Fréttablaðið - 05.10.2002, Blaðsíða 16
5. október 2002 LAUGARDAGUR
SUNNUDAGURINN
6. OKTÓBER
MYNDLIST Myndlistardeild Listahá-
skóla Íslands er elsta deild skól-
ans þó hún sé ekki nema þriggja
ára. Hún stendur hins vegar á
gömlum grunni þar sem LHÍ
varð til árið 1999 þegar hann yf-
irtók nemendur Myndlistar- og
handíðarskólans. Kristján Stein-
grímur Jónsson, deildarforseti,
segir að frá stofnun hennar hafi
nýtt kennsluskipulag verið
byggt upp í breyttu umhverfi.
Námið í myndlistardeildinni er
þriggja ára nám til B.A. gráðu og
er um 30% fræðilegt og 70% list-
sköpun. „ Fræðileg kennsla hef-
ur verið efld til muna frá því
sem áður var þó enn sé lögð
áhersla á tækni og aðferðir enda
eru verkstæði skólans mun öfl-
ugri en þau voru í Myndlistar- og
handíðarskólanum.“
Breytingarnar má rekja til
þess að námið er komið á há-
skólastig. „Inntökuskilyrði eru
einnig orðin strangari og við ætl-
umst til að nemendur hafi lokið
ákveðnu grunnámi. Þetta er nám
sem áður var veitt í Myndlistar-
og handíðarskólanum en fólk
sækir það nú á listabrautir
ákveðinna framhaldsskóla eða í
aðra myndlistarskóla.“
Nemendur við deildina eru 90
eins og er en verða 72 í framtíð-
inni. Kennarar eru um 40 þar af
10 erlendir. Kristján segir það
framtíðarmarkmiðið er að bæta
við tveggja ára mastersnámi
sem verður þá væntanlega al-
þjóðlegt og í samvinnu við er-
lenda skóla. „Þetta myndi laða
fleiri erlenda nemendur að skól-
anum en það er þróun sem við
viljum sjá enda hagnast allir á
því að fjölbreytnin hérna sé sem
mest.“
Námið við deildina er ekki
deildarskipt heldur leggur hver
nemandi áherslu á þann miðil
sem hann telur henta sér best.
Verkstæði skólans eru fjögur og
þar njóta nemendur aðstoðar
fagmanna við lausnir verkefna.
Kristján segir val nemenda bein-
ast mjög að nýmiðlum; netinu,
hljóð- og myndbandavinnslu.
„Málverkið heldur þó alltaf sínu
og er langt því frá dautt. Við-
fangsefni nemenda skipta þó
auðvitað mestu máli og áherslan
er lögð á að miðillinn þjóni inn-
takinu en ekki öfugt.“
Elísabet Ó. Guðmundsdóttir
og Halldór H. Guðmundsson eru
á öðru ári í myndlistardeild og
hafa lagt málverkið fyrir sig.
Þau taka undir það að það sé
mikið málað í skólanum. „Við
köllum okkur Leónörda þar sem
við erum sprottin upp úr
minimalisma og tökumst á við
póst-módernísk gildi og ruglið
sem er allsráðandi“, segir Hall-
dór. „Við reynum svo auðvitað að
koma einhverri reglu á óreiðuna
með verkum okkar.“
thorarinn@frettabladid.is
Myndlistarnemar
í sláturhúsi
Myndlistardeild LHÍ er til húsa í SS byggingunni við Lauganesveg.
Þar vinna 90 nemendur að list sinni og beina sjónum sínum í auknum
mæli að miðlun á Internetinu. Málverkið lifir engu að síður góðu lífi
og krakkarnir sem skreyta strigann ætla sér stóra hluti.
ELÍSABET Ó. GUÐMUNDSDÓTTIR
Leónördarnir segjast vera framtíðarvon myndlistarinnar á Íslandi. Þeir sinna myndlist-
inni af ástríðufullum metnaði og ætla sér að verða kynslóðabetrungar.
FUNDIR
15.00 Í Listasafni Íslands verður heim-
ildarmynd um ævi Edwards
Steichen, eins fremsta ljósmynd-
ara 20. aldarinnar sýnd.
UPPÁKOMUR
14.00 Íslandsmeistaramótið í Svarta-
Pétri fer fram á Sólheimum í
Grímsnesi. Mótið er haldið í þrett-
ánda sinn. Stjórnandi mótsins er
Edda Björgvinsdóttir leikkona en
það er öllum opið.
LEIKHÚS
14.00 Jón Oddur og Jón Bjarni eru
sýndir á Stóra sviði Þjóðleikhúss-
ins.
14.00 Honk! Ljóti Andarunginn er
sýndur á Stóra sviði Borgarleik-
hússins.
20.00 And Björk of course er sýnt á
Nýja sviði Borgarleikhússins.
20.00 Veislan er sýnd á Smíðaverkstæði
Þjóðleikhússins.
21.00 Beyglur með öllum er sýnt í
Iðnó.
21.00 Sellófon er sýnt í Hafnarfjarðar-
leikhúsinu.
