Fréttablaðið - 05.10.2002, Blaðsíða 22
22 5. október 2002 LAUGARDAGUR
ÓKEYPIS
Fréttablaðið og Skjár einn.Engin áskrift. Engin útgjöld.
Ánægjan ein. Og fróðleikur.
Morgunblaðið kostar 2.100 krón-
ur á mánuði, DV 2.200 krónur og
Stöð 2 4.290 krónur. Samtals
8.590 krónur. Skylduáskriftin að
Ríkisútvarpinu er svo 2.250
krónur á mánuði. Með því að not-
ast eingöngu við Skjá einn og
Fréttablaðið í fjölmiðlaneysl-
unni má spara 103.080 krónur á
ári. Það er góð Spánarferð fyrir
tvo. Ef lesefnið í Fréttablaðinu
dugar ekki má grípa til auglýs-
ingabæklinga frá Rúmfatala-
gernum, Hagkaupum og Elco
sem einnig er dreift ókeypis. Þar
er ýmislegt fróðlegt að finna og
ljósmyndir í lit. Og ef þarf að
bæta við Skjá einn þá er Ríkis-
sjónvarpið til staðar. Þú kemst
ekki hjá því að hafa það frekar
en rafmagn og hita. Að öllu sam-
anlögðu: Valið er einfalt.
Bubbi hefur átt heima á Sel-tjarnarnesi síðastliðinn 12 ár,
er með útsýni yfir Bessastaði, og
líður hvergi betur. „Það hafa eng-
ir titlar raunverulega þýðingu,“
svarar Bubbi aðspurður um gildi
nýja titilsins. „Hins vegar er
þetta ákveðin viðurkenning á því
sem ég hef verið að gera. Fyrir
það er ég þakklátur. Það er alltaf
gaman af því að fólk skuli bera
virðingu fyrir því sem maður
gerir.“
Upphafslag nýju plötunnar
hans Bubba „Sól að morgni“, sem
kemur út á mánudag, heitir „Við
Gróttu“. Það er þegar farið að
óma á ljósvakanum. Lagið fjallar
um göngutúr um Gróttusvæðið
sem Bubbi segir flottasta úti-
vistasvæði höfuðborgarsvæðis-
ins. „Að labba þangað um sumar
eða vetur er frábær skemmtun.
Ég uppgötvaði Gróttu fyrsta
sumarið sem ég var hér. Þá var
ég kominn heim. Í laginu er ég að
mæra ástina í lífi mínu. Ég er
ekki fyrsti tónlistarmaðurinn, og
alveg örugglega ekki sá síðasti,
til að gera það.“
Bubbi stjórnaði upptökum á
nýju plötunni sjálfur en það hef-
ur hann ekki gert áður. Hann hef-
ur heldur aldrei verið jafn snögg-
ur í hljóðverinu. Gekk frá öllu á
innan við 74 klukkustundum, sem
þykir býsna stutt stopp. Bubbi
lýsir tónunum á nýju plötunni
sem þjóðlagarokki. Hluta tók
hann upp ásamt hljómsveit sinni
Stríð & Frið en í nokkrum lag-
anna er hann einn með kassagít-
arinn. Textalega virðist Bubbi
leita meira til heimsins innan
dyrastafsins en þjóðfélagsins
fyrir utan. Bubbi hljómar afar
þakklátur fyrir tilveru sína.
Hamingjan leynir sér ekki.
„Það ríkja mjög jákvæðir
straumar á þessari plötu. Ég er
til dæmis að skrifa um þá gleði
að eiga börn og að vera giftur.
Þetta eru mjög klassísk umfjöll-
unarefni. Ég er að syngja um ást-
ina, dauðann og það sem liggur
upp á yfirborðinu í kringum líf
mitt.“
Bubbi stígur þó fæti úr sinni
persónulegri paradís alla leið til
heljar í laginu „Þar sem gems-
arnir aldrei þagna“. Annað lag
fjallar um fánýti neysluþjóðfé-
lagsins. „Útgefendur eru alltaf
að benda mér á að þetta gæti ver-
ið söluvænna en pönkrokkið í
fyrra,“ segir Bubbi og hlær
kóngahlátri.
biggi@frettabladid.is
SAGA DAGSINS
5. OKTÓBER
FÓLK Í FRÉTTUM
PERSÓNAN
Ég verð heima að taka til fyrirafmælið og hlusta á hljóm-
sveitina mína, Heimilistóna á
meðan,“ segir Vigdís Gunnars-
dóttir, leikkona, sem er 37 ára í
dag. „Þetta er leikkonuhljómsveit
sem kemur saman og spilar þegar
göt gefast í heimilislífinu. Við
erum fjórar, Ólafía Hrönn, Elva
Ósk Ólafs, Halldóra Björns og ég.
