Fréttablaðið - 13.09.2002, Page 8
8 13. september 2002 FÖSTUDAGUR
INNLENT
ERLENT
ORÐRÉTT
SÓMI ÍSLANDS SVERÐ
OG SKJALDA
Afsögn Stein-
gríms Ara úr
einkavæðing-
a r n e f n d i n n i
kom mér í
opna skjöldu.
Geir Haarde.
Fréttablaðið 12.
september
SAMSTILLT SKJÖLDÓTT
UNDRUN
Ólafur Davíðsson....sagði afsögn
Steingríms Ara hafa komið sér í
opna skjöldu.
DV, 12 september
DRAUGAR Í OPNA SKJÖLDU
Sumir eru hræddir við drauga, en
geta þó ekki bent á draugana
Kristján Lofsson forstjóri Hvals hf. DV
12. september
Hjón notuðu tæknina þegar þjófar stálu Audi bíl :
Tölvupóstsherferð skil-
aði bílnum samdægurs
ÞJÓFNAÐUR Tölvupóstur sem sendur
var vinum og kunningjum og þeir
beðnir um að svipast um eftir
stolnum bíl bar árangur á nokkrum
klukkustundum. Jón Sigurðsson
lenti í því aðfaranótt sunnudags að
óprúttnir brutust inn í jeppann
hans sem staðsettur var fyrir utan
heimili hans og stálu úr honum
geislaspilara. Svo illa vildi til að
vegna aðstæðna geymdu þau hjón-
in varalykla í hanskahólfinu af
splunkunýjum Audi A4 sem stóð
fyrir aftan jeppann. Sáu þjófarnir
sér leik á borði og stálu bílnum.
Þegar bíllinn kom ekki í leitirn-
ar ákváðu Jón og eiginkona hans að
hefja tölvupóstsherferð og sendu
vinum og kunningjum tölvupóst
þar sem þau báðu fólk að líta eftir
bílnum og um leið áframsenda
hann á alla sem þau þekktu. Þetta
gerðu þau á miðvikudagsmorgnin-
um og síðar um daginn fengu þau
svar. Bíllinn hafði fundist á bíla-
stæði við fjölbýlishús í Kópavogin-
um. Höfðu kunningjar eiginkonu
Jóns verið að dáðst að bílnum sem
staðið hafði óhreyfður á bílastæði í
tvo daga. Þegar þau síðan fengu
tölvupóstinn aðgættu þau hvort
númerið var það sama og sú var
raunin.
Ungir sjálfstæðismenn
á Hellu:
Ríkið í
megrun
STJÓRNMÁL Samband ungra sjálf-
stæðismanna gengst fyrir mál-
efnaþingi á Hellu á Rangárvöllum
um næstu helgi. Mæta sjálfstæð-
ismennirnir til leiks með nýjan
framkvæmdastjóra sem nýlega
var ráðinn; Pétur Árna Jónsson
laganema.
Á Hellu munu sjálfstæðis-
mennirnir starfa í hópum undir
mismunandi yfirskriftum eins og
„Ríkið í megrun“ „Nýjar leiðir í
ríkisrekstri“ og „Frelsið og lögin“.
Samfara málefnavinnu verður
haldið golfmót kennt við
hægrisveiflu. Þinggjald er 1500
krónur. Gistimöguleikar á
staðnum.
Jörg Haider, fyrrverandi leið-togi Frelsisflokksins í Austur-
ríki, hefur tekið við völdum í
flokknum að nýju. Fram-
kvæmdastjórn flokksins til-
nefndi hann sem formann
flokksins eftir að hafa fundað í
borginni Linz á miðvikudag.
Hadier sagði upp formennsku í
Frelsisflokknum fyrir tveimur
árum. Margir telja að hann hafi
haldið áfram að leiða flokkinn á
bak við tjöldin.
Lögreglan á Ítalíu handtók ígær 15 Pakistana sem grun-
aðir eru tengsl við al-Qaida,
hryðjuverkasamtök Osama bin
Laden. Mennirnir voru hand-
teknir í borginni Caltanissetta, á
miðri Sikiley. Mennirnir komu til
Ítalíu í síðasta mánuði á skipi frá
Marokkó. Alls hafa rúmlega 30
manns verið handteknir á Ítalíu
á undanförnu ári grunaðir um
tengsl við al-Qaida.
Hælisleitendur á Íslandi:
Aldrei fleiri en í ár
ÚTLENDINGAEFTIRLITIÐ Þeir sem leit-
að hafa hælis á Íslandi hefur
fjölgað til muna, sérstaklega á
undanförnum vikum. Í fyrra leit-
uðu um fimmtíu manns eftir hæli
sem var metár, í dag eru þeir
orðnir 87 talsins, segir Jóhann Jó-
hannsson hjá Útlendingaeftirlit-
inu. Í síðustu viku leituðu þrír
Mongólar á þrítugs- og fertugs-
aldri hælis hér á landi og á þriðju-
dag tveir Búlgarar, kona um
fimmtugt og þrítugur sonur henn-
ar. Jóhann segir óljóst hvað verði
um Mongólana. Tvisvar áður hafi
landar þeirra leitað hingað en far-
ið aftur sjálfviljugir og án af-
skipta yfirvalda. Þá hafi mál
Búlgarana komið inn á borð til eft-
irlitsins í fyrradag og enn ekki
fyrirsjáanlegt hvað verður.
