Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.10.2002, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 24.10.2002, Qupperneq 8
DÓMSMÁL 8 24. október 2002 FIMMTUDAGUR Útsölumarkaður GK REYKJAVÍK Enn meiri verðlækkun !! allir bolir nú 1.000 – allar skyrtur nú 1.900 allar buxur nú 2.500 – allir jakkar nú 5.000 allir bolir nú 1.000 – peysur 1.500 - 2.500 opið mánudaga til föstudaga frá 12 – 18 og laugardaga 12 – 16 GK Reykjavík Outlet, Faxafeni 9, sími 533 1060 Skilaði sér ekki: Beið björg- unar í bíl LEIT Leit var gerð í fyrrinótt að manni sem skilaði sér ekki til byggða. Maðurinn var við mæling- ar á Holtamannaafrétti. Björgunar- sveit Slysavarnarfélagsins Lands- bjargar í Rangárvallasýslum fann manninn síðan á þriðja tímanum. Hann sagði bílinn hafa bilað og hann ákveðið að bíða í bílnum eftir aðstoð. Þykir hann hafa brugðist hárrétt við aðstæðum. Veður var ágætt og amaði ekkert að mannin- um.  SJÓMANNADEILA Sjómenn ætla ekki að hætta aðgerðum gegn Atlants- skipum þrátt fyrir að lögbann hafi verið sett á mótmælaaðgerðir þeirra í Njarðvíkurhöfn í gær- morgun. Þar höfðu um 30 sjómenn stöðvað losun úr Bremen Úranusi, leiguskipi á vegum Atlantsskipa, og tafðist uppskipun því til klukk- an 11. Ástæðan fyrir aðgerðum sjómanna er að þeir telja að skip- verjarnir, sem flestir eru Rússar, fái greitt langt undir íslenskum töxtum. „Við erum ekkert hættir,“ sagði Birgir H. Björgvinsson, stjórnarmaður í Sjómannafélagi Reykjavíkur. „Við höldum þessari baráttu áfram og þetta endar með því að við tökum stóra slaginn. Næst verður að bera okkur í burtu.“ Birgir segir að næst sé stefnt að því að stöðva losun í Kópavogs- höfn í næstu viku þegar skip í Evrópusiglingum fyrir Atlants- skip komi til hafnar. Eftir það verði aftur haldið til Njarðvíkur og losun úr Bremen Úranusi stöðvuð. Birgir segir að sjómennirnir hafi verið mættir á hafnarbakk- ann í fyrrinótt og ekki hreyft sig fyrr en sýslumaður hafi verið kominn með alla pappíra um lög- bannið. „Hann var mættur um klukkan 10. Við reyndum að stríða þeim aðeins meira en fórum klukkan 11.“ Lögbannið var sett á að kröfu lögmanna Atlantsskipa, en skipa- félagið segist ætíð hafa farið eftir íslenskum og alþjóðlegum lögum. Samkvæmt þeim sé heimilt að vera með skip á erlendum fána í siglingum milli Íslands og annara landa. Í fréttatilkynningu frá Atl- antsskipum furða forráðamenn fyrirtækisins sig á því að Sjó- mannafélag Reykjavíkur skuli einungis beina spjótum sínum að því, þar sem bæði Eimskipafélag Íslands og Samskip notist einnig við erlend leiguskip með erlend- um áhöfnum, fyrir hluta af sínum flutningum. Segja þeir að MV Florida, leiguskip Eimskipafé- lagsins, sé mannað portúgalskri áhöfn, og Ísfell, skip Samskipa, hafi verið mannað rússneskri áhöfn og norskum skipstjóra. trausti@frettabladid.is STJÓRNMÁL Undirbúningur að Evr- ópukosningu Samfylkingar er blettur á flokknum, segir Páll Vil- hjálmsson, formaður Samfylking- arfélagsins á Seltjarnarnesi. Hann hefur ásamt átta Samfylk- ingarmönnum andmælt því hvernig staðið er að kosningunni. „Forystan var löngu búin að taka afstöðu í málinu. Kosningin hefur verið keyrð áfram til að fá stuðning við þá ákvörðun undir yfirskyni lýðræðis,“ segir Páll. „Ef menn ætla að iðka flokkslýð- ræði í framtíðinni verða þeir að gera það á skynsamari máta en nú hefur verið gert. Ég held að þetta sé blettur á Samfylkingunni.