Við höfum spilað heilmikið, höld-
um til dæmis alltaf bolludags-
skemmtanir m.a. í Hlaðvarparn-
um. Við spilum aðallega lögin sem
mæður okkar sungu þegar þær
stóðu við uppvaskið forðum, en
snörum öllum enskum textum
beint yfir á íslensku. Þeir verða
svolítið skondnir við það.“
Vigdís segir bandið hafa þróast
úr því að vera band á vergangi í
að vera bílskúrsband. „Ég veit
ekki hvert þetta stefnir, í heims-
frægð kannski,“ segir hún hugs-
andi. Þar sem hljómsveitin kemur
alltaf fram í sixtees-búningum
verður það fyrsta verk Vigdísar
að þvo framan úr sér sixtees-lúkk-
ið þegar tökum lýkur í dag. „Ég
reyni örugglega að setja upp eitt-
hvert nútímalegra lúkk, og svo
verður partý á tveimur hæðum.
Ég er tvíburi og við systurnar
búum í sama húsi, hvor á sinni
hæðinni. Þetta verður nú ekkert
villt, vinir okkar eru svo dag-
farsprúðir.“
Vigdís er nýkomin úr námi frá
London þar sem hún lagði stund á
handritagerð og leikstjórn fyrir
sjónvarp. „Það verður að teljast
aðaláhugamálið að koma saman
handriti fyrir sjónvarpsmynd. Svo
veit ég ekki nema ég leggi fyrir
mig hestamennsku í framtíðinni.
Ég skipti fyrir nokkru við Hilmi
Snæ á jeppa og hesti, en hesturinn
er enn á fjöllum og við höfum
aldrei hist. En ég hef grun um að
þar liggi dulið áhugamál.“
Vigdís Gunnarsdóttir, leikkona og handrits-
höfundur, á afmæli í dag.
Afmæli
Dagfarsprúðir gestir
á tveimur hæðum
JARÐARFARIR
11.00 Jón Bjarnason, Bakka í Vatnsdal,
verður jarðsunginn frá Blönduós-
kirkju.
14.00 Hólmsteinn Sigurðsson frá Ytri
Hofdölum verður jarðsunginn frá
Sauðárkrókskirkju.
AFMÆLI
Tvíburasysturnar Vigdís og Þóra Rósa
Gunnarsdætur eru 37 ára í dag.
ANDLÁT
Eiður Jóhannesson, fv. skipstjóri, Gull-
smára 11, Kópavogi, lést 20. september.
Útförin hefur farið fram.
Jón Höjgaard, Löngubrekku 22, lést 20.
september. Útförin hefur farið fram.
Martína Erna Sigfridsdóttir, Hamrabergi
24, lést 3. október.
Guðný Magnúsdóttir, Bergstaðastræti
65, lést 2. október.
Hrönn Albertsdóttir, Seiðakvísl 13,
Reykjavík, lést 2. október
Hallfríður K. H. Stefánsdóttir, ökukenn-
ari, Sogavegi 180, lést 1. október.
Jóhanna Elíasdóttir frá Melkoti, Staf-
holtstungum, lést 1. október
Æskan, barnablað með mynd-um, var gefið út í fyrsta sinn
árið 1897 af Stórstúku Íslands.
Hljómar léku í fyrsta skiptiopinberlega í Krossinum í
Njarðvík árið 1963.
Blönduvirkjun var formlegatekin í notkun árið 1991.
Framleiðslugeta henna er 150
megawött. Stofnkostnaður virkj-
unarinnar var meira en 12 millj-
arðar króna.
Lech Walesa fékk friðaverðlaunNóbels árið 1983.
TÍMAMÓT
BUBBI
Fyrsta lagið til að hljóta útvarpsspilun á nýju plötunni heitir „Við Gróttu“. Þó er annað
lag sem Bubbi er hrifnari af. „Lagið „Guð er kona“ er kannski það lag sem mér þykir
vænst um að einhverju leyti.“ Vonandi fær það að svífa milli viðtækja bráðlega.
Miklar deilur hafa verið í bæj-arstjórn Mosfellsbæjar um
fjármál bæjarins. Mikið var rætt
um fjármálin fyrir kosningarnar
síðastliðið vor, en deilurnar náðu
hámarki fyrir skömmu þegar
meirihluti sjálfstæðismanna kynnti
skýrslu KPMG, sem þeir sögðu
staðfesta algjöra óstjórn fyrrver-
andi meirihluta í fjármálum. Bæj-
arbúar hafa þurft að fylgjast með
fylkingunum tveimur túlka niður-
stöður skýrslunnar eftir hentisemi.
Meirihlutinn segir eitt, en minni-
hlutinn annað.
Aðferðin við að reikna rekstrar-kostnað sem hlutfall af skatt-
tekjum í Mosfellsbæ virðist fara
eftir því í hvaða flokki menn eru.
Svona rétt til að friða bæjarbúa,
sem eflaust eru orðnir mjög þreytt-
ir á karpi bæjarfulltrúa um rekstr-
arkostnað og fjármagnsgjöld, hafa
bæjaryfirvöld reynt að koma þeim
í gott skap með því að spila jólalög
í símsvara bæjarskrifstofunnar. Er
það nú ekki aðeins of snemmt?
Stórstjarnan Björk Guðmunds-dóttir eignaðist dóttur í fyrra-
dag. Heilsast móður og barni vel.
Þegar hefir verið
ákveðið hvað barn-
ið skal heita og
leitar Björk þá
ekki í frændgarð
sinn hér heima.
Nafnið mun vera
Ísadóra. Fyrir á
Björk soninn
Sindra.
MEÐ SÚRMJÓLKINNI
Sækjandinn: Hún átti þrjú börn,ekki satt?
Vitnið: Já.
Sækjandinn: Hvað voru strákarn-
ir margir?
Vitnið: Það var enginn strákur.
Sækjandinn: Voru þá einhverjar
stúlkur?
VIGDÍS GUNNARSDÓTTIR
Heldur afmælispartý ásamt tvíburasystur
sinni. Hljómsveitin Heimilistónar verður að
sjálfsögðu í partýinu svo og aðrir dag-
farsprúðir vinir þeirra systra.
Bubbi þakkar
fyrir sig
Þjóðlagarokkarinn Bubbi Morthens var í gær valinn bæjarlistamaður
Seltjarnarnesbæjar. Á mánudag gefur hann út breiðskífuna „Sól að
morgni“ þar sem hann syngur meðal annars um Gróttu.
Fréttamaðurinn og verðbréfa-spekúlantinn Eggert Skúla-
son fór mikinn á morgunsjón-
varpi Stöðvar 2 á dögunum.
Gerði hann þar mótmælendur á
Austurvelli að umtalsefni en við
Alþingishúsið hefur fólk gjarnan
safnast saman til að mótmæla
virkjunaráformum yfirvalda.
Kallaði Eggert þetta fólk “lista-
mannapakk úr 101“ sem bersýni-
lega hefði ekkert betra við tím-
ann að gera en hanga á Austur-
velli sér og öðrum til ama. Þótti
Eggert hér skjóta yfir markið
svo um munaði ef marka skal
mótmæli áhorfenda Stöðvar 2
sem margir kunnu lítt að meta
samfélagskrítík Eggerts.
Að gefnu tilefni skal tekið fram að
Halldóri Ásgrímssyni var ekki Hafn-
að í Hornafirði.
Leiðrétting
RÝMINGAR-
SALA!!!
HÚSGÖGN OG GJAFAVARA
RÝMUM FYRIR NÝJUM VÖRUM
ALLT AÐ 70%
AFSLÁTTUR!!!!!
Bæjarlind 12 • 201 Kópavogur • s: 544 44 20
Opið um helgina: • Lau: 10.00-17.00 • Sun: 13.00-16.00
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T