Fréttablaðið - 24.10.2002, Blaðsíða 16
16 24. október 2002 FIMMTUDAGURHVAÐA BÓK ERT ÞÚ AÐ LESA?
FIMMTUDAGUR
24. OKTÓBER
Gunnar Lárus Hjálmarsson tónlistarmaður.
Ég er að lesa bók sem heitir A Dream of Is-
lands eftir Gavan Daws. Þetta er reyndar
ekkert sérstök bók en í henni eru ævisögur
nokkurra manna sem eiga það sameigin-
legt að hafa flúið vestræna siðmenningu á
þar síðustu öld til Kyrrahafseyja.
LEIKHÚS Nemendaleikhúsið frum-
sýndi á sunnudagskvöld leikritið
Skýfall eftir spænska leikskáldið
Sergei Belbel. „Þetta er fyrsta
verkið af þremur sem við setjum
upp á þessum lokavetri okkar í
skólanum,“ segir Ilmur Kristjáns-
dóttir, einn átta leikenda í sýning-
unni. „Það má segja að þetta sé
svört kómedía sem gerist á þaki
háhýsis, en skrifstofufólk sem
vinnur í húsinu stelst reglulega
þangað upp til svala nikótínþörf-
inni. Fólkið þarf svo að berjast
fyrir tilveru sinni á öllum sviðum
í hörðum heimi.“
Egill Heiðar Pálsson leikstýrir
verkinu en þetta er fyrsta leik-
stjórnarverkefni hans frá því
hann lauk námi frá Statens Tea-
terskole í Kaupmannahöfn. „Þetta
er búið að vera strangt og
skemmtilegt æfingaferli,“ segir
Ilmur. „Hann sendir okkur út að
hlaupa á hverjum morgni til að
koma okkur í form og við höfum
nánast búið í leikhúsinu undan-
farnar vikur.“
Sergi Belbel þykir eitt fremsta
leikritaskáld Spánar í dag. Hann
vakti mikla athygli með fyrstu
verkum sínum árið 1985, en þau
voru undir miklum áhrifum frá
höfundum absúrdleikhússins, sér
í lagi Samuel Beckett. Síðan hefur
Belbel þróast í átt að einhvers
konar draumkenndu ný-raunsæi.
Leikrit Belbels eru rannsókn á
duldu ofbeldi sem oft ríkir í við-
horfum okkar og daglegum sam-
skiptum, minnimáttarkennd
mannsins gagnvart náunganum
og baráttu hans fyrir röngum
markmiðum í lífinu.
Nemendaleikhúsið sýnir Skýfall:
Mannleg samskipti
á þaki háhýsis
FIRRTIR SKRIFSTOFUMENN
Leikritið Skýfall tekur meðal annars á minnimáttarkennd og duldu ofbeldi mannsins.
Listmálarinn Steinn Sigurðsson sýnir á
Kaffi Sólon. Sýningin er opin á opnun-
artíma Sólon og stendur til 8. nóvember.
Jóhanna Ólafsdóttir og Spiros Misokil-
is sýna ljósmyndir sínar á Kaffi Mokka.
Sýningin heitir „Orbital Reflections“. Allir
eru velkomnir.
Sýningin Carnegie Art Award 2002 er í
Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi.
Sýnd eru verk eftir 25 norræna lista-
menn, sem sérstök dómnefnd hefur
valið til sýningarinnar. Aðgangur á sýn-
inguna er ókeypis. Opið á virkum dög-
um frá 11 til 18, fimmtudaga 11 til 19.
Leiðsögn er fimmtudaga, laugardaga og
sunnudaga kl. 16. Sýningunni lýkur 10.
nóvember.
Sýning á verkum fjögurra eistneskra
listamanna stendur yfir í Hafnarborg,
menningar- og listastofnun Hafnarfjarð-
ar. Þeir eru Jüri Ojaver, Paul Rodgers,
Jaan Toomik og Jaan Paavle.
Tróndur Patursson frá Færeyjum sýnir
málverk í aðalsal Hafnarborgar.
Flökt- Amublatory- Wandelgang er sam-
sýning Magnúsar Pálssonar, Erics And-
ersens og Wolfgangs Müllers í Nýlista-
safninu.
Ágústa Oddsdóttir sýnir í gluggum
Vatnsstígs 10.
Svava Björnsdóttir sýnir verk á mynd-
vegg Maríellu að Skólavörðustíg 12. Sýn-
ingin stendur til 9. nóvember.
Sýningin Handritin stendur yfir í Þjóð-
menningarhúsinu. Sýningin er á vegum
Stofnunar Árna Magnússonar. Opið er
frá klukkan 11 til 17.
Þorri Hringsson sýnir olíu- og vatnslita-
myndir í Listasafni Borgarness. Sýningin
er opin frá 13 til 18 alla virka daga og til
klukkan 20 á þriðjudags- og fimmtu-
dagskvöldum. Sýningin stendur til 30.
október.
Óli G. Jóhannsson sýnir í galleríi Sæv-
ars Karls.
Austurríski ljósmyndarinn, Marielis
Seyler sýnir í Listasal Man, Skólavörðu-
stíg 14. Myndirnar á sýningunni voru
teknar á Íslandi sumarið 2001.
MYX Youth Artist Exchange sýnir í
Gallerí Tukt, Hinu húsinu. MYX Youth
Artist Exchange er hópur ungra mynd-
listarmanna frá Bandaríkjunum og Ís-
landi.
Sýningin Rembrandt og samtíðarmenn
hans; hollensk myndlist frá 17. öld er í
Listasafninu á Akureyri.
YANN MARTEL
Kanadíski rithöfundurinn Yann Martel
heldur hér á skáldsögu sinni „The Life of
Pi“ en fyrir hana hlaut hann Booker-verð-
launin eftirsóttu árið 2002. Bókin segir frá
16 ára gömlum skipbrotsmanni sem er
fastur á björgunarbáti ásamt tígrisdýri sem
kallast Richard Parker.