Fréttablaðið - 13.09.2002, Side 22

Fréttablaðið - 13.09.2002, Side 22
Heimsendingar og sótt! O p n u n a r t í m i : 1 1 - 0 1 v i r k a d a g a o g 1 1 - 0 6 u m h e l g a r Grensásvegur 12 Tilboð sótt 1. 12“ m/3 álegg og 1/2 litr. gos 990 kr,- 2. 16“ m/2 áleg. og 2 litr. gos 1.390 kr,- 2 fyrir 1 Pizza að eigin vali a) ostabrauðstangir eða b) hvítlauksbrauð 12“ og önnur pizza af sömu stæð FRÍTT (greitt er fyrir dýrari pizzuna) Tilboð sent 1. 12“ m/3 álegg og 1litr. gos 1.490 kr,- 2. 16“ m/3 álegg og ostabrauðstangir eða 2 litr. gos. 1.900 kr,- 3. 18“ m/3 áleg. og ostabrauðstangir eða 2 litr. gos 2.390 kr,- 22 13. september 2002 FÖSTUDAGUR VEÐUR AFMÆLI Framtíð víkingaskipsins Ís-lendings hérlendis hefur ver- ið tryggð og skipið verður vænt- anlega haft til sýnis í víkinga- þorpi sem rísa á við Fitjar í Njarðvík. Gunnar Marel Eggerts- son átti hugmyndina að skipinu og stóð fyrir smíði þess. „Skipið hefur tekið allan minn tíma síðustu átta ár. Ég hef ekki getað um frjálst höfuð strokið og hef ekki tekið mér sumarfrí svo heitið geti allan þennan tíma.“ Gunnar Marel sinnti engum öðr- um störfum á meðan og hefur því reynt að afla sér tekna með skip- inu. „Það hefði aldrei gengið að ætla að vinna eitthvað með þessu. Sá vinnuveitandi er örugglega ekki til sem hefði sætt sig við all- ar þær fjarvistir sem hefðu verið óhjákvæmilegar út af þessu.“ Gunnar Marel segist aðspurð- ur hafa lagt út í þetta ævintýri til þess að Íslendingar gætu átt sýn- ishorn af þeim skipum sem for- feður þeirra sigldu á til landsins: „Ég skammaðist mín eiginlega fyrir það að geta ekki sýnt áhuga- sömum útlendingum sem hingað komu víkingaskip. Íslendingur er einfaldlega viðbragð við þessum skorti.“ Það enginn hægðarleikur fyrir fjölskyldumann að eiga og reka víkingaskip með rúmlega 60 milljóna skuld á bakinu og Gunn- ar íhugaði því á tímabili að sökk- va fleyinu: „Þegar maður er kom- inn í svona alverlegar þrengingar dettur manni ýmislegt í hug. Það að sökkva honum hefði verið ákveðin lausn fyrir mig og ég hefði þá getað einbeitt mér að því að vinna fyrir skuldum. En ég henti þessu nú eignlega meira fram í bræði og lokaniðurstaðan í málinu er svo eiginlega sú sem ég óskaði mér í upphafi.“  Gunnar Marel Eggertsson átti hugmyndina að smíði Íslendings og stóð fyrir smíði þess. GUNNAR MAREL EGGERTSSON Ég skammaðist mín eiginlega fyrir það að geta ekki sýnt áhugasömum útlendingum sem hingað komu víkingaskip Persónan Sigldi Íslendingi í örugga höfn FÓLK Í FRÉTTUM Innan Samfylkingarinnar íReykjavík hafa menn áhyggjur af því að ný nöfn sem nefnd hafa verið til leiks fyrir næstu alþingis- kosningarinnar séu allt karlar. Fylgi kvenna skiptir miklu í kosn- ingum sem sást best á því að ef karlar yfir fertugu hefðu einir haft kosningarétt í borgarstjórnar- kosningunum, hefði Sjálfstæðis- flokkurinn unnið stórsigur. Þegar mun vera farið að svipast um eftir æskilegum frambjóðendum úr hópi kvenna. Það nafn sem oftast skýtur upp kollinum er nafn Stein- unnar Valdísar Óskarsdóttur. Steinunn er eldri en tvævetur í pólitík, þrátt fyrir ungan aldur. Sýslumaðurinn á Seyðisfirði ogstarfsfólk hans, gerðu sér daga- mun í tilefni af því að Norræna hafði látið úr höfn í síðasta sinn á þessu sumri. Þetta er árlegur við- burður hjá Lárusi Bjarnasyni sýslumanni og hans fólki og var farið í Fjarðarána þar eystra. Sýsli og tollarar veiddu betur í ánni en við tollleit í Norrænu, ellefu sil- ungar komu á land. Lýður Árnason, læknir á Flat-eyri, og félagar hans í kvik- myndafyrirtækinu Í einni sæng stefna á frekari kvikmyndagerð á næstunni, en fyrirtækið gerði myndina „Í faðmi hafsins“. Sú mynd fékk ágætis dóma og þótti vel að verki staðið hjá Vestfirðing- unum. Samkvæmt heimildum Bæjarins besta er myndin sem nú er fyrirhuguð „kómídrama“ sem gerist í sveit á Íslandi skömmu eftir 1800. Lýður fór nýlega á fund bæjarráðs Ísafjarðarbæjar og óskaði eftir aðstoð við gerð mynd- arinnar. Hugmyndum hans var vel tekið og leggur til við bæjarstjórn að sveitarfélagið taki þátt í verk- efninu með „aðstöðusköpun“. MEÐ SÚRMJÓLKINNI Útilistaverkin 58 sem þóttu ekki nógu góð til að standa á lóð