Fréttablaðið - 03.01.2003, Síða 6
6 3. janúar 2003 FÖSTUDAGURVEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 30
1.
2.
3.
Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunn-
ar kom sex mönnum til bjargar
af norsku flutningaskipi að
morgni gamlársdags. Hvað
heitir skipið?
Til stendur að leggja braut yfir
Kleppsvík í Reykjavík. Hvað
kallast brautin jafnan?
Harrison Ford kvikmyndaleikari
trúlofaði sig á dögunum. Hvað
heitir sú lukkulega?
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 80.77 0.00%
Sterlingspund 130.09 0.00%
Dönsk króna 11.41 0.00%
Evra 84.71 0.00%
Gengisvístala krónu 125,03 0,00%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 0
Velta 0
ICEX-15 1.334 0,00%
Mestu viðskipti
Engin viðskipti
Mesta hækkun
Engin viðskipti
Mesta lækkun
Engin viðskipti
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 8531,8 2,3%
Nasdaq*: 1365,4 2,2%
FTSE: 3992,5 1,3%
DAX: 3320,9 0,5%
Nikkei: 8579,0 -1,6%
S&P*: 899,0 2,2%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00
SIXTIES
í kvöld
kaffi@kaffireykjavik.com kaffi@kaffireykjavik.com
EVRÓPA
PEKING, AP Kínverjar vonast til að
verða þriðja ríki heims til að
koma sér upp eigin geimferða-
áætlun þar sem menn verða send-
ir út í heiminn. Þessu markmiði
vonast þeir til að ná áður en árið
er úti.
Kínverjar skutu ómannaðri
geimflaug á loft síðasta mánudag.
Fréttir frá Kína herma að næst
þegar Kínverjar skjóta geimfari á
loft verði í það minnsta einn geim-
fari um borð. Gert er ráð fyrir að
það gerist á síðari hluta ársins.
Kínverjar bætast þá í hóp Banda-
ríkjamanna og Rússa en það eru
einu þjóðirnar sem hafa afrekað
að senda mönnuð geimför út fyrir
gufuhvolf jarðar.
Kínversk stjórnvöld hafa látið
mjög vel af geimferðaáætlun
sinni, sem þau telja til marks um
öra tæknivæðingu þessa fjöl-
mennasta ríkis heims. Stjórnvöld
hafa hingað til farið leynt með til-
raunir sínar í þessum efnum og
ekki kynnt þær fyrirfram. ■
Mannaðar geimferðir
undirbúnar:
Kínverjar
horfa til
himins
HIÐ FJÓRÐA HELGA
FAR TEKST Á LOFT
Shenzhou 4 var skotið á loft síðasta mánu-
dag, aðeins tíu mánuðum á eftir Shenzhou
3. Aukinn kraftur hefur verið settur í geim-
rannsóknir Kínverja.
FÁTÆKT „Þetta var þörf áminning
hjá forsetanum fyrir okkur öll.
Hins vegar brugðumst við við
þessu fyrir nokkrum mánuðum,
höfum reynt að átta okkur á því
hvaða hópar eiga þarna í hlut. Við
teljum að það sé lykilinn að því að
geta fengist við vandamálið, sem er
annars vegar að greiða eitthvað
götu fólks sem býr við þessa skelfi-
legu stöðu í dag og líka að reyna að
leggja á ráðin um að fyrirbyggja að
svo miklu leyti sem mögulegt er að
þetta haldi áfram að hlaða utan á
sig,“ sagði Grétar Þorsteinsson,
forseti Alþýðusambands Íslands,
um nýársávarp forseta Íslands.
Forsetinn gerði fátæktina að
umtalsefni, sagði það þversögn að
hún ykist í miðri gósentíð. Hann hét
á forystu launafólks að veita nú
sams konar leiðsögn í glímunni við
fátæktina og veitt var í andófi gegn
verðbólgu fyrir réttu ári.
