Fréttablaðið - 05.10.2002, Blaðsíða 14
14 5. október 2002 LAUGARDAGUR
STÚART LITLI 2 m/ísl. tali kl. 2, 4 og 6
PÉTUR OG KÖTTURINN 2 kl. 2
K19 kl. 8 og 10.50
XXX kl. 5.15, 8 og 10.40
Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10.50
Sýnd kl. 5, 8 og 10.50 Sýnd kl. 3.30, 5.50, 8 og 10.10 kl. 4, 6, 8 og 10FÁLKAR
kl. 3, 5.30, 8 og 10.30BOURNE IDENTITY
1.50 og 3.40 LILO OG STITCH m/ísl. tali
kl. 5.50 og 10 SIGNS
kl. 2VILLTI FOLINN m/ísl. tali - 200 kr.
kl. 2 HJÁLP ÉG ER FISKUR m/ísl. tali
MAÐUR EINS OG ÉG kl. 4 og 8 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Sýnd kl. 3, 5.45, 8 og 10.15
LILO OG STITCH kl. 2 VIT430
LILO OG STITCH ísl. tal 1.45, 3.45 og 6 VIT429
SIGNS kl. 8 og 10.10 VIT427
HAFIÐ kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.10 VIT433
PLUTO NASH kl. 2 VIT432
MAX KLEEBLE´S... kl. 2, 4 og 6 VIT441
BOURNE IDENTITY kl. 8 og 10.30 VIT427
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10 VIT 435
Sýnd kl. 3.40, 5.30, 8 og 10.30 VIT 444
Sýnd kl. 2, 5.30, 8 og 10.30 VIT 445
FRÉTTIR AF FÓLKI
SKEMMTANALÍF Þó að það virðist ef
til vill undarleg tilhugsun í dag
þá var tónlistarlífið fyrir 7 árum
mun ríkara en nú. Ástæðan var
helst sú að í þá daga gátu sveitir
haldið tónleika um allan bæ. Síð-
an færðist gredda landsmanna
frá því að heyra lifandi tónlistar-
flutning í öllu frumstæðara horf.
Plássin fylltust af erlendum, og
síðar innlendum, nektardans-
meyjum og hafa íslenskir tón-
listarmenn margir þurft að berj-
ast fyrir því að komast að á þeim
fáum stöðum sem sinntu rokkinu
áfram. Nú eru nektardansmeyj-
arnar komnar í fötin, plássin aft-
ur orðin að tónleikastöðum og
tónlistarlíf miðborgarinnar því
við það að rísa til eldri hæða á
nýjan leik.
Skemmtistaðurinn „Barinn“
opnaði á dögunum þar sem nekt-
ardansstaðurinn Vegas var rek-
inn. Fyrir nokkrum árum var
þar staðurinn „Tveir vinir og
annar í fríi“ sem var með vin-
sælli tónleikastöðum bæjarins.
Skemmtanastjóri staðarins, Sig-
urjón Skæringsson, ætti að vera
vanur rokkinu því hann rak á
sínum tíma Rósenbergkjallar-
ann. Sá staður gekk í daglegu tali
undir nafninu „Musteri rokks-
ins“.
„Það má segja að þessi staður
sé það sem Rósenberg hefði orð-
ið ef hann hefði verið stærri og
staðsettur á betri stað,“ segir
Sigurjón um Barinn. „Rósenberg
var lítill staður og bauð því upp á
að einn hópur yfirtæki hann.
Þessi staður er of stór til þess.“
Sigurjón segir að staðurinn
verði opinn öll kvöld vikunnar
og að fjölbreytnin verði höfð að
leiðarljósi í hljómsveitavali. „Ég
keyrði „Musteri rokksins“ á sín-
um tíma af hugsjón. Nú er það
hins vegar að gerast aftur að
fólk sem fer á skemmtistaðina
er að fá leið á diskótekunum.
Fólk er búið að fá nóg og það
þarf að svara því. Ég er fyrst og
fremst að reyna gera skemmti-
legan stað fyrir sem flesta. Það
verða líka hljómsveitir sem ég
fíla ekki sjálfur.“
Ekki er búið að henda út öll-
um merkjum nektardansins enn.
„Það er ein súla eftir í húsinu.
Það er með ráðum gert. Við vilj-
um minna á þetta. Fyrsta kvöld-
ið í húsinu voru menn og konur
að sveifla sér á þessu. Fólki
finnst þetta skemmtilegt,“ segir
Sigurjón að lokum.
biggi@frettabladid.is
Bruce Paltrow, faðir leikkon-unnar Gwyneth Paltrow, er
látinn, 58 ára að aldri. Bruce,
sem var þekktur
framleiðandi og
leikstjóri í
Hollywood, lést á
sjúkrahúsi í Róm,
þar sem hann var
staddur til að
halda upp á þrí-
tugsafmæli dótt-
ur sinnar. Bruce,
sem þjáðist af krabbameini í
hálsi, er talinn hafa látist úr
hjartaáfalli.
Þann 26. nóvember verður gef-ið út fimm diska box með
efni eftir söngvarann Jeff
Buckley, sem
drukknaði 30 ára
gamall árið 1997.
Í boxinu verður
að finna fimm
EP-plötur sem
gefnar voru út í
tengslum við út-
gáfu fyrstu og
einu breiðskífu
kappans, Grace, frá árinu 1994.