“ Stefán Jón Hafstein, formaður framkvæmdastjórnar Samfylk- ingar, segir alveg ljóst að það sé hvorki í gangi kosningasvindl né að því sé stýrt hvernig fólk greið- ir atkvæði. „Það eru skýrir kostir milli já og nei. Jáið þýðir að þetta fer í ferli sem getur leitt til aðild- ar. Nei hafnar því. Þetta mál hefur verið rætt fram og aftur. Mér finnst Páll ætla flokksfélögum sínum fávitaskap. Það er ekki sæmandi.“ Stefán segir að það væri spenn- andi að sjá aðra flokki setja mál í dóm félagsmanna sinna. „Ég hefði haft gaman af því að sjá Sjálf- stæðisflokkinn efna til umræðu um kvótamálið og greiða atkvæði um sægreifakerfið.“  MÓTMÆLI Í NJARÐVÍKURHÖFN Um 30 sjómenn tóku þátt í mótmælaað- gerðum gegn Atlantsskipum í Njarðvíkur- höfn í gærmorgun. Þeir fóru skömmu eftir að lögbann var sett á aðgerðirnar. Lögbann sett á mótmæli sjómanna í Njarðvíkurhöfn: Ekki hættir aðgerðum gegn Atlantsskipum PÁLL VILHJÁLMSSON Páll segir kynningu málsins alla fallna til þess að fá fólk til að segja já við aðild. Stef- án Jón Hafstein segir að komið hafi verið til móts við athugasemdir Páls og félaga. Formaður Samfylkingar á Seltjarnarnesi óánægður: Undirbúningur Evrópu- kosningar skammarlegur ORÐRÉTT ÞAR SEM TVÆR HEILAFRUM- UR KOMA SAMAN... „Guðni er snillingur í að svara út í hött.“ Bubbi Morthens ræðir sjókvíaeldi á laxi og Guðna Ágústsson landbúnaðarráðherra í DV-grein. ALLIR DANSA KONGA „Það er nefnilega orðið neyðar- legt hvað þingmenn landsins eru skelfilega hræddir við sína yfir- boðara, formenn og ráðherra.“ Bjarni Harðarson, ritstjóri Sunnlenska fréttablaðsins, ræðir í leiðara um fylgi- spekt lægra settra stjórnmálamanna. VÍÐA DANSA MENN KONGA „Staðreyndin er sú að þegar Evr- ópusambandið tapar kosningum þá lætur það kjósa aftur þangað til „rétt“ niðurstaða fæst.“ Vefþjóðviljinn fjallar um endurtekna þjóðaratkvæðagreiðslu Íra um Nice-samning Evrópusambandsins. Sigurvon RE-64: Strandaði í innsiglingu STRAND Báturinn Sigurvon RE-64 strandaði í innsiglingunni í Sand- gerði í fyrrakvöld vegna bilunar í stýrisbúnaði. Björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein kom á strand- stað klukkan hálftólf. Tók tuttugu mínútur að losa bátinn og var hann dreginn til hafnar í Sandgerði. Sex manna áhöfn var um borð í bátnum. Einn skipverjanna var fluttur um borð í björgunarskipið. Hallaði skipið talsvert en engin hætta var talin vera á ferð. TF-LÍF kom á strandstað en verið var að æfa notkun nætursjónauka vestur af Hvalaeyjum þegar upplýsingar um strandið bárust.  KONA BRAUT RÚÐU Kona á fimm- tugsaldri var fundin sek um að hafa brotið rúðu í verslunarmið- stöðinni Grímsbæ. Henni var ekki gerð sérstök refsing. Í vor var hún dæmd í 15 mánaða fangelsi, þar af 12 mánuði skilorðsbundna, fyrir stórfellda líkamsárás.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.