MESSUR
11.00 Drengjakór Neskirkju syngur við
messu í kirkjunni undir stjórn
Friðriks S. Kristinssonar. Nýr org-
anisti safnaðarins, Steingrímur
Þórhallsson verður boðinn vel-
kominn til starfa. Þetta er fyrsta
messa kórsins að þessu hausti en
hann mun syngja fyrsta sunnudag
í hverjum mánuði í vetur.
20.00 Fyrsta kvöldmessa haustsins
verður í Neskirkju. Þorvaldur
Halldórsson, syngur og leiðir lof-
gjörð.
20.00 Fyrsta Léttmessa vetrarins verður
í Árbæjarkirkju. Hreimur söngvari
úr hljómsveitinni Landi og sonum
leiðir sönginn ásamt söngkonun-
um Erlu Björgu og Rannveigu
Káradætrum en þeim til halds og
trausts verður gítarleikarinn Ómar
Guðjónsson.
20.30 Dægurlagamessa verður haldin í
Hafnarfjarðarkirkju. Hljómsveit,
skipuð þeim Andreu Gylfadóttur,
Eysteini Eysteinssyni, Magnúsi Ein-
arssyni og Jens Hanssyni leikur tón-
list. Tónlistin byggir á hefðbundn-
um sálmum sem hafa verið færðir
í búning þekktra dægurlaga sam-
tímans, laga sem allir kannast við.
TÓNLEIKAR
15.00 Eistneska söngkonan Margot Kiis
spilar ásamt hljómsveit á Kaffi
Reykjavík.
17.00 Kammerkórinn Schola cantorum
syngur í Digraneskirkju undir
stjórn Harðar Áskelssonar. Þetta
eru fyrstu tónleikar kórsins á Ís-
landi síðan hann hreppti silfur-
verðlaun í alþjóðlegri kórakeppni
í Gorizia á Ítalíu í sumar. Á efnis-
skránni eru verk sem kórinn söng
í keppninni og spannar tónlistin
um 300 ár.
20.00 Píanótónleikar Jaromír Klepá
verða í Salnum Kópavogi. Miða-
verð er krónur 1500.
20.30 Lokatónleikar Jazzhátíðar
Reykjavíkur verða á Broadway.
23.00 Gummi P Bluesband leikur á
Vídalín í Aðalstræti. Hljómsveitina
leiðir Guðmundur Pétursson sem
leikur á gítar og syngur, Jakob
Smári Magnússon leikur á bassa
og Arnar Geir Ómarsson leikur á
trommur.
Bubbi Morthens og Hera spila í Höll-
inni Vestmannaeyjum.
SÝNINGAR
Annu Wilenius, Karla Dögg Karlsdóttir
og Sólrún Trausta Auðunsdóttir sýna í
listasafni ASÍ við Freyjugötu 41. Yfirskrift
sýningarinnar er, Hugmyndir um Frelsi /
Theories of Freedom. Sýningin stendur
yfir til 20 október. Listasafn ASÍ er opið
alla daga nema mánudaga. Aðgangur er
ókeypis.
Í Listasafni Sig-
urjóns Ólafsson-
ar hefur verið
opnuð vetrarsýn-
ing sem ber heit-
ið Andlitsmyndir
og afstraksjónir.
Á sýningunni eru
mörg helstu lykil-
verk Sigurjóns allt
frá 1934 fram til
síðustu æviára
listamannsins.
Sýningin sem
stendur til 30. mars 2003 er opin um
helgar milli kl. 14 og 17.
HALLDÓR H. GUÐMUNDSSON
Kann vel við sig í gamla SS húsinu.
„Skólar eru ekki hús heldur fólk og þetta
gæti vel verið framtíðarhúsnæði LHÍ. Það
myndi örugglega gleðja grænmetisætur
þar sem við hefðum þá breytt kjötvinnslu
SS í allsherjar listahús.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI
Útsölu-
marka›ur
Topshop
í fullum gangi
Ótrúlegt ver›
LÆKJARGATA
TOPSHOP
Dæmi:
Dömu bolir 500 kr.
Peysur 1.000 kr.
Herra skyrtur 1.200 kr.
Buxur 1.200 kr.
Dömujakkar 1.800 kr.
Herrajakkar 3.500 kr.
Opi› kl. 13.00-18.00
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
P
18
64
1
VERÐHRUN
Rýmum verslunina
fyrir nýjum vörum
50% AF ÖLLU Í BÚÐINNI.
Tilvalið tækifæri til að kaupa jólagjafir.
Ekta pelsar og leður.
Handunnin sófasett, innskotsborð,
speglar, barir, stakir stólar.
Handunnin rúmteppi, dúkar, púðaver.
Handmálaðar styttur og lampar.
Samkvæmiskjólar, og margt fleira.
Útsalan hófst 1. okt.
Opið virka daga 11 - 18.
Laugardaga 11 -15.
Sunnudaginn 6. okt 13 - 16.
Hvergi betri kaup. Verið velkomin.
Sigurstjarna (Bláu húsin Fákafeni)
Sími 5884545