Fréttablaðið - 13.09.2002, Blaðsíða 12
12 13. september 2002 FÖSTUDAGURFORMULA 1
SLUNGINN
Michael Schumacher, heimsmeistari í For-
múlu 1 keppninni, sést hér í góðgerðarleik
sem haldinn var til að safna fé í svokallað-
an Tvíburaturnasjóð.
Spænska liðið
Villareal:
Munoz
sagt upp
störfum
FÓTBOLTI Spænska úrvalsdeildar-
liðið Villareal, sem sló út FH-
inga í 2. umferð totokeppninnar í
sumar, hefur rekið þjálfara sinn
Victor Munoz. Uppsögnin kom í
kjölfar 2:1 ósigurs gegn þriðju-
deildarliðinu Herkúles í fyrstu
umferð bikarkeppninnar. „Þetta
er erfiður tími, sérstaklega fyrir
mig,“ sagði Munoz eftir að til-
kynnt hafði verið um uppsögn-
ina á heimasíðu félagsins. „Þetta
er eitt af því sem getur alltaf
gerst í fótboltanum. Þeir tóku
ákvörðun allt of snemma. Þeir
voru alltof hræddir í kjölfar
slæmrar byrjunar á keppnis-
tímabilinu.“
Munoz sagðist vera ánægður
með það starf sem hann hefði
unnið hjá liðinu. Á fyrsta tíma-
bili sínu með Villareal leiddi
Munoz liðið í 7. sæti spænsku úr-
valsdeildarinnar tímabilið 2000
til 2001. Á síðasta tímabili gekk
hins vegar ekki eins vel. Slapp
liðið naumlega við fall og endaði
í 15. sæti. Villareal hefur lokið
einum leik í spænsku deildinni.
Gerði liðið 2:2 jafntefli við Osas-
una á heimavelli. Ekki hefur
verið tilkynnt hver tekur við
starfi Munoz.
FÓTBOLTI Milene Domingues, eigin-
kona knattspyrnusnillingsins Ron-
aldo, hefur gengið til liðs við spæn-
ska liðið Atletico Madrid fyrir met-
fé, eða rúmar 26 milljónir króna.
Domingues, sem er 22 ára, spilaði
áður með ítalska úrvalsdeildarlið-
inu Fiamma Monza, en ákvað að fly-
tja sig um set til Spánar þegar eig-
inmaðurinn gekk til liðs við Real
Madrid. „Ronaldinha“, eins og hún
er kölluð á Spáni, er talin ein besta
knattspyrnukonan í Evrópu. Fjár-
hæðin sem hún var keypt fyrir er
tífalt hærri en það sem mest hefur
verið greitt fyrir knattspyrnukonu
á Spáni.
Að sögn Ronaldo minnir spila-
mennska Domingues mikið á frans-
ka snillinginn Zinedine Zidane.
Domingues, sem er fyrrverandi
fyrirsæta, á heimsmetið í því að
halda bolta á lofti; samtals 55.197
sinnum.
Eiginkona Ronaldo:
Til Atletico Madrid
fyrir metfé
DOMINGUES
Domingues, sem er fyrrverandi fyr-
irsæta, hefur nú gengið í raðir erki-
fjenda Real Madrid.
FÓTBOLTI Mikil spenna er fyrir
lokaumferðina í 1. deild karla í
knattspyrnu sem leikin verður á
morgun. Þróttur Reykjavík og
Stjarnan berjast um að fylgja Val
upp í úrvalsdeild að ári en bæði
lið eru með 30 stig. Hlíðarenda-
piltar eru fyrir löngu búnir að
tryggja sæti sitt meðal þeirra
bestu. ÍR og Sindri eru þegar fall-
inn í aðra deild.
Þorvaldur Örlygsson er þjálf-
ari KA og stýrði liðinu upp úr
fyrstu deild á síðasta tímabili.
Hann segist ekki hafa fylgst mik-
ið með 1. deildinni í sumar þó
hann hafi séð einhverja leiki á Ak-
ureyri og á Dalvík.
„Ég vissi að þetta yrði erfitt
hjá Sindra í sumar og ÍR-ingarnir
áttu ekki gott tímabil síðast. Það
byrjaði ekki vel hjá þeim og var á
brattan að sækja,“ sagði Þorvald-
ur aðspurður hvort það kæmi á
óvart að Sindri og ÍR væru fallin.
„Deildin var jöfn framan af en
þegar eitt lið stingur af, eins og
Valur, þá fækkar baráttusætun-
um.“ Hann segir yfirburði Vals í
deildinni hafa komið sér á óvart.
„Þeir kláruðu mótið og eru greini-
lega vel að því komnir.“
Stjarnan á talsvert erfiðari
viðureign fyrir höndum þar sem
liðið mætir Val í Garðabæ. Þrótt-
ur tekur á móti Breiðablik á Val-
bjarnarvelli. Þorvaldur og læri-
sveinar í KA léku við Þróttara í
úrslitaleik um laust sæti í úrvals-
deildinni og þá hafði KA betur.
„Þróttarar eru kannski komnir
með reynslu í þessu. Þeir eru líka
með betra markahlutfall svo ég
hef trú á að þeir hafi þetta. Þeir
vinna sinn leik en ég er hræddur
um að Stjarnan geri jafntefli við
Val. Þannig að það verður Þróttur
sem fer upp. Ég hef það alla vega
á tilfinningunni.“
kristjan@frettabladid.is
Þróttur stendur
betur að vígi
Lokaumferð 1. deildar karla á morgun. Valur hefur tryggt sér sæti í úr-
valsdeildinni. Þróttur og Stjarnan berjast um annað sætið. Þróttur missti
af úrvalsdeildarsæti í fyrra. Er með betri markatölu en Garðbæingarnir.