Þjóð- arbókhlöðunnar verða að öllum líkindum sett upp við Leifsstöð þar sem nokkur verk eru fyrir. Leiðrétting Hvernig er hægt að sjá að ljós-ka sé að baka súkkulaðibita- köku? Liturinn utan af M&M kúlun- um eru út um öll gólf. SAGA DAGSINS 13. SEPTEMBER TÍMAMÓT Borgarfjarðarbrúin var vígðárið 1981, en umferð um hana hófst árið áður. Með brúnni stytt- ist leiðin milli Akraness og Borg- arness úr 69 kílómetrum í 38 kíló- metra. Framkvæmdir stóðu í sjö ár Frídagur verslunarmanna varhaldinn hátíðlegur í fyrsta sinn í Reykjavík árið 1894. Síðar var hann fluttur fram í byrjun ágúst. Tveir ungir menn klifu norð-vesturvegg Skessuhorns í Skarðsheiði árið 1980, en veggur- inn hefur verið talinn ókleifur. Músagildran, leikrit eftirskáldsögu Agöthu Christie, varð árið 1957 það leikrit sem lengst hafði verið á fjölunum í Bretlandi. Þennan dag var leikrit- ið sýnt í 1.998. skipti. JARÐARFARIR 13.30 Oddur Ingvarsson, Skjólvangi Hrafnistu áður til heimilis á Hóla- braut 3, Hafnarfirði, verður jarð- sunginn frá Hafnarfjarðarkirkju. 13.30 Brynhildur Guðmundsdóttir, Ljósheimum 6, Reykjavík, verður jarðsungin frá Langholtskirkju. 13.30 Þóra A. Guðmundsdóttir, Efsta- sundi 3, Reykjavík, verður jarð- sungin frá Áskirkju. 14.00 Hólmfríður Björg Ólafsdóttir, Launrétt 1, Laugarási, Biskups- tungum, verður jarðsungin frá Skálholtskirkju. 15.00 Kveðjuathöfn um Ólöfu Guð- mundsdóttur, áður húsfreyju á Ytri-Löngumýri, Austur-Húnavatns- sýslu, verður haldin í Kópavogs- kirkju. 15.00 Stefanía Stefánsdóttir, Framtíð, Vestmannaeyjum, verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju. AFMÆLI Jón Þórarinsson, tónskáld er 85 ára. Söngkonan Andrea Gylfadóttir er fer- tug. Um þessar mundir stendur veð-urhappdrætti sem hæst. Alls- endis óvíst hvort að sumrinu sé al- veg lokið, hvort kaldir haustdagar séu framundan eða jafnvel frost að næturþeli. Um daginn birti til, en það var kalt, gluggaveður svo- kallað. Það hlýnaði og svo fór að rigna. Nú er allt í einu hitabylgja, hlýju ullarpeysurnar óþarfar og allir of vel klæddir. Haustið er óá- kveðinn árstími, gaman að því. Vonandi heldur fjörið áfram næstu daga og vikur.  Jón Þórarinsson, tónskáld,fæddist í Eiðaþinghá þann 13. september 1917 og er því 85 ára í dag. Að loknu stúdentsprófi stundaði hann nám í Tónlistar- skólanum í Reykjavík og í einka- tímum og síðar í Yale-háskóla í Bandaríkjunum. Hann lauk meistaraprófi árið 1947 og var yfirkennari í tónfræði og tón- smíði við Tónlistarskólann á ár- unum 1947 til 1968. Hann starf- aði einnig hjá Ríkisútvarpinu á þessum tíma og var dagskrár- stjóri hjá Sjónvarpinu frá 1968 til 1979. Jón beitti sér af krafti fyrir stofnun sinfóníuhljómsveitar á Íslandi og hann varð fyrsti stjórnarformaður Sinfóníu- hljómsveitar Íslands þegar hún var stofnuð 1950. Hann var síðar framkvæmdastjóri sveitarinnar í fimm ár og sat í stjórn hennar um árabil. Tónlistarlíf landsmanna var frekar fábrotið þegar Jón sneri heim úr námi og því lagði hann meiri áherslu á kennslu og annað uppbyggingarstarf fremur en tónsmíðar, enda ekki margt sem benti til þess að ný verk yrðu flutt á annað borð. Eftir Jón ligg- ja engu að síður fjölmörg tón- verk af ýmsu tagi og árið 1998 kom út safn tónsmíða hans á þremur geislaplötum. Jón ber aldurinn vel, er heilsuhraustur, og vinnur enn að rannsóknum og ritun á Tónlistar- sögu Íslands en hann hefur unn- ið að henni allt frá árinu 1987. Jón hefur fengist nokkuð við rit- störf um ævina og gaf meðal annars út ævisögu Sveinbjörns Sveinbjörnssonar tónskálds árið 1968 og skrifaði ítarlegar grein- ar um Björgvin Guðmundsson í Árbók Landsbókasafnsins árið 1965 og Pál Ísólfsson fyrir And- vara árið 1979.  JÓN ÞÓRARINSSON Einn helsti hvatamaðurinn að stofnun Sinfóníuhljómsveitar Íslands er 85 ára í dag. Lætur aldurinn ekki trufla rannsóknavinnu Jón Þórarinsson, tónskáld, er 85 ára í dag. Hann var einn helsti hvata- maðurinn að stofnun Sinfóníuhljómsveitar Íslands og var fyrsti stjórn- arformaður hennar. Hann hefur fengist við ritun Tónlistarsögu Ís- lands í 15 ár og fæst enn við rannsóknir tengdar því verki. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.