Þess má geta að 15. október
kemur út platan „Songs to No
One 1991-1992,“ sem hefur að
geyma óútgefið efni sem
Buckley tók upp með Gary
Lucas, fyrrverandi gítarleikara
hljómsveitarinnar „Captain
Beefheart.“
Útgáfu á nýrri safnplötuhljómsveitarinnar Nirvana
hefur verið flýtt um tvær vikur í
Bretlandi. Platan átti að koma út
11. nóvember en kemur nú út 28.
október. Á plötunni er m.a. að
finna lagið „You Know You’re
Right,“ sem tekið var upp þrem-
ur mánuðum áður en Kurt
Cobain, forsprakki Nirvana, lést.
Laginu var lekið á Netið í síð-
asta mánuði og skömmu síðar
fóru útvarpsstöðvar víðsvegar
um heiminn að spila lagið.
TÓNLIST
Rokkið tekur við
af nektardansinum
Nú þegar strippbúllum miðbæjarins hefur verið rutt til hliðar fyllast
gamlir tónleikastaðir af tónum að ný. Einn þeirra er „Barinn“, Laug-
arvegi 45, sem hét áður Tveir vinir og annar í fríi.
SIGURJÓN SKÆRINGSSON
Segir að fólk eigi það til að sveifla sér á einu súlunni sem enn er eftir á gamla Vegas.
Fyrir ykkur sem voruð að bíðaeftir nýjustu stuðskífu
sprelligosans Beck er nýja plat-
an líklegast mikil vonbrigði.
Beck er ekki í stuði.
Fyrir okkur hin, sem höfum
lengi leyft yfirveguðum og ró-
legum tónum Nick Drake,
Bonnie „Prince“ Billy, Pink
Floyd og rólegri lögum Radi-
ohead að dáleiða okkur, hefur
Beck náð að brugga afbragðs
borðvín. Bragðið er blanda af
fyrrnefndum tónlistarmönnum.
Hér notar Beck angurværari
raddbeitingu en áður og textarn-
ir virðast kafa dýpra í einkalíf
kappans en fyrr. Platan er ólík
flestu öðru sem hann hefur tek-
ist á við áður en svipar þó kanns-
ki helst til plötunnar „Mutations“
frá ‘98. Hér leitar hann þó kanns-
ki meira í áhrif frá áttunda ára-
tugs rokksveitum.
Hér vinnur Beck með fyrrum
upptökustjóra Radiohead (Nigel
Godrich sem gerði m.a. „O.K.
Computer“) og heyrast einkenni
hans víðsvegar á gripnum.
Klukknaspilið, delay-haf og
fleiri undarleg hljóð minna um
margt á þá merku sveit.
Beck virðist skipta um skap á
hverri plötu og ætlar greinilega
að leggja sprelligosann á hilluna
í bili. Ef þið getið tekið kappann
trúanlegan á þessari plötu verð-
launar hún ykkur þolinmæðina
þúsundfalt.
Birgir Örn Steinarsson
BECK: Sea Change
TÓNLIST Graham Coxon, gítarleik-
ari hljómsveitarinnar Blur, segir
að hann hafi verið rekinn úr sveit-
inni eftir að hafa brotnað niður
andlega. Enginn meðlima hljóm-
sveitarinnar hefur fram til þessa
viljað staðfesta að Coxon sé hætt-
ur í sveitinni.
Coxon sagði í viðtali við tónlist-
artímaritið Q að hann hefði farið
tvisvar á síðasta ári á sjúkrahús
vegna vandamála tengdum
drykkju og þunglyndi. Hann seg-
ist ekki hafa lent í rifrildi við fé-
laga sína í Blur og það hafi því
ekki valdið brotthvarfi hans úr
sveitinni. Sagðist Coxon hafa hætt
í Blur í síðasta mánuði eftir að
umboðsmaður sveitarinnar hring-
di í hann og bað hann um að hætta.
„Það hafði eitthvað að gera með
viðhorf mitt,“ sagði Coxon. „Mér
fannst ég samt vera að vinna mína
vinnu af heiðarleika en kannski
rugluðust þeir á hugtökunum
heiðarleiki og viðhorf.
Beck í ástarsorg
Graham Coxon,
gítarleikari Blur:
Rekinn
eftir andlegt
áfall
COXON
Graham Coxon er hættur í Blur. Hann hef-
ur átt við vandamál tengd þunglyndi og
drykkju að stríða.
James Earl Jones:
Verður
í næsta
Stjörnu-
stríði
KVIKMYNDIR Leikarinn James Earl
Jones, sem ljáði Svarthöfða rödd
sína í fyrstu þremur Stjörnu-
stríðsmyndunum, fer með hlut-
verk í næstu
Star Wars-
mynd, „Epis-
ode III.“ Earl
sagði í nýlegu
viðtali að leik-
stjórinn Geor-
ge Lucas hefði
beðið hann um
að fara með
hlutverk í síð-
ustu fimm mínútum myndarinn-
ar. Myndin fjallar um það er
Jedi-riddarinn Anakin gengur
myrkraöflunum á hönd. Talið er
að myndin endi á því er Anakin
breytist í Svarthöfða. Tökur á
„Episode III“ hefjast á næsta
ári.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T