Fréttablaðið - 26.09.2002, Blaðsíða 2
2 26. september 2002 FIMMTUDAGUR
LÆKNINGAR Jón Friðriksson geisla-
læknir hefur stundað lækningar í
gámi sem staðið hefur í þrjú ár
fyrir utan læknamiðstöðina
Lækning í Ármúla 5 í Reykjavík. Í
gáminum er segulómtæki í eigu
Jóns en ekki hefur verið pláss fyr-
ir tækið í húsnæði læknamið-
stöðvarinnar.
„Upphaflega var tækið hérna á
bílastæðinu fyrir framan og þá
var ég með leyfi fyrir því. Nú er
það komið í geymslu hér bakatil
og ég er að vinna í því að koma
tækinu í hús. En það er dýrt,“ seg-
ir Jón, en uppsetningu á segul-
ómtæki eins og þessu kostar 10-20
milljónir króna. „Þetta er ódýras-
ta leiðin fyrir mig. Svo kostar um
200 þúsund krónur á mánuði að
reka tækið og halda því við þó svo
að það sé ekki í notkun,“ segir
hann.
Nýtt segulómtæki, eins og það
sem í gáminum er, kostar um 130
milljónir króna, en Jón fékk sitt
ódýrara því það var notað.
Gámurinn er sérhannaður til
þessara nota en auk tækisins er í
honum bæði skoðunarherbergi
og stjórnstöð. Þegar gámurinn
stóð á bílastæðinu fyrir utan
læknamiðstöðina sinnti Jón sjúk-
lingum sínum þar en hefur ekki
gert það eftir að gámurinn var
fluttur úr stað.
Þrengsli í læknamiðstöð við Lágmúla:
Geislalækningar
stundaðar í gámi
GÁMURINN MEÐ SEGULÓMTÆKINU
Leitað að hentugra húsnæði.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Mislukkuð augnaðgerð:
Sjónin versn-
aði - neitar
að borga
DÓMSMÁL Augnlæknafyrirtækið
Laser-sjón ehf. hefur stefnt konu
á fimmtugsaldri til greiðslu á
augnaðgerð sem kostaði um 300
þúsund krónur. Laseraðgerð átti
að laga sjón konunnar verulega.
Lögmaður konunnar staðhæfir að
konan hafi ekki fengið þá þjón-
ustu sem hún sóttist eftir.
Augnlæknunum hefði mátt vera
ljóst að hún ætti ekki að fara í
aðgerðina. Konan sér verr eftir
aðgerðina en fyrir og neitar að
borga.
INGIMUNDUR FRIÐRIKSSON
Tímabundin setning hans í embætti er tal-
in til marks um að beðið verði með að
skipa í starf Seðlabankastjóra.
Seðlabankinn:
Nýr stjóri
settur tíma-
bundið
EFNAHAGSMÁL „Þetta er mikil
breyting en ég þekki alla innviði
hér ákaflega vel,“ segir Ingi-
mundur Friðriksson. Hann var í
gær settur Seðlabankastjóri í stað
Finns Ingólfssonar. „Þetta gerðist
mjög hratt,“ segir hann um að-
draganda þess að vera settur í stól
Seðlabankastjóra.
Ingimundur hefur starfað í
Seðlabankanum frá árinu 1975
með tveimur hléum þegar hann
hélt til starfa hjá Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum. Hann hefur verið
aðstoðarbankastjóri frá 1994.
Skipan hans í stól Seðlabanka-
stjóra er tímabundin og til eins
árs að hámarki.
Ráðherra ósáttur:
Áfrýjun tefst
vegna rétta
KOSNINGAR Þórir Páll Guðjónsson,
formaður Framsóknarfélags
Mýrasýslu, sagði að ekki hefði
verið tekin ákvörðun um hvort
dómi Héraðsdóms Vesturlands
frá því í fyrradag yrði áfrýjað.
Héraðsdómur felldi þá úr gildi úr-
skurð félagsmálaráðuneytisins
um ógildingu sveitarstjórnar-
kosninganna í Borgarbyggð þann
25. maí.
„Það er verið að ræða málin,“
sagði Þórir Páll. „Við höfum
þriggja vikna áfrýjunarfrest, en
ætli við tökum ekki ákvörðun eft-
ir helgi. Það hefur reyndar verið
erfitt að ná mönnum saman útaf
leitum og réttum.“
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra sagðist ósáttur við dóminn.
