Fréttablaðið - 26.09.2002, Side 14
Leikarinn Tom Hanks hefur tek-ið að sér aðalhlutverkið í nýj-
ustu mynd Cohen-bræðra, „The
Ladykillers.“ Mynd-
in er endurgerð
myndar með sama
nafni frá árinu 1955
þar sem Alec
Guinnes og Peter
Sellers fóru með að-
alhlutverkin. Mynd-
in mun gerast í Suð-
urríkjum Banda-
ríkjanna og fjallar um aldraða
konu sem leigir hópi þjófa her-
bergi í húsinu sínu. Þeir reyna síð-
an eins og þeir geta að losna við
konuna. Hanks er með fleiri járn í
eldinum því áður en hann leikur í
„The Ladykillers“ ætlar hann að
leikar í myndinni „Polar Express“
sem Robert Zemeckis leikstýrir.
Sú mynd fjallar um dreng og vini
hans sem trúa ekki á jólasveininn.
Chris Martin, söngvari hljóm-sveitarinnar Coldplay, hefur
tekið upp dúett með kanadíska tón-
listarmanninum Ron Sexsmith.
Lagið verður notað sem aukalag á
fimmtu breiðskífu
Sexsmith,
„Cobblestone
Runway“. Martin
hefur lengi verið
aðdáandi Sexsmith
og var ekki lengi að
grípa tækifærið er
honum bauðst að
syngja með honum.
Liam Gallagher, söngvari í Oas-is, kemur fram á nýjustu breið-
skífu hljómsveitarinnar Death in
Vegas. Lagið heitir „Scorpio Ris-
ing“. Í laginu má finna búta úr lag-
inu „Pictures of
Matchstich Men“
sem Francis Rossi
úr hljómsveitinni
Status Quo samdi
árið 1967.
Tónlistariðnað-urinn í Bret-
landi bindur mikl-
14 26. september 2002 FIMMTUDAGUR
THE SWEETEST THING kl. 8
LITLA LIRFAN - Stuttmynd kl. 4
PÉTUR OG KÖTTURINN 2 kl. 4 og 6
STÚART LITLI 2 m/ísl. tali kl. 4 og 6
Sýnd kl. 5.15, 8, 9 og 10.40 b.i. 14
Sýnd kl. 4.45, 7.30 og 10.10
Sýnd kl. 5, 8 og 10 b.i. 12
kl. 8SIGNS
kl. 6 og 8MAÐUR EINS OG ÉG
HARRISON´S FLOWERS kl. 8 og 10.30
24 HOUR PARTY P. kl. 10.30
LILO OG STITCH m/ísl. tali kl. 6
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
HAFIÐ kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 VIT433LILO OG STITCH kl. 4 og 6
VIT
430
LILO OG STITCH m/ísl. tali kl. 3.45 VIT429
SIGNS kl. 5.50, 8 og 10.10 VIT427
PLUTO NASH kl. 4, 8 og 10.10 VIT432
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 VIT 435
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 VIT 427
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 VIT 436
FRÉTTIR AF FÓLKI
KVIKMYNDIR Pizzustaðareigand-
inn Longfellow Deeds (Adam
Sandler) er vingjarnlegur maður
sem lifir fremur einföldu en
hamingjusömu lífi í smábænum
Mandrake Falls í New
Hampshire. Tilveru hans er snú-
ið við þegar honum er tilkynnt
að hann hafi erft 40 milljarða
dollara, nokkrar sjónvarpsstöðv-
ar, hafnarboltalið og einkaþyrlu
frá frænda sínum sem hann
þekkti aldrei.
Þrátt fyrir umskiptin breytist
Herra Deeds lítið. Hann flytur þó
til stórborgarinnar þar sem fjöl-
miðlar fylgja hinum nýbakaða
auðkýfingi við hvert fótmál. Þar
er fremst í flokki hin viðkunna-
lega Babe Bennett (Winona
Ryder) sem er staðráðin í því að
fá einn daginn vinnu í fréttaskýr-
ingaþættinum „60 minutes“. Yfir-
maður hennar skipar henni að
gera allt sem hún getur til þess að
grafa upp eitthvað gruggugt úr
fortíð herra Deeds. Hún reynir
því allt til þess að stela (...æi, ég
varð) tíma hans.
Einkaþjónn herra Deeds heit-
ir Emilio (John Turturro) og ger-
ir hann allt til þess að læðast
sem lymskulegast aftan að yfir-
manni sínum. Það sem herra
Deeds gerir sér enga grein fyrir
er það að illi viðskiptajöfurinn
Chuck Cedar (Peter Gallagher)
sem þykist vera vinur hans er
staðráðinn í því að gera allt til
þess að komast yfir auðæfin.
Adam Sandler segir að „Mr.
