Fréttablaðið - 24.10.2002, Síða 21

Fréttablaðið - 24.10.2002, Síða 21
21FIMMTUDAGUR 24. október 2002 BRETLAND Breska blaðið The Daily Mirror hefur birt heilsíðulanga afsökunarbeiðni til Steve Bing, barnsföður leikkonunnar Eliza- beth Hurley. Ástæðan er grein sem birt var í blaðinu fyrir nokkru síðan þar sem símanúm- erið hans var birt og hvatt var til þess að lesendur hringdu í hann og létu hann fá það óþvegið. Bing höfðaði í kjölfarið mál gegn blað- inu og fór fram á 3,5 milljarða króna í skaðabætur. Sagðist hann meðal annars hafa fengið morð- hótanir í gegnum símann. Ákvað hann að láta málið niður falla eft- ir að blaðið samþykkti að biðjast afsökunar á athæfi sínu. Bing, sem er frægur kvik- myndaframleiðandi, var húð- skammaður í breskum dagblöð- um eftir að sambandi hans við Hurley lauk á sama tíma og í ljós kom að hún bar barn hans undir belti. Í The Daily Mirror var hann meðal annars uppnefndur Bing Laden. Blaðið hefur nú viðurkennt að umfjöllunin hafi verið bæði „ill- gjörn“ og „ósmekkleg.“  The Daily Mirror kemst hjá málshöfðun: Bing beðinn afsökunar HURLEY Elizabeth Hurley er fræg fyrirsæta og leik- kona. Bresk dagblöð sökuðu Steve Bing um að hafa flúið föðurlegar skyldur sínar þegar hann hætti með Hurley á meðan hún bar barn hans undir belti. HUNDAR Vefsíðan dogmcuk.com hefur um langt skeið boðið upp á föt fyrir hunda. Nú hafa aðstand- endur síðunnar fært út kvíarnar og bjóða grímubúninga fyrir fer- fætlingana. Þeir sem vilja klæða hundana sína upp fyrir Öskudag- inn geta meðal annars fengið kan- ínu-, maríubjöllu- og býflugna- búninga. Búningarnir eru til í öll- um stærðum. Hönnuðir þeirra eru Gordon Wild Flynn og Tracey Davies en þeir hafa meðal annars gert knattspyrnubúninga fyrir besta vin mannskepnunnar. „Af hverju eigum við bara að geta klætt okkur upp í búninga? Hvað með hundana okkar? Eiga þeir ekki að fá tækifæri til að hrella aðra?“ sagði Flynn. „Við sáum þarna gat á markaðinum og við viljum fylla upp í það.“ Hann segist bera mikla virðingu fyrir hundum og vilja gera föt við þeir- ra hæfi. „Fötin eru hönnuð fyrir allar stærðir hunda og þau eru mjög þægileg.“  KVIKMYNDIR Leikstjóri fyrstu tveggja Harry Potter-myndanna, Chris Columbus, segir að það muni ekki koma sér á óvart ef krakkarn- ir þrír sem leika Harry, Ron og Hermione í myndunum leggi töfrasprotann á hilluna eftir fyrstu þrjár myndirnar. Hann segir þau öll vilja fá hvíld frá sviðsljósinu til þess að fá að upplifa eðlilegri bern- sku í einhvern tíma. „Við ætlum öll að leika í „The Prisoner of Azkaban“ en sjáum svo bara til eftir það,“ sagði Daniel Radcliffe í viðtali við BBC á þriðjudag. Columbus ætlar ekki að leikstýra fleiri myndum um Potter og hefur annar leikstjóri þegar verið ráðinn til þess að taka við af honum. Það er mexíkanski leik- stjórinn Alfonso Cuaron, sem er þekktastur fyrir mynd sína „Y Tu Mama Tambien“.  HARRY POTTER Köttur úti í mýri, úti er ævintýri? Leikaraþrí- eykið sem fer með hlutverk Harry, Ron og Hermione íhugar að halda ekki áfram eftir að tökum á þriðju myndinni lýkur. Harry Potter: Aðalleikararnir íhuga að hætta eftir þriðju myndina Vefsíða með óvenjuleg föt: Hundar í býflugu- búningum HUNDAR Í GRÍMUBÚNINGUMHægt er að velja um margar tegundir af grímubúningum, þar á meðal býflugna- og maríubjöllubúninga.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.