Ráðuneytið hefði ekki farið út fyr-
ir valdsvið sitt. Þá væri það ekki
rétt eins og kæmi fram í dómnum
að engin krafa um ógildingu hefði
verið sett fram. Sett hefði verið
fram þrautavarakrafa þess efnis.
„Það eru miklir almannahags-
munir að veði að kosningar séu
rétt framkvæmdar,“ sagði Páll.
„Það voru tvímælalaust alvarlegir
ágallar á þessum kosningum. Eitt
ógilt atkvæði var talið og annað
atkvæði sem tvímælalaust var
MILLIRÍKJASAMNINGUR Halldór Ás-
grímsson, utanríkisráðherra, og
Anfinn Kallsberg, lögmaður Fær-
eyja, hafa náð samkomulagi um
afmörkun umdeilda hafsvæðisins
milli Íslands og Færeyja. Þar með
er lokið afmörkun efnahagslög-
sögu Íslands gagnvart lögsögu ná-
grannalandanna. Áður hefur verið
gengið frá afmörkun efnahagslög-
sögunnar gagnvart lögsögu Jan
Mayen, Grænlands og Bretlands.
Umdeilda svæðið er samtals
3.650 ferkílómetrar að flatarmáli.
Nyrðri hluti þess, um tveir þriðju
hlutar, skiptist þannig að Ísland
fær 60% en Færeyjar fá 40%.
Syðri hluti svæðisins, eða um
þriðjungur, skiptist jafnt milli
þjóðanna. Skipum beggja þjóða
verður þó heimilt að nýta sameig-
inlega hluta þess svæðis en þar er
að finna rækjuhóla.
Samkvæmt mati Hafrann-
sóknastofnunarinnar eru fisk-
veiðihagsmunir Íslendinga á
þessu umdeilda svæði milli Ís-
lands og Færeyja ekki miklir. Þá
hefur Orkustofnun staðfest að
ekkert bendi til þess að auðlindir
sé að finna á landgrunni svæðis-
ins.
Stefnt er að því að formlegur
afmörkunarsamningur, sem muni
ná til allrar lögsögulínunnar milli
landanna, verði gerður haustið
2003 að lokinni tæknilegri endur-
skoðun á grunnlínupunktum
hvors lands um sig. Þar með lýkur
deilum sem staðið hafa síðan 1975
eða allt frá því efnahagslögsagan
var færð úr 50 sjómílum í 200.
Samkomulag um hafsvæðið milli Íslands og Færeyja:
Afmörkun efnahags-
lögsögu Íslands lokið
HAFSVÆÐIÐ UMDEILDA MILLI ÍSLANDS OG FÆREYJA
Í hartnær 30 ár hafa þjóðirnar karpað um þetta 3.650 ferkílómetra svæði. Sáralitlir fiskveiði-
hagsmunir eru á svæðinu og ekkert bendir til að auðlindir, svo sem olíu, sé að finna þar.
FÆREYJAR
ÍSLAND
STARFSGREINASAMBAND ÍSLANDS
Er fjölmennasta félagið innan Alþýðusam-
bands Íslands.
Starfsgreinasamband
Íslands:
Ólíklegt að
Halldór hætti
sem formaður
FORMANNSSLAGUR Erfiðlega gengur
að finna arftaka Halldórs Björns-
sonar formanns Starfsgreinasam-
bands Íslands samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins. Ársfundur
Sambandsins verður haldinn á Sel-
fossi eftir tæpan mánuð. Þar verð-
ur kjörið í framkvæmdastjórn en
óvíst er að miklar breytingar verði
á henni.
Halldór hefur gegnt for-
mennsku í Starfsgreinasamband-
inu frá stofnun þess haustið 2000.
Búist hafði verið við því að hann
drægi sig í hlé á ársfundinum en
arftaki sem ríkir jafn mikil sátt um
er ekki auðfundinn. „Full sátt verð-
ur að vera um viðkomandi. Það er
lykillinn að því að sambandið lifi
áfram. Um framhaldið get ég engu
svarað í dag,“ sagði Halldór
Björnsson í samtali við blaðið.