„Sú vinna er þegar hafin. Við
höfum átt viðræður við fjölda sam-
taka og stofnana um þetta og ætlum
í byrjun febrúar að vera komin með
hugmyndir um hvernig við tökumst
á við vandann. Vafalaust munum
við leita eftir því við stjórnvöld að
þau leggi sitt af mörkum. Við ætl-
umst til þess að allir geti gengið að
ákveðnum mannréttindum í samfé-
laginu. Þau lúta meðal annars að
því að hafa viðunandi húsnæði og í
sig og á. Við þurfum að ná samstöðu
um lausn vandans, hverjum hann er
að kenna skiptir ekki máli nú,“
sagði Grétar Þorsteinsson. ■
Verkalýðshreyfingin fagnar fátæktarumræðu forseta Íslands:
Leitum lausnar, ekki sökudólgs
GRÉTAR ÞORSTEINSSON
Segir verkalýðshreyfinguna hafa brugðist við
vaxandi fátækt fyrir nokkrum mánuðum.
Áætlunar sé að vænta í byrjun febrúar.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Banaslys árið 2002:
Flestir létust
í umferðinni
BANASLYS Fjörutíu og tveir einstak-
lingar létust vegna slysfara árið
2002. Tuttugu og þrír karlar fórust
á árinu, tólf konur og sjö börn. Um-
ferðarslys reyndust nú sem
endranær eiga stóran hluta að
máli. Tuttugu og níu manns létust í
tuttugu og tveimur slysum. Flest
voru slysin á fyrstu þremur mán-
uðum ársins eða níu þegar jafn
margir létust. Af öðrum slysum
létust tveir vegna sjóslysa, tveir
drukknuðu, tveir létust í svoköll-
uðu frítímaslysum og sjö vegna
slysa í heimahúsum.
Umferðarslys voru langalgeng-
ust í dreifbýli og létust tuttugu og
sjö manns á móti tveimur í þétt-
býli. Í báðum tilvikum var ekið á
staur. Af þeim sem létust voru tólf
ökumenn, sextán farþegar og einn
gangandi vegfarendi. Tveir er-
lendir ríkisborgarar létust í slys-
um hér á landi á árinu.
Sé litið á fjölda banaslysa og lát-
inna eftir kjördæmum kemur í ljós
að flest slysin urðu á Suðurlandi.
Voru þau sex talsins og létust átta
manns. Fæst urðu banaslysin í
Reykjavík eða eitt talsins. ■
VEGSKILTIÐ Á SUÐURLANDSVEGI
Skiltið á Suðurlandsvegi sýnir töluna 0 á
nýgengnu ári. Árið 2002 var tala látinna
komin í 29.
ALDURSSKIPTING LÁTINNA
VEGNA UMFERÐARSLYSA
Á ÁRINU 2002:
0-6 ára 2
7-14 ára 3
15-16 ára 0
17-20 ára 1
21-24 ára 3
25-64 ára 14
65 ára og eldri 9
SVEITARSTJÓRNARMÁL Lögmaður
Kópavogsbæjar hefur sent fé-
lagsmálaráðuneytinu athuga-
semd við stjórnsýslukæru vegna
lóðaúthlutunar í Vatnsenda-
hverfi. Hann krefst þess að
kærunni verði vísað frá ráðu-
neytinu.
Kærandinn telur að jafnræðis-
regla hafi verið brotin við úthlut-
un lóða í hverfinu. Krefst hann
þess að úthlutunin verði felld úr
gildi og lóðunum endurúthlutað
með lögmætum hætti. Guðjón
Bragason, lögfræðingur á skrif-
stofu sveitarstjórnarmála í fé-
lagsmálaráðuneytinu, segir
Kópavogsbæ telja að ráðuneytið
geti ekki ógilt úthlutunina nema
þeir aðilar sem hafi fengið út-
hlutað komi að málinu og þeim
verði veittur andmælaréttur.
„Þetta mál er á frekar tækni-
legu stigi þessa stundina,“ segir
Guðjón. Félagsmálaráðuneytið
sendi Kópavogsbæ erindi 19.
nóvember, þar sem óskað var eft-
ir upplýsingum um hvaða verk-
lagsreglur hafi verið í gildi við
val á umsækjendum lóða. Að
sögn Guðjóns kom fram að engar
skriflegar reglur hafi verið í
gildi en eftir að kæran hafi borist
hafi slíkar reglur verið settar á
blað.
Félagsmálaráðuneytinu hafa
áður borist stjórnsýslukærur
vegna lóðaúthlutana sveitarfé-
laga, meðal annars í Mosfellsbæ,
Hafnarfirði og Garðabæ. Guðjón
segir að í þeim tilfellum hafi út-
hlutunin ekki verið úrskurðuð
ógild heldur hafi úrskurðarorðið
verið á þann veg að annmarkar
hafi verið á úthlutun og máls-
meðferð og þar af leiðandi verið
brotið gegn tilteknum ákvæðum
stjórnsýslulaga. Að hans sögn er
ekki útilokað að ráðuneytið kom-
ist að sömu niðurstöðu í þessu
máli. Ef það verði niðurstaðan
hafi kærandinn alltaf þann mögu-
leika að leita til dómstóla.
trausti@frettabladid.is
Vilja að Vatnsenda-
kæru verði vísað frá
Lögmaður Kópavogsbæjar krefst þess að stjórnsýslukæru vegna
lóðaúthlutunar í Vatnsendahverfi verði vísað frá félagsmálaráðuneytinu.
Talið líklegt að úthlutunin muni standa.
VATNSENDI
Félagsmálaráðuneytinu hefur áður borist stjórnsýslukæra vegna lóðaúthlutana sveitarfé-
laga. Í þeim tilfellum var úthlutunin ekki úrskurðuð ógild heldur var úrskurðarorðið á
þann veg að annmarkar hefðu verið á úthlutun og málsmeðferð þar af leiðandi brotið
gegn tilteknum ákvæðum stjórnsýslulaga.
OLÍUSLIKJAN TIL FRAKKLANDS
Olíu úr flutningaskipinu Prestige,
sem sökk úti af ströndum Spánar
um miðjan nóvember, er tekin að
berast á land í Frakklandi. Áður
hafði olían einungis borist á land á
Spáni. Ströndum var lokað á 100
kílómetra svæði og hreinsunar-
starf hafið.
BURT MEÐ SPUNAMEISTARANA
Michael Martin, forseti neðri
deildar breska þingsins, segir
tíma til kominn að stjórnvöld
hætti að láta almannatengslamenn
tala máli sínu. „Þeir eru algjör
plága.“ Hann sagði ráðherra eiga
að vera duglegri við að tala sjálfir
við blaðamenn.
14 ÁRA HLAUPIN Á BROTT Tyrk-
neskir saksóknarar hafa krafist
sjö ára fangelsisdóms yfir 24 ára
barþjóni fyrir að hafa haft mök
við 14 ára breska stúlku. Þau
höfðu kynnst þegar stúlkan var á
ferðalagi í Tyrklandi með foreldr-
um sínum. Eftir að heim var kom-
ið strauk hún úr heimahúsum og
fannst með manninum í Tyrklandi.
Fyrir sex árum hlaut karlmaður
700 króna sekt fyrir svipað brot.
RÚÐA SPRENGD Rúða var sprengd
í þjónustumiðstöð við Arnarbakka
í Breiðholti í fyrrakvöld. Flugeld-
ur hafði verið límdur á rúðuna og
kveikt í með fyrrgreindum afleið-
ingum.
BÍLVELTA Á VESTURLANDSVEGI
Bílvelta varð á Vesturlandsvegi
rétt eftir klukkan þrjú í fyrrinótt.
Tveir voru í bílnum og sakaði þá
ekki. Hálka var á veginum og
virðist sem ökumaður hafi misst
vald á bílnum.
SÍMKORTUM STOLIÐ Brotist var
inn í bensínstöð Esso við Stóra-
hjalla í Kópavogi í gærmorgun og
stolið símkortum að verðmæti um
200.000 kr. Málið er í rannsókn.