu á als-
herjarþingi Sameinuðu þjóðanna
þann 12. september, daginn eftir
að Bandaríkjamenn minnast þess
að ár er liðið frá árásum hryðju-
verkamanna á New York og Was-
hington. Talið er víst að hann noti
það tækifæri til að færa rök fyr-
ir nauðsyn þess að grípa til að-
gerða gegn Írak.
Powell og Cheney
ósammála um Írak
Ágreiningur er meðal bandarískra ráðamanna um það, hversu brýnt sé
að ráðast á Írak. Powell vill að venju fara sér hægt, öfugt við Cheney
varaforseta.
RUMSFELD, POWELL, BUSH OG CHENEY
Á þessari tæplega ársgömlu mynd sjást æðstu yfirboðarar bandaríska hersins saman.
Þetta eru þeir Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra, Colin Powell utanríkisráðherra, Geor-
ge W. Bush forseti og Dick Cheney varaforseti. Ágreiningur hefur verið á milli þeirra um
fyrirhugaðar árásir á Írak.
Forsetinn hef-
ur tekið skýrt
fram að hann
telji að vopna-
eftirlitsmenn-
irnir eigi að
snúa aftur.
AP
/M
YN
D
JÓHANNESARBORG, AP „Látum ekki
blekkjast þegar við horfum á heið-
skíran himininn að allt sé í lagi.
Það er ekki rétt að allt sé í lagi,“
sagði Kofi Annan, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, í gær.
Hann var að ávarpa meira en
hundrað þjóðarleiðtoga á ráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna um
sjálfbæra þróun í Jóhannesar-
borg.
Hann hvatti allar þjóðir heims
til þess að vinna saman að því
verkefni að bæta hag fátækra og
koma um leið umhverfinu til
bjargar. Kostnaðurinn af því að
grípa ekki til afdráttarlausra að-
gerða verði alltof mikill.
„Hættum að vera í efnahags-
legri vörn og byrjum að sýna póli-
tískt hugrekki,“ sagði hann við
marga helstu leiðtoga heims.
Ráðstefnunni í Jóhannesarborg
á að ljúka á morgun. Henni á að
ljúka með því að samþykkt verður
metnaðarfull lokayfirlýsing um
framtíðarstefnu í baráttunni við
fátækt og hnignun umhverfis.
Samningaviðræður um inni-
hald þessarar lokayfirlýsingar
hafa gengið betur en horfur voru á
fyrir nokkrum dögum.
Kofi Annan á ráðstefnunni í Jóhannesarborg:
Hvetur þjóðarleiðtoga
til að sýna hugrekki
FRÁ RÁÐSTEFNUNNI Í
JÓHANNESARBORG
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, var
á meðal þeirra þjóðarleiðtoga sem hlýddu
á ræðu Kofi Annans í gær.
ORÐRÉTT
DAVÍÐ BRESNEV?
„Aðalritari ráðstjórn-
arinnar.“
Sverrir Hermannsson, for-
maður Frjálynda flokksins,
um forsætisráðherra Ís-
lands. RÚV.
MAÐUR ORÐA SINNA
„Við höfum alltaf sagt að við
stöndum með þjálfaranum okkar.
Málin eru nú oft flóknari en það
að hægt sé að kenna einum
manni um.“
Jóhann Ingi Árnason, framkvæmdastjóri
ÍBV, nokkrum dögum áður en Njáli Eiðs-
syni þjálfara sama liðs var sparkað.
LÍKA AF
STJÓRNMÁLAMÖNNUM
„Það er fullt af góðum skákmönn-
um sem geta ekkert í stærð-
fræði.“
Hannes Hlífar Stefánsson skákmeistari í
Fréttablaðinu.