Jóhann segir af þeim 87 sem
hingað hafi leitað hafi enginn upp-
fyllt kröfur flóttamannasamn-
ingsins. Hins vegar sé eitthvað
um að fólk fái dvalarleyfi vegna
mannúðarástæðna. Ekki liggi fyr-
ir samantekt á þeim fjölda. Enn sé
verið að vinna í stórum hluta þess-
ara mála. Jóhann segir aukinn
fjölda þeirra sem óski eftir hæli
hverfa á braut eftir skamman
tíma. Aðspurður segir hann flesta
koma frá fyrrum lýðveldum Sov-
étríkjanna og af Balkanskaga.
Hatrömm átök hjóna á Ísafirði:
Dæmd fyrir árás
hvort á annað
DÓMSMÁL Karl og kona voru í Hér-
aðsdómi Vestfjarða fundinn sek
um líkamsárás hvort á annað. Að
auki var karlinn dæmdur fyrir fjöl-
skrúðug önnur afbrot, meðal ann-
ars innbrot og lyfjaþjófnað. Hon-
um er gert að sæta tíu mánaða
fangelsi.
Í fyrrasumar lenti maðurinn í
átökum við eiginkonu sína þar sem
þau bjuggu á Ísafirði. Hann tók
hana kverkataki og sló hana í and-
litið. Hún bólgnaði og fékk mar.
Eiginkonan stakk mann sinn í þess-
um átökum í bakið með vasahnífi.
Hann fékk grunnan skurð.
Ákæruvaldið krafðist þess að
bæði yrðu dæmd til refsingar fyrir
þessa verknaði. Þau voru bæði
fundin sek um líkamsárás en kon-
unni var þó ekki gerð refsing.
Hjónin munu nú vera skilin.
Hjónin höfðu bæði frá árunum
1988 og 1989 hlotið dóma fyrir
margvísleg afbrot. Konan var til
dæmis dæmd í 15 mánaða fangelsi
árið 1997. Hún hefur hins vegar
aldrei verið ákærð fyrir líkams-
árás og þótti hafa sýnt af sér bætta
hegðun upp á síðkastið.
Steinunn SF kom með fyrstusíldina til Hornafjarðar í
fyrradag og var þetta fyrsta
síldin sem veiðist á vertíðinni.
Steinunn var með um 150 tonn
sem veiddust í tveimur köstum í
Berufjarðarálnum. Steinunn
fékk nótina í skrúfuna en komst
í land af sjálfsdáðum.
Svo gæti farið að látið verðireyna á smalaskyldu jarðeig-
enda fyrir dómi innan tíðar en
upp er komið deilumál innan
Borgarbyggðar um hvort land-
eigendum, sem telja sig hafa
orðið fyrir ágangi búfjár frá af-
rétti, beri að smala sín lönd
sjálfir.
ÚTLENDINGAEFTIRLITIÐ
Jóhann segir að unnið sé eftir svokölluðu
Dublin samkomulagi sem tryggi það að
hælisleitendur fái málsmeðferð á einum
stað og um leið komi í veg fyrir að hoppað
sé á milli ríkjanna og látið reyna á með-
ferð enn og aftur.
Ekkert hefur spurst til Bin Ladens í tíu mánuði:
Röddin talin ósvikin
WASHINGTON, AP Banda-
ríska leyniþjónustan CIA
hefur komist að þeirri
niðurstöðu að röddin á
myndbandi, sem arabíska
sjónvarpsstöðin Al Dja-
síra birti í vikunni, sé í
raun og veru rödd Osama
bin Ladens. Hins vegar
telja þeir líklegt að mynd-
bandið sé ekki nýtt.
Á myndbandinu nefnir
bin Laden nöfn allra flug-
ræningjanna 19, sem
gerðu árásirnar á Banda-
ríkin 11. september.
Ekkert hefur frést af
Bin Laden allt þetta ár.
Enginn veit hvort hann er
lífs eða liðinn. Síðasta ör-
ugga merki þess, að hann hafi
verið á lífi, er myndband sem
tekið var upp í Afganistan snem-
ma í nóvember árið 2001. Þar
sést hann snæða kvöld-
verð með félögum sínum.
Leyniþjónusta og her
Bandaríkjanna telja samt
fullvíst að hann hafi verið
í fjallafylgsninu í Tora
Bora í Afganistan þegar
loftárásirnar þar hófust
seint í nóvember. Eftir
það er hins vegar ekkert
vitað með vissu um ferðir
hans. Líklegast þykir að
hann hafi flúið þaðan í átt-
ina að landamærum
Afganistans og Pakistans
í desember. Þetta er samt
hrein ágiskun, þótt hún
styðjist við framburð
fanga sem handteknir
voru við Tora Bora. En
óvíst er hversu áreiðanlegur sá
vitnisburður er.
ÚR MYNDBANDINU
Osama bin Laden sést þarna ásamt tveimur félaga sinna. Óvíst er
hvenær myndbandið var tekið upp.
AP
/A
L
D
JA
SÍ
R
A,
A
PT
N
AUDI A4
Öflug tölvupóstaherferð skilaði Jóni Sig-
urðssyni og eiginkonu hans splunkunýjum
bíl. Hann fannst óskemmdur en afar
skítugur að innan eftir fyllerí næturinnar.
Jóni er efst í huga þakklæti til allra sem
tóku þátt í leitinni.