Fréttablaðið - 15.11.2002, Blaðsíða 29
28 15. nóvember 2002 FÖSTUDAG
52 ÁRA Hjálmar Árnason alþingis-
maður er 52 ára í dag. Hann lét
gamlan draum rætast á dögunum
og fjárfesti í gömlu trommusetti.
Hann segir að ekki hafi verið um
afmælisgjöf frá sér til sín að
ræða. „Mig hefur langað í
trommusett alveg frá því ég var í
barnaskóla. Þá var ég í hljóm-
sveitinni Bingó og var skráður á
trommur þótt ég kynni ekkert á
þær. Ég hef alið þennan draum
með mér síðan og þegar færi
gafst sló ég til og settið bíður mín
nú úti í skúr. Ég hef samið við
Júlíus Guðmundsson, son hins
þekkta rokkara Rúnars Júl., um
að gerast lærimeistari minn
þannig að ég geri ráð fyrir því að
áður en langt um líður fari ná-
grannarnir að hringja heim og
biðja konuna mína um að þagga
niður í mér.“ Hjálmar hefur eng-
ar áhyggjur af því að hann sé orð-
inn of gamall til að læra á tromm-
ur. „Það hlýtur að fara að koma
að því að Charlie Watts dragi sig
í hlé og þá verð ég örugglega á
réttum aldri til að taka við af
honum.“
Hjálmar verður á Selfossi á
samgönguþingi Sambands sveit-
arfélaga á Suðurlandi á afmælis-
daginn en stefnir að því að eyða
kvöldinu heima í faðmi fjölskyld-
unnar.
Hjálmar segist vera svo lán-
samur að starfið og áhugamálin
fari vel saman. „Ég hleð svo batt-
eríin á sumrin með því að ferðast
um Ísland. Veiðar eru mitt helsta
áhugamál á sumrin og á veturna
tel ég dagana þangað til ég get
komið mér fyrir á bökkum unaðs-
legra veiðiáa.“ Hjálmar gefur sér
einnig tíma til lesturs góðra bóka
og fylgist vel með íþróttum og þar
er fótboltinn efstur á blaði. „Ég er
mikill Spurs-aðdáandi og nýt þess
alltaf afskaplega vel þegar þeir
vinna, sem er því miður allt of
sjaldan.“
Hjálmar Árnason alþingismaður er 52 ára í
dag. Hann keypti sér notað trommusett á
dögunum og bíður þess nú að komast á
réttan aldur til að taka við kjuðunum af
Charlie Watts í Rolling Stones.
Afmæli
Bíður eftir stöðu hjá Stones
JARÐARFARIR
10.30 Gestur Jónsson, loftskeytamaður,
Ljósheimum 18a, Reykjavík, verð-
ur jarðsunginn frá Fossvogskirkju.
13.30 Ingibjörg Eiríksdóttir, Skjóli, áður
til heimilis að Gnoðarvogi 52,
verður jarðsungin frá Langholts-
kirkju.
13.30 Sigurður Dagnýsson frá Seyðis-
firði, Miðvangi 8, Hafnarfirði, verð-
ur jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í
Hafnarfirði.
13.30 Sigurður Jóhannesson, múrara-
meistari, Hrafnistu, verður jarð-
sunginn frá Áskirkju.
14.00 Jón Ólafsson frá Hamri í Hamars-
firði, Hátúni 17, Eskifirði, verður
kvaddur í Eskifjarðarkirkju.
14.00 Kristinn Á. Jóhannsson, Hóla-
braut 7, Skagaströnd, verður jarð-
sunginn frá Hólaneskirkju.
14.00 Vilberg Jóhannesson, Heiðar-
hrauni 6, Grindavík, verður jarð-
sunginn frá Grindavíkurkirkju.
15.00 Kristján Grétar Sigurðsson, Val-
húsabraut 29, Seltjarnarnesi, verð-
ur jarðsunginn frá Seltjarnarnes-
kirkju.
AFMÆLI
Hjálmar Árnason alþingismaður er 52
ára.
Snæbjörn Arngrímsson bókaútgefandi
er 41 árs.
ANDLÁT
Borgþór H. Jónsson, veðurfræðingur,
Háteigsvegi 38, lést 12. nóvember.
Gylfi Hallvarðsson, Hamrabergi 34,
Reykjavík, lést 12. nóvember.
Hermann Kári Helgason lést 12. nó
ember.
