Fréttablaðið - 05.10.2002, Blaðsíða 13
13LAUGARDAGUR 5. október 2002
14.945 kr
Áður 19.982 kr
TILBO
Ð
Sérfræðingur
frá Hitachi
kynnir nýjungar
Vörukynning
í Skútuvogi í dag kl. 11 - 14
16.995 kr
Áður 23.556 kr
BORHAMAR
HLEÐSLUBORVÉL OG LJÓS
TILBO
Ð
HITACHI
POWER TOOLS
DH20PB
DS12DVF
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
U
S
18
97
2
10
/2
00
2
FÓTBOLTI Leikmenn enska úrvals-
deildarliðsins Chelsea, sem Eiður
Smári Guðjohnsen leikur með,
hafa beðið áhangendur sína afsök-
unar á óvæntu tapi liðsins gegn
norska liðinu Viking Stafangri í
síðari leik liðanna í Evrópukeppni
félagsliða í fyrrakvöld. Leikurinn,
sem fór fram í Noregi, endaði með
4:2 sigri Viking og samanlagt vann
liðið með fimm mörkum gegn fjór-
um. Það var Erik Nevland sem
tryggði Viking áframhaldandi
veru í keppninni með öðru marki
sínu í leiknum þegar aðeins þrjár
mínútur voru til leiksloka. „Ég
veit ekki hvað ég get sagt,“ sagði
Gianfranco Zola, Ítalinn knái í liði
Chelsea eftir leikinn. „Ég finn til
með öllum áhangendum liðsins
sem gerðu sér ferð á leikinn.“
Claudio Ranieri, knattspyrnu-
stjóri Chelsea, sagðist ekki vera
reiður út í frammistöðu varnar-
manna sinna í leiknum. Sagði hann
þá vera unga að árum. „Ég er afar
ánægður með leik minna manna.
Við spiluðum vel og vorum betri
aðilinn í leiknum. Við gerðum hins
vegar mikið af mistökum og gáf-
um þeim fjögur mörk.“
Þetta er þriðja árið í röð sem
Chelsea fellur snemma út úr
Evópukeppninni. Skemmst er að
minnast taps liðsins gegn ísra-
elska liðinu Hapoel Tel-Aviv í
fyrra.
Leikmenn Chelsea:
Biðjast afsökunar á
slakri frammistöðu
BARÁTTA
Erik Nevland, leikmaður Viking, í baráttu við
Gianfranco Zola, Ítalann í liði Chelsea.
Nevland skoraði tvö mörk í leiknum, það
síðara þegar þrjár mínútur voru til leiksloka.
ÍÞRÓTTIR UM HELGINA
LAUGARDAGUR
13.25 RÚV
Þýski fótboltinn
13.45 Stöð 2
Enski boltinn
(Southampton - Man. City)
14.00 Vestmannaeyjar
Esso-deild kvenna
(ÍBV - Fram)
14.30 Ásgarður
ESSO- deild kvenna
(Stjarnan - Fylkir/ÍR)
16.00 KA-heimilið
ESSO-deild kvenna
(KA/Þór - FH)
16.00 Stöð 2
Alltaf í boltanum
16.00 RÚV
EM í handbolta
16.30 Víkin
ESSO deild kvenna
(Víkingur - Valur)
16.30 Ásgarður
Esso deild karla
(Stjarnan - ÍBV)
16.30 Höllin Akureyri
Esso-deild karla
(Þór Ak. - UMFA)
17.00 Sýn
Toppleikir (Toppleikir)
22.35 Sýn
Hnefaleikar - MA Barrera
(Erik Morales - MA Barrera)
SUNNUDAGUR
12.45 Sýn
Enski boltinn
(Arsenal - Sunderland)
14.40 Stöð 2
Mótorsport (e)
14.55 Sýn
Enski boltinn
(Liverpool - Chelsea)
17.00 RÚV
Markaregn
17.00 Sýn
Meistaradeild Evrópu
18.00 Sýn
Torfærutröll á Suðurskautinu
20.00 Digranes
Esso-deild karla
(HK - ÍR)
HANDBOLTI „Leikurinn leggst vel í
mig og við hlökkum mikið til
verkefnisins,“ segir Ágúst Þór Jó-
hannsson, þjálfari karlaliðs
Gróttu/KR í handbolta, sem leikur
tvo Evrópuleiki við úkraínska lið-
ið Switlotechnik Brovary um
helgina. Báðir leikirnir verða háð-
ir á heimavelli Gróttu/KR í
íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi og
hefst fyrri leikurinn klukkan 16 í
dag. „Við erum bara mjög spennt-
ir. Þetta lið er búið að vera í Evr-
ópukeppninni síðustu ár en við
erum hins vegar að taka þátt í
fyrsta skipti. Reynslan ætti því að
vera þeirra megin en á móti kem-
ur að við höfum heimavöllinn. Það
er bara vonandi að fólk fjölmenni
á leikina og styðji drengina til sig-
urs,“ segir Ágúst.
Ágúst segist ekki vita mikið
um úkraínska liðið. „Eins og stað-
an er í dag þá eru þeir efstir í
úkraínsku deildinni og hafa
reynslu úr Evrópukeppninni þan-
nig að þetta ætti að vera nokkuð
öflug lið. Það er ljóst að þetta
verður erfitt en engu að síður á
þetta að vera skemmtilegt og við
stefnum að því að komast áfram,“
segir Ágúst.
Grótta/KR keppir við Switlotechnik Brovary:
Reynslan
þeirra megin
ÁGÚST
Ágúst á von á skemmtilegum leikjum
um helgina.
FÓTBOLTI Atli Eðvaldsson, lands-
liðsþjálfari í knattspyrnu, segir
ekki útilokað að Eyjólfur Sverris-
son, leikmaður Herthu Berlín,
leiki aftur með landsliðinu.
Eyjólfur hætti sem kunnugt er að
leika með landsliðinu í fyrra.
„Ég ræddi síðast við Eyjólf fyr-
ir tveimur dögum, áður en lands-
liðshópurinn var kynntur,“ sagði
Atli á blaðamannafundi sem
Knattspyrnusamband Íslands
boðaði til í gær. „Hann er meiddur
sem stendur en við munum ræða
aftur saman í mars fyrir útileik-
inn gegn Skotum.“ Atli segist hafa
leitað til Eyjólfs þegar ljóst var að
Ísland væri með Þýskalandi í riðli
í undankeppni Evrópumótsins
sem fram fer í Portúgal árið 2004.
Ljóst er koma Eyjólfs gæti haft
mikið áhrif á landsliðið. Hann hef-
ur verið leiðtogi liðsins á undan-
förnum árum og hefur skarð hans
enn ekki verið fyllt.
Fyrsti leikur Íslands verður
gegn Skotum á Laugardalsvelli
eftir viku. Landsliðsþjálfarinn
segir liðið ætla sér sigur og að
hann hafi sett sér þrjú markmið
fyrir undankeppnina. Að halda
liðinu í þriðja styrkleikaflokki,
vinna Skota og koma liðinu í úr-
slitakeppnina.
Hermann Hreiðarsson, leik-
maður Ipswich Town, meiddist í
baki um síðustu helgi og var fjar-
ri góðu gamni þegar lið hans lék í
Evrópukeppni félagsliða í fyrra-
dag. Ekki er talið líklegt að hann
verði í leikmannahópi Ipswich
sem mætir Wimbledon um helg-
ina.
Íslenska landsliðið í knattspyrnu:
Eyjólfur inni
í myndinni
NÝR BÚNINGUR
Nýr landsliðsbúningur, frá errea, var kynntur á blaðamannafundinum í gær.
EYJÓLFUR SVERRISSON
Gæti komið aftur inni í landsliðshópinn.
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Mokkajakkar og kápur,
ullarkápur stuttar og síðar.
Fallegar úlpur, hattar og húfur.
Kanínuskinn kr. 2.900
Nýjar vörur
Opið 9-18
virka daga
og 10-15
laugardaga.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T