Fréttablaðið - 05.10.2002, Blaðsíða 8
8 5. október 2002 LAUGARDAGUR
STJÓRNMÁL „Íslenska ríkið styrkir
stjórnmálastarfsemi innanlands
af töluverðum rausnarskap og má
ekki mikið auka þann stuðning,
svo ekki verði hægt að tala um að
hér á landi séu stjórnmálaflokk-
arnir ríkisreknir,“ sagði Davíð
oddsson í stefnuræðu sinni.
Hann sagði að í umræðum um
fjármál stjórnmálaflokkanna
hefðu sumir, af sláandi vanefnum,
reynt að gera sig heilagri en aðra
í þeim efnum.
„En marggefnar yfirlýsingar
þeirra um að upplýsa um þann
þátt í eigin ranni hafa verið orðin
tóm eða innihaldslaus í besta
falli,“ sagði Davíð og minnti á að
hann hefði orðað þá hugmynd að
ákveðið yrði með lögum að fyrir-
tækjum væri bannað að styrkja
stjórnmálaflokka.
„Þær hugmyndir hafa ekki
fengið góðar undirtektir af ein-
hverjum ástæðum. Við hljótum að
vera opin fyrir því að ræða aðrar
lausnir. Óþolandi er að pólitískir
loddarar reyni að gera starfsemi
stjórnmálaflokkanna tortryggi-
lega aftur og aftur án þess að geta
nefnt nokkur dæmi máli sínu til
stuðnings.“
Davíð sagði þýðingarmest að
reglur um fjármál flokka væru
skýrar og skiljanlegar. Úrræði um
hvernig bregðast ætti við ef út af
brygði yrðu að vera markviss.
Davíð Oddsson:
Vill skýrar reglur um
fjármál flokkanna
DAVÍÐ ODDSSON
Óþolandi að pólitískir loddarar reyni
að gera starfsemi stjórnmálaflokka tor-
tryggilega.
HEILBRIGÐISMÁL „Ég hef ekki haft
það á stefnuskránni að hækka
kostnaðarþáttöku sjúklinga.
Komugjöld til sérfræðinga voru
hækkuð fyrir rúmu ári og ég hef
ekki áform um
frekari hækkun
núna að neinu
marki. Við höfum í
ráðuneytinu verið
að skoða verðlags-
breytingar en það
er ekkert umtals-
vert. Það er engin kúvending í
þeim efnum á mínu borði,“ segir
Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og
tryggingaráðherra.
Magnús Pétursson, forstjóri
Landspítala háskólasjúkrahúss,
sagði í ræðu sem hann flutti fyrir
nokkru að allt benti til þess að fjár-
munir sjúkrahússins yrðu af
skornum skammti í næstu framtíð.
Því væri ekki útilokað að kostnað-
ur sem ríkið hefur borið af aðgerð-
um og meðferð sjúklinga verði
skipt öðruvísi, sjúklingar gætu
framvegis þurft að greiða sjálfir
meira af kostnaði við aðgerðir.
,,Stefna mín liggur alveg ljós
fyrir þegar kemur að gjaldtöku
sjúklinga. Ég hef dregið mörkin
við það að ef menn þurfa að leggj-
ast inn á spítala þá sé það sjúkling-
um að kostnaðarlausu. Hins vegar
er kostnaðarþáttaka ef menn njóta
þjónustu á göngudeildum og í
heilsugæslunni. Ég hef ekki léð
máls á því að taka upp innritunar-
gjöld á sjúkrahúsin eða að fólk
greiði hluta af aðgerðum sem
gerðar eru inni á sjúkrahúsum og
þarfnast innlagnar. Sjúklingar
greiða auðvitað hluta af aðgerðum
sem gerðar eru utan sjúkrahúsa og
á göngudeildum og einnig komu-
gjöld hjá sérfræðingum,“ segir
Jón Kristjánsson.
Forstjóri Landspítala háskóla-
sjúkrahúss sagði ennfremur að
ekki yrði lengur undan því vikist
að forgangsraða í heilbrigðisþjón-
ustunni.