Hólmfríður Magnúsdóttir, Borgarbra
22, Stykkishólmi, lést 12. nóvember.
Óskar Björgvinsson, ljósmyndari, Ve
mannaeyjum, lést 12. nóvember.
Svava Lárusdóttir, Seljahlíð, Reykjav
lést 12. nóvember.
Þórný Þuríður Tómasdóttir, Ofanleit
Reykjavík, lést 12. nóvember.
Jónas Ragnar Sigurðsson frá Skuld
Vestmannaeyjum, Austurbrún 2, Rey
vík, lést 11. nóvember.
Svanfríður Guðlaugsdóttir, dvalarhe
ilinu Hlíð, lést 11. nóvember.
Kári S. Johansen, fyrrverandi deildar
stjóri KEA, lést 7. nóvember.
TÍMAMÓT
HJÁLMAR ÁRNASON
„Ég er ósköp lítið afmælisbarn í mér. Ég
í fyrsta skipti almennilega upp á afmæ
mitt þegar ég varð fimmtugur og lifi en
því. Það var ágætt að fara á svona súpe
ótripp einu sinni á ævinni og skemmta
með vinum og vandamönnum.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Full búð
af frábærum
haustvörum.
Ýmis tilboð
í gangi.
Stærðir 34-56
Nóvember – Desember
Jólahlaðborð
frá 29. nóvember
Skötuveisla
23. desember
Velkominn í jólahlaðborðið okkar
Einar Geirsson
Yfirmatreiðslumaður
Opnunartími
Hádegi mán. – föst. 12.00 – 14.00
Kvöld alla daga frá 18.00
tveir fiskar
( við Reykjavíkurhöfn )
Geirsgata 9 • 101 reykjavik
sími 511 - 3474
netfang restaurant@restaurant.is
heimasíða www.restaurant.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Eitt stærsta átthagafélag íheimi er Önfirðingafélagið
Reykjavík. Formaður þess er
Björn Ingi Bjarnason, fyrrum
varaþingmaður krata, og hann
hefur verið vakinn og sofinn a
taka inn nýja félaga sem nú te
á annað þúsund. Meðal þeirra
sem telja Önundarfjörð til átt-
haga sinna er fjöldi Norðmann
og annarra Norðurlandabúa se
sumir hverjir hafa aldrei til Ve
WYCLEF JEAN
Hann er tilbúinn að hitta sína gömlu
laga aftur.
Wyclef Jean:
Vill The
Fugees aftu
TÓNLIST Tónlistarmaðurinn Wyc
Jean segist hafa áhuga á því
starfa aftur með sínum gömlu
lögum í hljómsveitinni T
Fugees. Hann segir hins vegar
söngkonan Lauryn Hill hafi t
markaðan áhuga á að snúa aftu
sveitina.
Síðasta plata The Fugees, „T
Score,“ seldist í 17 milljónum e
taka um heim allan. Wyclef seg
nú hafa áhuga á að gera nýja pl
með hljómsveitinni. Sveitin sta
aði síðast saman árið 1997 þe
hún gaf út smáskífuna „Rumbl
the Jungle.“
KVIKMYNDIR Leikarinn John Mal-
kovich hefur loks komið fyrstu
myndinni sem hann leikstýrir í
gegnum breska kvikmyndaeftirlit-
ið (BBFC). Myndin hefur verið
undir rannsókn þar sem kjúkling-
ur sést springa í henni.
Hætt var við að seinka þyrfti
frumsýningunni á The Dancer Up-
stairs þar sem BBFC vildi láta
fjarlægja atriði úr myndinni þar
sem kjúklingur sést hlaupandi um
með dínamíttúpu fasta við löppina
á sér. Stuttu síðar sést dýrið
springa í loft upp.
Malkovich var síður en svo sátt-
ur með ákvörðun eftirlitsins þótt
framleiðendur myndarinnar væru
tilbúnir að seinka myndinni. Hann
barðist því fyrir sínu og vann, með
því skilyrði að myndin yrði bönnuð
innan 15 ára.
Kvikmyndaeftirlitið starfaði
eftir reglugerð frá árinu 1937 sem
var sett á vegna slæmrar meðferð-
ar á hestum í kúrekamyndum.
John Malkovich ánægður:
Samþykktu
sprengdan
kjúkling
JOHN MALKOVICH
Var ekki sáttur við ákvörðun breska kvik-
myndaeftirlitsins.