Fréttablaðið - 03.01.2003, Page 4
4 3. janúar 2003 FÖSTUDAGURKJÖRKASSINN
Farðu inn á frett.is og segðu
þína skoðun
frétt.is
Hver stjórnmálaforingjanna stóð sig
best í umræðum um áramótin?
Spurning dagsins í dag:
Ætlarðu að gera breytingar á
lífsstíl þínum á nýju ári?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
14,2%
14,4%Halldór Ásgrímsson
42,9%
DAVÍÐ BESTUR
Flestir telja að Davíð
Oddsson forsætisráð-
herra hafi staðið sig best
í sjónvarpsumræðum.
Steingrímur J. Sigfússon
Sverrir Hermannsson
Össur Skarphéðinsson
Davíð Oddsson
14,3%
14,3%
Laugaveg i 83 s : 562 3244
LOKAÐ Í DAG
ÚTSALA
Á MORGUN
SAMGÖNGUR „Lagning Suð-
urstrandarvegar var meðal
þeirra röksemda sem færð-
ar voru fyrir kjördæma-
breytingunni og hefði orðið
til þess að tengja betur
Suðurnes og Suðurland. Því
eru það mikil vonbrigði að
lagningu vegarins hafi ver-
ið frestað,“ segir Einar
Njálsson, bæjarstjóri á Sel-
fossi. Suðurstrandarvegur
kemur til með að leysa nú-
verandi Krísuvíkurleið af
hólmi en sú leið hefur þótt
nokkuð löng og vegurinn alls ekki
nógu góður. Með nýjum vegi, sem
að hluta til myndi liggja á nýjum
stað og nær sjónum, yrðu sam-
göngur á milli Suðurnesja og Suð-
urlands allt aðrar og betri
en áður.
„Fyrir utan hvað þetta
yrði skemmtilegur útsýn-
ishringur þá myndi nýr
vegur þarna skipta ferða-
þjónustuna hér á svæðinu
miklu máli. Við kæmumst í
beint samband við flugstöð
Leifs Eiríkssonar,“ segir
Einar Njálsson.
Suðurstrandarvegur
var á langtímavegaáætlun
Vegagerðarinnar og átti að
byggjast á árunum 2004-
2006. Þeim áætlunum hefur nú
verið slegið á frest og óvíst
hvenær af verður: „Þetta eru
vissulega vonbrigði,“ segir bæjar-
stjórinn. ■
Lagningu Suðurstrandarvegar frestað:
Bæjarstjóri
vonsvikinn
Fjármálastofnanir:
Stefnir
í 1,5%
verðbólgu
VERÐBÓLGA Fjármálastofnanir gera
ráð fyrir að vísitala neysluverðs
hækki á bilinu 0,3-0,4% milli des-
ember og janúar. Verðbólgan hef-
ur verið minni að undanförnu en
spár fjármálafyrirtækjanna hafa
hljóðað upp á. Helstu liðir sem
valda verðbólgunni að þessu sinni
eru hækkun á mjólkurvörum, hús-
næði og félagslegri þjónustu. Við
það bætist svo hækkun á bensíni
nú um áramótin. Gangi spárnar
eftir er verðbólga ársins 2002 ein-
ungis 1,5%. ■
SJÁVARÚTVEGUR Skip frá Evrópu-
sambandinu veiddu aðeins rúman
helming leyfilegs afla í íslensku
efnahagslögsögunni í fyrra. Skip-
um frá ESB var heimilt að veiða
3.000 lestir í lögsögunni en bresk
og þýsk skip tilkynntu aðeins 1.663
tonna afla.
Landhelgisgæslan hefur eftirlit
með veiðum allra erlendra fiski-
skipa innan íslenskrar fiskveiði-
lögsögu. Skipunum er yfirleitt gert
að vera búin fjareftirlitsbúnaði
sem tilkynnir sjálfvirkt staðsetn-
ingu skipanna á klukkustundar
fresti til stjórnstöðva heimalanda
sinna.
Um 150 erlend fiskiskip til-
kynntu stjórnstöð Landhelgisgæsl-
unnar um afla í fyrra, samtals um
206.330 tonn. Þar vegur þyngst ríf-
lega 100 þúsund tonna kolmunna-
og loðnuafli færeyskra skipa. Fær-
eyskum skipum var heimilt að
veiða samtals 5.000 tonn af botn-
fiskafla í íslenskri fiskveiðilög-
sögu í fyrra en þau tilkynntu að-
eins um rúm 4.000 tonn. ■
Veiðar erlendra fiskiskipa í landhelginni:
Helmingur ESB-
kvótans óveiddur
TOGARI
Oftar en ekki fellur hluti kvóta sem erlend-
um skipum er úthlutað, niður óveiddur.
ESB veiddi aðeins rúman helming kvóta
síns í íslenskri lögsögu í fyrra.
BÆJARMÁL Bæjaryfirvöld á Sel-
tjarnarnesi gera ráð fyrir 154
milljóna króna afgangi frá
rekstri samkvæmt nýsamþykktri
fjárhagsáætlun fyrir þetta ár.
Upphæðin nemur tæpum 13% af
tekjum.
Gert er ráð fyrir því að heild-
artekjur bæjarsjóðs og stofnana
hans verði um 1.234 milljónir
króna, en rekstrargjöld án fjár-
festinga 1.079 milljónir. Ekki er
gert ráð fyrir hækkun opinberra
gjalda auk þess sem gengið er út
frá að önnur þjónustugjöld hald-
ist óbreytt. Þeir málaflokkar sem
mest taka til sín í rekstri eru
fræðslumál með 664 milljónir
króna, æskulýðs- og íþróttamál
171 milljón, skipulags-, umhverf-
ismál og almannavarnir 164
milljón, félagsþjónusta 73 millj-
ónir og menningarmál 30 milljón-
ir.
Gert er ráð fyrir að greiða 27
milljónir króna í afborganir af
langtímalánum en áætlað er að
heildarskuldir bæjarins í árslok
2003 nemi um 295 milljónum
króna. Þá hefur bæjarstjórn
heimilað töku allt að 100 milljóna
króna langtímaláns til niður-
greiðslu óhagstæðari skamm-
tímalána og styrkingar á veltu-
fjárhlutfalli bæjarins. Lántakan
mun þannig ekki hafa áhrif á net-
tóskuld bæjarsjóðs en m.a. leiða
til lækkunar fjármagnskostnað-
ar.
Helstu framkvæmdir ársins
tengjast menningar-, æskulýðs-
og íþróttamálum. Auk þess verð-
ur undirbúningi að byggingu
hjúkrunarheimilis haldið áfram.
Lokið verður að mestu við endur-
bætur við Valhúsaskóla en á und-
anförnum árum hefur skólinn
gengið í gegnum gagngera end-
urnýjun auk þess sem nýbygging
í tengslum við skólann var tekin í
notkun síðastliðið haust.
Á vordögum verður farið í um-
fangsmikið viðhald á húsnæði
Mýrarhúsaskóla en það er ári
fyrr en ætlað var. Í athugun er
þörf fyrir byggingu nýs leikskóla
og viðbyggingar við Mýrarhúsa-
skóla. Ráðgert er að flytja bæjar-
bókasafn Seltjarnarness í rýmra
húsnæði á Eiðistorgi. Áætlað er
að lagfæra þak Eiðistorgs með
það fyrir augum að gera verslun-
arrýmið meira aðlaðandi. ■
Þjónustugjöld haldast
óbreytt á Nesinu
Bæjaryfirvöld á Seltjarnarnesi hyggjast ekki hækka opinber gjöld sam-
kvæmt nýsamþykktri fjárhagsáætlun. Áætlunin gerir ráð fyrir 154 millj-
óna króna afgangi frá rekstri. Rekstrargjöld nema 1.079 milljónum
króna og taka fræðslumálin mest til sín.
Bensín á bílinn:
Hækkar
um túkall
BENSÍNVERÐ Bensínið hækkar í dag.
Olíufélögin hafa boðað hækkun á
öllum tegundum eldsneytis. Lítr-
inn af 95 oktana bensíni hækkar
um 1,90 krónur. Verðið í dag
verður 98,20 krónur fyrir lítrann
miðað við fulla þjónustu. Lítrinn
af dísilolíu hækkar um 2 krónur,
af flotaolíu um 1,70 og af svartol-
íu um 1,50 krónur.
Hækkun á heimsmarkaðsverði
er höfuðástæða hækkunarinnar.
Miðað við ástandið á olíumörkuð-
um er fátt sem bendir til þess að
verð olíu fari lækkandi í bráð. ■
SELTJARNARNESBÆR
Á vordögum verður farið í umfangsmikið viðhald á húsnæði Mýrarhúsaskóla, en það er
ári fyrr en ætlað var. Í athugun er þörf fyrir byggingu nýs leikskóla og viðbyggingar við
Mýrarhúsaskóla.
Úrskurður kjaranefndar
Reykjavíkurborgar:
Laun æðstu
stjórnenda
hækka
KJARAMÁL Laun æðstu stjórnenda
Reykjavíkurborgar hækkuðu um
3% um áramótin, samkvæmt úr-
skurði kjaranefndar Reykjavík-
urborgar.
Í forsendum úrskurðar nefndar-
innar segir að Kjaradómur hafi
ákveðið að laun æðstu embættis-
manna landsins hækki um 7% frá
1. janúar, þó með þeirri undan-
tekningu að laun forseta hækka
um 3%. Ennfremur liggi fyrir úr-
skurður kjaranefndar ríkisins
um að laun þeirra embættis-
manna sem undir kjaranefnd
heyra skuli hækka um 7% frá 1.
janúar 2003 að telja. Loks liggi
fyrir að laun alls þorra starfs-
manna Reykjavíkurborgar skuli
hækka um 3% frá 1. janúar.
Kjaranefnd Reykjavíkurborg-
ar hafi með hliðsjón af því ákveð-
ið að laun þeirra sem undir
nefndina heyra skuli hækka um
3%. ■
BÍLVELTA Á NORÐFJARÐARVEGI
Bíll valt á Norðfjarðarvegi um
tíuleytið í gærmorgun. Í bílnum
voru hjón með tvö börn og
sluppu allir ómeiddir. Að sögn
lögreglunnar á Egilsstöðum mis-
sti bílstjórinn stjórn á bílnum
vegna hálku.
ÞUNNUR ÍS Á ELLIÐAVATNI Til-
kynningar um að börn væru að
leik hjá stíflunni við Elliðavatn
bárust lögreglunni í Kópavogi í
gær. Vill lögreglan koma þeim
skilaboðum til foreldra að brýna
fyrir börnum sínum að fara ekki
út á vatnið, þar sem ísinn er
mjög þunnur.
FANGELSI FYRIR ÍTREKUÐ BROT
Rúmlega tvítugur maður á Akur-
eyri hefur verið dæmdur í níu
mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir að aka ölvaður og án öku-
réttinda og skemmdarverk á hót-
elhurð. Sjö mánuði eru skilorðs-
bundnir. Maðurinn hefur ítrekað
áður komist í kast við lögin.
FLÖSKUMAÐUR SLEPPUR Maður
á 24. aldursári hefur verið dæmd-
ur fyrir að berja sér ári yngri
mann með flösku í höfuðið á
dansleik á Mývatni. Ákvörðun
refsingar var frestað og fellur
hún niður eftir tvö ár brjóti árás-
armaðurinn ekki af sér að nýju
innan þess tíma.
LÖGREGLUFRÉTTIR
EINAR
NJÁLSSON
Vill tengja
Suðurland við
Suðurnes.
JOHN EDWARDS
Ýmsir hafa gert því skóna að Edwards geti
gert atlögu að vígi George W. Bush í suð-
urríkjum Bandaríkjanna.
Forkosningar:
Þrír í
slaginn
WASHINGTON, AP Öldungadeildar-
þingmaðurinn John Edwards til-
kynnti í gær að hann muni sækj-
ast eftir útnefningu Demókrata-
flokksins fyrir forsetakosning-
arnar á næsta ári.
Edwards, sem kvaðst vilja
berjast fyrir hagsmunum venju-
legs fólks, er þriðji demókratinn
til að hefja baráttu fyrir útnefn-
ingu sem forsetaefni demókrata.
Áður hafa öldungadeildarþing-
maðurinn John Kerry og fylkis-
stjóri Vermont, Howard Dean,
sett upp nefndir til að vinna að
framboði sínu. Búist er við að Jos-
eph Lieberman, fyrrum varafor-
setaefni Al Gore, og Tom Daschle,
leiðtogi demókrata í öldunga-
deildinni, gefi líka kost á sér. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T