Fréttablaðið - 24.10.2002, Side 12

Fréttablaðið - 24.10.2002, Side 12
12 24. október 2002 FIMMTUDAGURFÓTBOLTI BROSMILDUR Gerard Houllier, knattspyrnustjóri Liver- pool, hefur ríka ástæðu til að vera brosmildur þessa dagana. Lið hans er komið í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar og er komið á góðan skrið í Meistaradeild- inni eftir tvo stóra sigra á skömmum tíma gegn Spartak Moskvu. ÍÞRÓTTIR Í DAG 16.45 RÚV Handboltakvöld 18.30 Sýn Heimsfótbolti með West Union 19.15 Ásvellir Intersport-deildin (Haukar - Keflavík) 19.15 Sauðárkrókur Intersport-deildin (Tindastóll - Skallagrímur) 19.15 Stykkishólmur Intersport-deildin (Snæfell - UMFG) 19.15 Valsheimili Intersport-deildin (Valur - Breiðablik) 20.15 Selfoss SS-bikar karla (Selfoss - ÍR) 22.30 Sýn HM 2002 (Spánn - Slóvenía) Gullmolar Nýlegir, lítið eknir og sérstaklega vel með farnir bílar í eigu Bílaþings. Frábær kaup. Leit Leitarvél Bílaþingsins er beintengd við söluskrá notaðra bíla. Einfalt og þægilegt. Rekstrarleiga Taktu notaðan bíl á rekstrarleigu. Þjónustuskoðun og smurþjónusta er innifalin í mánaðargjaldi. Þú velur lengd samningstímans. Númer eitt í notu›um bílum! HANDBOLTI Guðmundur Guð- mundsson, landsliðsþjálf- ari í handbolta, hefur valið 17 manna hóp fyrir World Cup-mótið sem hefst í Sví- þjóð þann 29. október. Mót- ið er fyrsta skrefið í undir- búningstímabili fyrir heimsmeistaramótið í Portúgal á næsta ári. Markvörðurinn Hlynur Jóhannesson, sem spilar með norska liðinu Stord, er eini nýliðinn í hópnum. Flestir leikmenn spila með erlendum félagsliðum. Þrír leik- menn koma frá íslenskum fé- lagsliðum: Snorri Steinn Guð- jónsson úr Val og Aron Krist- jánsson og Birkir Ívar Guðmundsson úr Haukum. Á World Cup-mótinu spila átta af sterkustu þjóðum heims. Liðunum er skipt niður í tvo riðla og leikur Ísland í B-riðli, með Júgóslavíu, Rússlandi og Þýskalandi. Tvö lið komast upp úr riðlinum í undanúr- slit. Landsliðsþjálfarinn hef- ur tekið upp nýja tækni, sem byggð er á íslenskum hugbúnaði, til að auðvelda leikmönnum undirbúning. Hver leikmaður fær margmiðlunar- disk þar sem hann getur skoðað leikaðferðir liðsins í máli og myndum. Guðmundur segir hentugt að geta safnað saman upplýsingum á einn stað. „Ég sá mér leik á borði að koma öllum okkar handbolta þarna inn og skilgreina okkur. Þá er það að- gengilegt fyrir mig og leik- menn.“  Einn nýliði í hópnum Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari hefur valið 17 leikmenn fyrir World Cup-mótið í Svíþjóð. Einn nýliði í hópnum. Þjálfarinn not- ast nú við margmiðlunardisk til að auðvelda undirbúningin. LANDSLIÐSHÓPURINN Markverðir: Guðmundur Hrafnkelsson Conversano Hlynur Jóhannesson Stord Birkir Ívar Guðmundsson Haukar Horna- og línumenn: Guðjón Valur Sigurðsson Essen Gústaf Bjarnason Minden Einar Örn Jónsson Wallau Massenheim Sigfús Sigurðsson Magdeburg Róbert Sighvatsson Wetzlar Útileikmenn: Gunnar Berg Viktorsson PSG Rúnar Sigtryggsson Ciudad Real Heiðmar Felixsson Bidasoa Snorri Steinn Guðjónsson Valur Aron Kristjánsson Haukar Sigurður Bjarnason Wetzlar Patrekur Jóhannesson Essen Ólafur Stefánsson Magdeburg Dagur Sigurðsson Wakunaga LANDSLIÐSÞJÁLFARINN Íslenska landsliðið býr sig undir fyrir heimsmeistaramótið 2003 með þátttöku á World Cup í Svíþjóð. Fram undan eru meðal annars leikir við Slóvena og Svía. TENNIS Saksóknarar hafa farið fram á að þýska tennisstjarnan fyrrverandi Boris Becker verði dæmd í þriggja og hálfs árs fang- elsi fyrir að svíkja um 150 millj- ónir króna undan skatti á árunum 1991 til 1993. Becker játaði fyrir dómstólum í gær að hafa gert fjárhagsmistök á þessum árum en neitaði því hins vegar að hafa svikið viljandi und- an skatti. Játaði hann einnig að hafa dvalið í íbúð í borginni München í Þýskalandi á sama tíma og hann var skráður ríkis- borgari í skattaparadísinni Mónakó. Hann sagðist aftur á móti aðeins hafa dvalið af og til í íbúðinni, sem var í eigu systur hans. Hinn 34 ára gamli Becker seg- ir að rannsóknin á skattamálum sínum, sem staðið hefur yfir í 10 ár, hafi flýtt fyrir ákvörðun sinni um að leggja tennisspaðann á hill- una árið 1999. „Tennis er íþrótt sem byggist á sálfræði. Ég hætti að spila á þessum tíma vegna þess að ég gat ekki haldið þessu lengur áfram,“ sagði Becker. Becker hefur átt í vandræðum í einkalífinu undanfarin ár. Hann lenti í erfiðum skilnaði við eigin- konu sína Barböru og barnaði rússneska fyrirsætu eftir stutt ævintýri inni í kústaskáp auk þess sem hann tapaði umtalsverðum fjárhæðum í viðskiptum.  Þýska tennisstjarnan Boris Becker í slæmum málum: Á þriggja og hálfs árs fangelsi yfir höfði sér BECKER Boris Becker gengur inn í réttarsalinn í München þar sem réttað var í máli hans. AP /M YN D

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.