„Varðandi forgangsröð í heil-
brigðisþjónustu og stefnu stjórn-
valda í þeim efnum þá vil ég minna
á að það er nýsamþykkt heilbrigð-
isáætlun þar sem flokkað er niður
í fjóra flokka allt eftir mikilvægi. Í
öðru lagi þá eru í lögum um rétt-
indi sjúklinga metnaðarfull
ákvæði í fyrstu grein laganna þess
efnis að sjúklingar eigi að fá þá
bestu lækningu sem völ er á. Og
það er mjög skýrt og klárt og hef-
ur ekki verið breytt ennþá,“ segir
Jón Kristjánsson.
the@frettabladid.is
Kúvending í gjaldtöku
ekki á mínu borði
Heilbrigðisráðherra hækkar kostnaðarþáttöku sjúklinga. Segir verðlags-
breytingar á komugjöldum til sérfræðinga til athugunar. Forgangsröð-
un sem kallað hefur verið eftir er til segir ráðherra.
JÓN KRISTJÁNSSON
Ekki á minni stefnuskrá að hækka kostnaðarþáttöku sjúklinga
Ég hef ekki
léð máls á því
að taka upp
innritunar-
gjöld
HVALVEIÐAR „Vilji Alþingis er skýr,
samanber þingsályktun sem sam-
þykkt var á 123. löggjafarþingi. Lög
banna ekki hvalveiðar heldur var
hvalveiðibanni hrundið í fram-
kvæmd 1984 með því að sjávaraút-
vegsráðherra stöðvaði útgáfu leyfa.
Það er ekkert því til fyrirstöðu að
hefja hvalveiðar að óbreyttum lög-
um fáist til þess leyfi sjávarútvegs-
ráðherra,“ segir Guðjón A. Krist-
jánsson, þingmaður Frjálslyndra.
Hann er fyrsti flutningsmaður
lagafrumvarps sem kveður á um að
ráðherra skuli gefa út hvalveiði-
leyfi, að uppfylltum almennum og
sérstökum skilyrðum.
Frumvarpið gerir ennfremur
ráð fyrir því að heimildir sjávarút-
vegsráðherra til að takmarka hval-
veiðar verði þrengdar verulega.
Bent er á að verulegum fjár-
munum hafi þegar verið varið í
kynningu erlendis á málstað Íslend-
inga eða nálægt 60 milljónum
króna. Þá verði á þessu og næsta ári
varið um 50 milljónum króna til
kynningarstarfa.
Gert er ráð fyrir að ráðgjöf Haf-
rannsóknastofnunarinnar verði
fylgt við ákvörðun aflamarks.
Talið er að hvalir éti árlega um
sex milljónir tonna af sjávarfangi á
hafsvæðinu umhverfis Ísland.
Þar af er talið að um tvær millj-
ónir tonna séu fiskmeti. Hrefnan er
atkvæðamest í fiskáti en talið er að
hún éti um 1,2 milljónir tonna af
fiskmeti á ári.
Guðjón A. Kristjánsson:
Ekkert því til fyrirstöðu
að hefja hvalveiðar
GUÐJÓN A. KRISTJÁNSSON
Má gagnrýna að ráðherra geti stöðvað
framgang laga með því einfaldlega að
neita að gefa útgáfu leyfa.
KOSTNAÐUR VIÐ KYNNINGU
Á MÁLSTAÐ ÍSLENDINGA
1999 9,8 milljónir
2000 14,4 milljónir
2001 33,9 milljónir
2002 25,0 milljónir
* 2003 25,8 milljónir
Samtals 108,9 milljónir
*samkv. frumvarpi til fjárlaga 2003
ORÐRÉTT
NÝJAR UPP-
GÖTVANIR
Mestu skiptir að
komast til botns í
þessu máli, þan-
nig að ekki verði
frekari deilur um
það.
Sturla Böðvarsson um rannsókn á Skerja-
fjarðarslysinu. Morgunblaðið 4. október.
SANNLEIKURINN MUN GERA
YÐUR FRJÁLSA
Lykilatriðið er að gera sjúklingn-
um grein fyrir því að hann geti
ekki haft áhrif á útkomuna.
Brynjólfur Sigurðsson kynnir kanadíska
lækningu við spilafíkn sem tekur 16 tíma.
DV, 4. október
HAUSINN OG STEINNINN
Matvöruverð hefur ekkert með
Evrópusambandið að gera.
Davíð Oddsson. DV, 4. október.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI