Fréttablaðið - 26.09.2002, Blaðsíða 11
11FIMMTUDAGUR 26. september 2002
FLUTNINGAR Atlantsskip hafa fram-
lengt samning sinn við flutninga-
deild Bandaríkjahers um eitt ár
og mun fyrirtækið því áfram ann-
ast flutninga fyrir Varnarliðið á
Keflavíkurflugvelli.
Auk þessa hefur TransAtlantic
Lines, systurfélag Atlantsskipa,
gert þriggja ára samning við
Bandaríkjaher um flutninga á
milli Guantanamo Bay á Kúbu og
Jacksonville á Flórída. Sá samn-
ingur hljóðar upp á flutninga á
5.000 gámaeiningum á ári. Sam-
tals nema flutningar Atlantsskipa
og systurfélags þess fyrir Banda-
ríkjaher því um 8.300 gámaein-
ingum á ári.
Félögin hafa séð um flutninga
Varnarliðsins frá árinu 1998. Upp-
haflega var gerður fimm ára
samningur, sem var bundinn til
tveggja ára, en með ákvæði um
þrjár framlengingar. Framleng-
ingin nú er sú þriðja í röðinni.
Íbúðalánasjóður:
Sjö og hálfur
milljarður í
leiguíbúðir
HÚSNÆÐI „Við erum búnir að veita
lánsloforð fyrir sjö og hálfum
milljarði króna til bygginga
leiguíbúða í ár og gerum ráð fyr-
ir að upphæðin verði sú sama
fyrir næsta ár,“ segir Hallur
Magnússon talsmaður Íbúðalána-
sjóðs. Sjóðurinn lánar allt að 90
prósentum til bygginga leiguhús-
næðis en ranglega var frá því
greint hér í blaðinu fyrir
skemmstu að lánað væri allt að
100 prósentum til slíkra verk-
efna. „Vera má að misskilninginn
megi rekja til þess að hugsanlega
koma lífeyrissjóðir inn með 10
prósent aukalán til slíkra bygg-
inga í tengslum við sérstakt átak
til bygginga leiguhúsnæðis,“ seg-
ir Hallur.
Bandaríkjaher:
Samið við
Atlantsskip
ATLANTSSKIP
TransAtlantic Lines, systurfélag Atlantsskipa,
hefur gert þriggja ára samning við Banda-
ríkjaher um flutninga á milli Guantanamo
Bay á Kúbu og Jacksonville á Flórída
Ásta Ragnheiður:
Stefnir á
3.-4. sæti
FRAMBOÐ „Ég hef ákveðið að sækj-
ast eftir kjöri í annað sætið í öðru
hvoru kjördæmanna. Til þess þarf
ég öflugan stuðning í 3.-4. sæti list-
ans,“ segir Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir, þingmaður, um
markmið sín í væntanlegu próf-
kjöri Samfylkingar. Eitt prófkjör er
fyrir Reykjavíkurkjördæmin tvö.
Ásta segir í pistli á nýopnaðri
heimasíðu sinni að hún hafi ekki
hug á að blanda sér í baráttuna um
að leiða annað Reykjavíkurkjör-
dæmanna en sækist eftir öðru sæt-
inu svo þau gildi jafnaðarstefnunn-
ar sem hún hafi barist fyrir eigi ör-
uggan málsvara í Reykjavík.
DÓMSMÁL Tveir dómkvaddir mats-
menn telja að ættfræðigrunnur
Friðriks Skúlasonar ehf. og Ís-
lenskrar erfðagreiningar, Íslend-
ingabók, sé unnin upp úr frum-
heimildum. Þorsteinn Jónsson ætt-
fræðingur og Genealogia Islandor-
um reka nú dómsmál gegn fyrir-
tækjunum tveimur og krefjast
samtals um 618 milljóna króna í
skaða- og miskabætur fyrir meint
óheimil afnot af ættfræðiritum
sem þau eigi höfundarétt að.
Matsmennirnir tveir telja að
lýsing ÍE og Friðriks Skúlasonar á
því hvernig Íslendingabók er til-
komin sé rétt. Hefðu fyrirtækin
byggt grunninn á áður útgefnum
ritum í stað frumheimilda hefði
verkið reynst miklu erfiðara við-
fangs.
Þorsteinn og Genealogia telja
sig hafa sannanir fyrir því að við
vinnslu Íslendingabókar hafi ver-
ið nýtt höfundarréttarvernduð
ættfræðirit. Meðal annars hafi
Friðrik Skúlason sjálfur lýst
þeirri vinnu í útvarpsviðtölum.
Þetta megi einnig sjá af fréttaljós-
myndum.
Lögreglan í Madagascar hefurhandtekið alræmdan fyrrver-
andi hershöfðingja sem sakaður
er um að hafa staðið á bak við
ofbeldisherferð í landinu sem
Didier Ratsiraka, fyrrverandi
forseti landsins, stóð fyrir. Hers-
höfðinginn, Ancelin Coutiti að
nafni, hóf herferðina eftir að
Ratsiraka hrökklaðist frá völd-
um. Coutiti hafði verið eftirlýst-
ur í langan tíma áður en hann
náðist.
Lögreglumaður fórst og þríraðrir særðust þegar sprengja
sprakk í baskahéruðum Spánar í
fyrradag. Lögreglumennirnir
voru að kanna skilti við vegar-
brún, sem sprengja var tengd
við.
ERLENTMatsmenn í 618 milljóna króna ættfræðideilu:
Íslendingabók unnin
úr frumheimildum
FRIÐRIK SKÚLASON
Matsmenn segja að ættfræðigrunnurinn Ís-
lendingabók hafi verið unnin úr frumheim-
ildum en ekki byggður á höfundavernduð-
um ritum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI