Fréttablaðið - 05.10.2002, Blaðsíða 24
Las í blaðinu um daginn að rit-stjórinn minn hefði farið út að
ganga með hundinn og skoðað nýja
alþingisskálann. Þeir kíktu inn um
glugga og sáu ekki neitt. Hundurinn
minn frétti af þessu og vildi líka
fara. Við fórum.
KOMUM BAKATIL að húsinu.
Þar voru tveir landsbyggðarþing-
menn að reykja. Allt var uppljómað
þó komið væri fast að miðnætti.
Davíð hafði verið að flytja stefnu-
ræðuna. Allir mættir í sínu fínasta
pússi. Og flestir í nýja alþingisskál-
anum sem alsettur er gleri ef frá
eru taldar grjóthleðslur á göflum.
Þarna stóðum við hundurinn í
myrkrinu og horfðum inn í skálann.
Sáum allt en enginn sá okkur.
Á KAFFITERÍUNNI sat Össur
Skarphéðinsson með samloku og
saug Svala úr röri. Hélt hann væri
einn en það var af og frá. Við vorum
fyrir utan. Í hinum endanum stóð
Halldór Ásgrímsson og speglaði sig
í glerinu. Var að laga bindishnútinn.
Hélt líka að hann væri einn. Mér
leið eins og gluggagægi
Á GLERBRÚ sem tengir skálann
við Alþingishúsið var Kolbrún Hall-
dórsdóttir að laga sokkabuxurnar
sínar. Fyrir allra augum. Guðni
Ágústsson klóraði sér á bak við
eyrað. Geir Haarde pússaði gleraug-
un sín. Þetta var eins og fiskabúr.
Hundinum var skemmt. Flaug í hug
hvort glerið væri skothelt.
LÁTUM VERA um miðjan dag
þegar skyggnið að utan og inn er
verra. En í myrkri og uppljómaður
er alþingisskálinn eins og sýningar-
gluggi lýðræðisins og ekki víst að
lýðræðið þoli það til lengdar. Eins
gott að gufubaðið í kjallaranum er
ekki úr gleri. Arkitektarnir höfðu þó
vit á því. Ætli þingmennirnir fái
handklæði merkt Alþingi til afnota?
Og kannski sápur líka?
ALLT er þetta mjög vandað og hlýt-
ur að kalla á virðingu þó hún kosti
810 milljónir. En ef einhvers staðar
þarf gardínur þá er það þarna. Þing-
mannanna vegna.
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Sýningar-
glugginn
Bakþankar
Eiríks Jónssonar
Nýr vörulisti - nýjar vörur - nýjar hugmyndir
Laugardagar ..................kl. 10:00 - 18:00
Sunnudagar....................kl. 12:00 - 18:00
Mánudagar - föstudaga...kl. 10:00 - 18:30((
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IK
E
18
77
3
10
.2
00
2
790 kr.
NAGG hnífablokk með 5 hnífum