Fréttablaðið - 03.09.2002, Qupperneq 25
Voru skilaboðin til presta í Þing-vallasveit á dögunum. Þar er nú
búið að úthýsa umboðsmönnum al-
mættisins og þeir skulu hætta að
jarma um að fá að tjalda á kirkjulóð-
inni eða draga þangað hjólhýsi.
Klerkar sem telja sig eiga erindi í
Þingvallakirkju geta leigt sér hótel-
herbergi ef þeir vilja gista eða komið
í dagsferðir í sóknina. Það er skoll-
ans nóg. Prestahjólhýsi á helga blett-
inum eða prestakofi er subbuskapur,
enda bannað að byggja í sveitinni, að
minnsta kosti kemst séra Jón ekki
upp með það. Til allrar guðs lukku er
búið að koma klerki út úr húsi í sjálf-
um Þingvallabænum. Þar er alltaf
fullt út úr dyrum af ofurmennum og
fyrirfólki og skelfilegt fyrir gesti og
gangandi ef hempuskarfur er að
læðupokast þar um stofur og ganga.
HEILABILAÐIR verða ekki út-
skrifaðir af Landakoti í bili. Það
hefði verið spennandi tilraun og
merkilegt að sjá hvernig því fólki
reiddi af. Eftir stendur að sjúkra-
rúmum fyrir aldraða þarf að fækka
og loka að minnsta kosti einni deild.
Óheppilegt að öldruðum skuli að
sama skapi fjölga í samfélaginu.
Næsta skref verður hugsanlega að
semja við sjúklinga um að tvímenna
í hin dýrmætu rúm. Kostuleg kveðja
frá yfirvaldinu til okkar hinna sem
gerum lítið annað en að eldast.
ÁLBJÖRGUNARSVEITIN fer á
kostum og reynir nú að koma á
kostulegu samstarfi við góðvini okk-
ar Kínverja um að reisa álver við
Eyjafjörð á heimaslóðum Álgerðar.
Mikið verður það notalegt. Við get-
um kannski fengið ókeypis kínverskt
vinnuafl til að reisa herlegheitin. Til
allrar hamingju eru Rússar líka með.
Vonandi verða þeir ráðgefandi í
mengunarvörnum - heimsmeistarar í
huggulegri stóriðju. Þá fyrst verður
borgið okkar alþjóðlega orðstír sem
hin náttúruvæna og lýðræðiselskandi
paradís í norðri.
MÖRLANDINN klórar sér. Kostu-
legur kosningavetur fram undan.
Hoppaðu upp og lokaðu augunum,
bentu í austur og vestur og svo á
þann sem þér þykir bestur. En hvert
á að benda? Einhverjir frambjóðend-
ur rangla um áttavilltir og vita ekki
hvar er best að vera. Hvar er mesti
sénsinn? Hvar eru bestu sætin? Í
hvaða kjördæmi er maður vinsælast-
ur? Skítt og lago með gömul átthaga-
bönd, hagsmuni sveitunga og velferð
trygglyndra kjósenda. Hvar er
hæsta þúfan að hreykja sér á?
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
/
s
ia
.i
s
/
N
M
0
7
1
7
3
*Mi›a› vi› 500 MB frá útlöndum.
Mána›argjald ADSL-fljónustunnar er ekki innifali›.
innifali›:
2 mána›a
internet-
áskrift*
Stórlækka› ver› á ADSL-pökkum
– L é t t a r i l e i › a › N e t i n u m e › S í m a n u m I n t e r n e t
SÍMINN INTERNET
• Ekkert stofngjald
• Engin skuldbinding
• Aukinn hra›i
• Sítenging
• 2 mána›a internetáskrift innifalin
• Vírusvarinn tölvupóstur
• Frí uppsetning í verslun Símans í kringlunni
• Pakkar sérsni›nir a› flínum flörfum
Ód‡rasti búna›arpakkinn og hentar vel fleim sem vilja tengja eina
tölvu me› ADSL-mótaldi vi› Neti›.
ADSL Pro – innbyggt ADSL-kort og smásía. Léttkaupsú
tbor
gun
1.980 kr.1.500 kr. færast á reikning næstu 6 mánu›i.
Sta›grei›sluver› 10.980 kr.
Tilb
o›
til 2
0. se
ptem
ber
Dæmi um pakka – sjá nánar á simnet.is
p
a
k
k
i
1
Mána›argjald internetfljónustu um ADSL hjá Símanum Internet er frá 3.820 kr.
Núna er hægt a› fá ADSL á eftirtöldum stö›um: öllu höfu›borgarsvæ›inu, Akureyri, Keflavík,
Njar›vík, Akranesi, Borgarnesi, Ísafir›i, Sau›árkróki, Húsavík, Egilsstö›um, Höfn, Selfossi,
Vestmannaeyjum, Siglufir›i, Stykkishólmi, Bolungarvík, Grindavík og Eskifir›i.
Takið hinni
kostulegu kveðju
Bakþankar
Kristínar Helgu Gunnarsdóttur
Flotefni • Málning
Múrviðgerðarefni
Verkfæri og fl.
Súðarvogur 14
www.golflagnir.is
S: 5641740