Deeds“ sé ekki endurgerð Ósk-
arsverðlaunamyndarinnar „Mr.
Deeds goes to town“ frá árinu
1936 heldur sé nýja myndin nú-
tímaútgáfa byggð á sömu sögu-
hugmynd. Hann fullyrðir að
hann og samstarfsfélagar sínir
hafi verið afar ófeimnir við
breytingar. Nýja útgáfan á því
að bera heilmikið stílbragð frá
Sandler. Báðar myndirnar fjalla
um það hvernig peningar geta
breytt öllu en ekki öllum. Það
var leikarinn Gary Cooper sem
fór með hlutverk hins góðhjart-
aða og einfalda Mr. Deeds í upp-
haflegu útgáfunni. Leikstjóri
þeirrar myndar, Frank Capra,
vann Óskarinn árið ‘37 fyrir
vinnu sína.
biggi@frettabladid.is
Peningar breyta
öllu en ekki öllum
kl. 5.45 OG 10.15
FILMUNDUR
BATTLE ROYALE
Skoðaðu Þetta!
Bæjarlind 14, sími 564 57 00
www.badstofan.is
„SANIT“ þýsk gæðavara
Upphengt salerni
með innbyggðum kassa.
Verð kr. 45.900 (allt settið)
útsölustaðir
kennsludiskarnir
Windows
Word
Excel
Outlook
2.990 kr stk.
BT
Fjarkennsla ehf. Sími: 511 4510
www.fjarkennsla.is
Sendum í póstkröfu
www.tolvuvirkni.net
netverslun
TÓNLIST
Það er dálítið erfitt að átta sigá fyrstu breiðskífu íslensku
hljómsveitarinnar Ske, „Life,
Death, Happiness & Stuff.“
Fuglahljómur, japanskur söngur,
harmonikku-og mandórínleikur,
breskt bítlarokk og sömpl úr bíó-
mynd; allt blandast þetta saman í
einn hrærigraut sem erfitt er að
henda reiður á. Frægasta lag Ske
til þessa, sem hefur margoft
hljómað í sjónvarpsauglýsingu
hér á landi, er lítið og sætt, sung-
ið af japanskri söngkonu. Lagið
gefur síður en svo rétta mynd af
innihaldi skífunnar. Í staðinn
fyrir að halda sig við sama létta
og þægilega gírinn ákveður
hljómsveitin að leita á kunnari
slóðir þar sem áhrifavaldarnir
leynast víða. Ske á þó marga
skemmtilega og ferska spretti í
lögum sínum, sér í lagi í hinu
Beta Band-lega „Stuff“.
Greinilegt er að liðsmenn
sveitarinnar hafa haft gaman af
því að búa til skífuna því spila-
gleðin skín í gegn auk þess sem
textarnir eru oft sniðugir. Til að
mynda er textinn í laginu „t-rex“
bráðskemmtilegur. Sundurleitni
skífunnar og sú staðreynd að
lögin eru mörg hver heldur
ófrumleg draga heildarútkom-
una hins vegar niður.
Freyr Bjarnason
Harmonikkuleikur
og breskt bítlarokk
SKE:
Life, Deth, Happiness & Stuff
Á morgun frumsýna Smárabíó, Laugarásbíó og Regnboginn gaman-
myndina Mr. Deeds með Adam Sandler í aðalhlutverki. Myndin er
lauslega byggð á Óskarsverðlaunamyndinni „Mr. Deeds goes to
town“ frá árinu 1936.
DÓMAR Í
ERLENDUM MIÐLUM:
Internet movie database - 5.7 af 10
Rotten tomatoes - 25% af 100% = Rotten
USA today - 2 1/2 stjarna af fjórum
KVIKMYNDIR Nýjasta kvikmynd
Madonnu, „Swept Away“, sem
Guy Ritchie, eiginmaður hennar,
leikstýrir, er „bráðfyndin án
þess að ætla sér það“. Þetta seg-
ir kvikmyndagagnrýnandi blaðs-
ins New York Post um myndina,
sem er endurgerð ítalskrar
myndar frá árinu 1974. Mynd-
inni hefur verið illa tekið af
gagnrýnendum og hefur því ver-
ið haldið fram að hún verði
frumsýnd á myndbandi í stað
þess að fara fyrst í kvikmynda-
hús. Hefur myndinni margoft
verið breytt vegna þessara
slæmu viðbragða. „Hún er í
sama klassa og sígildar myndir
eins og „Showgirls“ og „Glitter“,
sagði gagnrýnandinn.
Nýjasta mynd Madonnu og Guy Ritchie:
Bráðfyndin án
þess að ætla sér það
MADONNA OG GUY
Madonna og Guy Ritchie fá ekki góða
dóma fyrir myndina „Swept Away“.