Fréttablaðið - 15.11.2002, Page 33
Nú liggur fyrir Alþingi Íslendingafrumvarp um breytingar á laga-
ákvæðum um Lífeyrissjóð sjómanna.
Þetta frumvarp fjallar um breytingu
(les: skerðingu) á lífeyrisréttindum
vegna þess að svokölluð „neikvæð
ávöxtun“ hefur leitt til þess að sjö
og hálfan milljarð króna vantar upp
á að sjóðurinn eigi fyrir þeim trygg-
ingum sem sjóðfélagar hafa verið að
kaupa af honum með mánaðarlegum
afborgunum.
ÞETTA er auðvitað til mikillar fyrir-
myndar. Það væri leiðindamál ef
sjóðurinn kláraðist allt í einu og
rynni í botnlausa vasa sjóðfélaga.
Lífeyrissjóðir gegna nefnilega miklu
mikilvægara hlutverki en svo að
þeir sem þeim stjórna geti verið að
gera sér grillur út af einhverjum
smáaurum sem fólk eyðir hvort sem
er mestan part í óþarfa. Hlutverk
lífeyrissjóðanna er vitanlega að
kaupa hlutabréf í hinum og þessum
fyrirtækjum, hér heima og erlendis,
og hlutverk þeirra sem stjórna líf-
eyrissjóðum er að sjálfsögðu að
spila Matador með annarra manna
peninga, samkvæmt hagfræðikenn-
ingunni „easy come – easy go“.
ÞAÐ er því snjallræði að minnka
skuldbindingar sjóðsins með ein-
faldri lagasetningu svo að ekki verði
vesen út af því að ávöxtunin hefur
verið neikvæð tvö ár í röð. Enda vita
flestir að kauphallir heimsins hafa
ekki verið neinir gleðibankar síðustu
árin, og enginn bati fyrirsjáanlegur
nema Bússi drífi loksins í því að ráð-
ast á Saddam.
SJÁLFUR er ég fórnarlamb „nei-
kvæðrar ávöxtunar“ því að peningar
sem lenda í mínum höndum öðlast þá
náttúru að gufa upp og hverfa út í
buskann í stað þess að eðla sig og
margfaldast. Þrátt fyrir lítil umsvif á
ég það sameiginlegt með lífeyrissjóð-
um að ég er með ómaga á mínu fram-
færi. Þeir heita EURO og VISA og
éta upp tekjur mínar um hver mán-
aðamót. Nú vona ég að fjármálaráð-
herrann okkar líti mildilega til mín
þegar hann er búinn að bjarga lífeyr-
issjóðum og setji lög sem minnka
skuldbindingar landsmanna gagnvart
þeim EURO og VISA þó ekki væri
nema um 50% svo að við getum lagt
fyrir fáeinar krónur til elliáranna og
þurfum ekki að reiða okkur á lífeyr-
issjóði í heimi þar sem ekkert er
stöðugt nema fallvaltleikinn.
Drif á öllumGullmolar Lækkað verðNýkomnir
Gott á bilathing.is
Númer eitt í notu›um bílum!Laugavegi 170–174 • Sími 590 5000 • www.bilathing.is • bilathing@hekla.is
Rekstrarleiga
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Neikvæð
ávöxtun
Bakþankar
Þráins Bertelssonar