ÞORVALDUR ÖRLYGSSON
Þjálfari KA-manna telur að Þróttur hafi bet-
ur í baráttunni við Stjörnuna.
ÖRUGGIR ÁFRAM
Valur hefur þegar tryggt sæti sitt í úrvalsdeildinni að ári. Höfðu mikla yfirburði í deildinni í sumar.
1. DEILD KARLA
Lið Leikir U J T Mörk Stig
Valur 17 12 3 2 33 : 7 39
Þróttur R. 17 9 3 5 37 : 21 30
Stjarnan 17 9 3 5 32 : 27 30
Víkingur R. 17 7 3 7 29 : 28 24
Afturelding 17 6 6 5 25 : 28 24
Haukar 17 6 5 6 26 : 22 23
Breiðablik 17 7 2 8 29 : 28 23
Leiftur/Dalvík 17 4 6 7 24 : 29 18
ÍR 17 3 4 10 12 : 39 13
Sindri 17 3 3 11 14 : 32 12
18 UMFERÐ
Haukar - Víkingur R.
Stjarnan - Valur
ÍR - Sindri
Þróttur R. - Breiðablik
Leiftur/Dalvík - Afturelding
Umspil hjá stelpunum:
Hafnarfjarð-
arslagur
FÓTBOLTI FH og Haukar mætast á
Kaplakrikavelli klukkan 17.00 í dag
í umspili um laust sæti í úrvalsdeild
kvenna á komandi tímabili. Það lið
sem hefur betur í tveimur viður-
eignum spilar í efstu deild í vetur.
FH stúlkur léku í úrvalsdeildinni í
ár en lentu í næst síðasta sæti.
Haukar léku í þeirri fyrstu og höfn-
uðu í öðru sæti eftir tap gegn Þrótti
Reykjavík í úrslitum. Þróttur tók
sæti Grindavíkur, sem lenti í neðsta
sæti úrvalsdeildarinnar. FH og
Haukar léku einnig í umspili í fyrra
og þá hafði fyrrnefnda liðið betur.
Seinni leikurinn verður að Ásvöll-
um í hádeginu á sunnudag.
Stjórnarformaður
Birmingham City:
Beit
tunguna í
sundur
SLYS David Gold, stjórnarformað-
ur enska úrvalsdeildarliðsins
Birmingham City, er á batavegi
eftir að hafa lent í flugslysi á mið-
vikudag. Gold var sjálfur við
stjórn í flugvél sinni og þurfti að
brotlenda henni á æfingavelli liðs-
ins eftir að hún missti flugið.
Hann slasaðist lítillega en beit
framan af tungunni. Læknar ráð-
lögðu honum að taka því rólega í
stað þess að fara og fylgjast með
leik Birmingham gegn Liverpool.
Leikurinn endaði með jafntefli
þar sem bæði lið skoruðu tvö
mörk.
Áfall fyrir Eyjamenn:
Duranona
spilar ekki
með ÍBV
HANDBOLTI Róbert Julian Dura-
nona mun ekki leika með hand-
knattleiksliði Eyjamanna á kom-
andi tímabili eins og búast var
við. Duranona hafði lýst yfir
áhuga að spila með Eyjamönnum
þar sem hann komst ekki að í
grísku deildinni. Þegar hann
kom svo til landsins í fyrradag
kom annað hljóð í skrokkinn og
ekkert varð af samningnum.
Ástæðuna sagði hann vera þá að
kona hans vildi ekki flytja til
landsins. Þetta er mikið áfall
fyrir lið ÍBV enda Duranona
einn öflugasti handknattleiks-
maður landsins.
ÍÞRÓTTIR Í DAG
17.30 Kaplakrikavöllur
Umspil (FH - Haukar)
18.30 Sýn
Íþróttir um allan heim
19.30 Sýn
Alltaf í boltanum
20.00 Sýn
Gillette-sportpakkinn
20.30 Sýn
Vængjaþytur
LYFJAPRÓF Tékkneski ökuþórinn
Tomas Enge féll á lyfjaprófi í
ungverska kappakstrinum í For-
múlu 3000 sem fram fór í síðasta
mánuði. Hann þarf því að mæta
fyrir dómi hjá Alþjóða aksturs-
íþróttasambandinu í næsta mán-
uði. Enge keyrði meðal annars
fyrir Prost liðið í Formúlu 1
keppninni í fyrra. Lyfjamál eru
afar óalgeng í kappaksturs-
íþróttinni. Lyfjaeftirlit var ekki
tekið upp fyrr en árið 1990.
Enge mun væntanlega áfrýja
málinu og fara fram á að sýnið
verði skoðað að nýju. Hann hef-
ur staðið sig vel í Formúlu 3000
keppninni og hefur meðal ann-
ars unnið fjórar keppnir af ell-
efu. Hann er aðeins einu stigi á
eftir heimsmeistaranum,
Sebastian Bourdais, í saman-
lagðri keppni. Enge mun keppa í
næsta móti sem fram fer í
Monza en árangur hans mun
ekki telja fyrr en niðurstaða er
fengin í málinu.
Tomas Enge:
Féll á lyfjaprófi en
heldur áfram keppni
TOMAS ENGE
Hefur staðið sig vel í Formúlu 3000
keppninni.