Nokkrir hafa verið nefndir sem
arftakar Halldórs Björnssonar,
hætti hann á annað borð. Þeirra á
meðal Aðalsteinn Baldursson, for-
maður Verkalýðsfélags Húsavíkur,
og Sigurður Bessason, formaður
Eflingar. „Mitt nafn er ekki inni í
þessari umræðu. Það er alveg
klárt af minni hálfu,“ sagði Sigurð-
ur.
Efling er stærsta félagið innan
Starfsgreinasambandsins sem er
fjölmennasta sambandið innan Al-
þýðusambands Íslands. Vilji
Eflingar vegur þungt en Sigurður
gefur ekkert upp um þann vilja.
BORGARMÁL Sjálfstæðismenn í
borgarstjórn gagnrýna samstarfs-
samning Þróunarfélags miðborg-
arinnar og Bílastæðasjóðs um
markaðsmál. Samkvæmt samn-
ingnum fær Þróunarfélagið 5%
hlutdeild í tekjum Bílastæðasjóðs
af stöðu- og miðamælum næstu
þrjú ár til að annast almenn mark-
aðsmál. Gert er ráð fyrir að samn-
ingurinn tryggi félaginu tæpar 8
milljónir króna á ári.
Kjartan Magnússon, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sem
sæti á í samgöngunefnd, segir
það kaldhæðnislegt að peningar
úr bílastæðasjóði verði nýttir til
að markaðssetja miðborgina. Há
stöðumælagjöld séu ein helsta
ástæðan fyrir því að miðborgin sé
að lognast út af. Nær hefði verið
að lækka stöðumælagjaldið og þá
sérstaklega aukastöðugjaldið,
sem hefur hækkað mikið undan-
farin ár. Nú er það 1.500 krónur
en fyrir fáeinum árum var það
350 krónur. Kjartan segir að þá
hafi aukin harka í innheimtu bíla-
stæðagjalda einnig haft slæm
áhrif á aðsókn fólks í miðbæinn.
„Við teljum að miðbærinn sé í
mjög erfiðri kreppu,“ sagði
Kjartan. „Síðustu fréttir herma
að McDonalds sé að fara úr mið-
bænum og er miðbær Reykjavík-
ur þá eini miðbærinn í heiminum
sem McDonalds hefur hafnað,
það segir sitt. Þau verslunar- og
þjónustufyrirtæki sem ekki eru
farin úr miðbænum eru að hugsa
sér til hreyfings. Þannig að mið-
bærinn siglir í mjög alvarlegt
ástand.“
Kjartan segir að ef svo fer
fram sem horfir muni verslunar-
rekstur í miðbænum leggjast af
að stórum hluta. Þau fyrirtæki
sem helst leiti í miðbæinn núna
bjóði upp á þjónustu sem ekki er
bundin við tímann frá 10 til 18,
sem er gjaldskyldur tími Bíla-
stæðasjóðs.
Alfreð Þorsteinsson, borgar-
fulltrúi R-listans, segist ekki gera
neinn greinarmun á því hvort
peningarnir komi frá Bílastæða-
sjóði eða borgarsjóði. Hann segir
ekki á dagskrá að lækka stöðu-
mælagjald, eins og Sjálfstæðis-
flokkurinn vill. Gjaldið sé ekki
hærra hér en í öðrum borgum í
nágrannalöndunum. Alfreð telur
ekki að stöðumælagjaldið hafi
slæm áhrif á miðborgina. Stöðu-
mælar séu ákveðið stýritæki því
ef ekki væri tekið gjald myndu
bílastæðin alltaf vera upptekin.
trausti@frettabladid.is
LAUGAVEGURINN
Alfreð Þorsteinsson, borgarfulltrúi R-listans, segir það ekki á dagskrá að lækka stöðu-
mælagjald. Það sé ekki hærra hér en í öðrum borgum í nágrannalöndunum
Stöðumælagjöld
notuð í markaðsmál
Þróunarfélag miðborgarinnar fær 8 milljónir á ári frá Bílastæðasjóði til
markaðsmála. Sjálfstæðismenn segja að nær hefði verið að lækka stöðu-
mælagjaldið. Ekki á dagskrá Reykjavíkurlistans að lækka gjöldin.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T