Fréttablaðið - 03.01.2003, Page 12

Fréttablaðið - 03.01.2003, Page 12
12 3. janúar 2003 FÖSTUDAGUR Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason og Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð- borgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. BRÉF TIL BLAÐSINS Ótrúlega búðin, ótrúleg Linda skrifar: Ég keypti tvö hjólabretti í Ótrú-legu búðinni fyrir jól á tæpar 2.000 krónur sem var mun hag- stæðara verð en annars staðar. Brettin gaf ég síðan sonum mín- um, tíu og átta ára. Það varð mikil hamingja þegar pakkarnir voru opnaðir en heldur kárnaði gaman- ið hjá þeim yngri. Sandpappír sem er á brettinu losnaði af og undir var brettið allt sprungið. Ég róaði drenginn og sagði honum að við gætum fengið nýtt strax og búðir opnuðu. Í Smáralind fengum við þær upplýsingar að brettin væru upp- seld og okkur bent á að fara í Kringluna. Þar var sama sagan og eins í búðinni á Laugaveginum. Nú var illt í efni. Stóri bróður á brett- inu sínu úti um allt og sá yngri sat hjá. Í huganum rifjaði ég upp neyt- endalögin en þau kveða á um að ef kaupmaður getur ekki lagað það sem aflaga er sé honum skylt að af- henda nýjan hlut í staðinn. Svo ein- falt er það. Ég legg leið mína í Smáralind aftur og heimta endur- greiðslu. Það var ekki hægt og haft samband við eiganda, sem staddur var í lager verslunarinnar að Bílds- höfða. Mér var sagt að fara þangað og myndi þá eigandinn endurgreiða mér upphæðina ef hann sæi eitt- hvað athugavert við brettið. Þegar þangað kom var engin á staðnum. Ég hringi í verslunina og er sagt að hringja eftir tvær mínútur. Þá var mér tjáð að eigandinn yrði ekki við fyrr en eftir áramót. Sagði ég kon- unni sem þurfti að svara fyrir allt og ekkert að ég ætlaði með málið í Neytendasamtökin. Hvað eru Ís- lendingar að hugsa ef þetta eru við- skiptahættirnir? ■ Síðustu daga liðins árs og íveisluhöldum hátíðanna var um fátt annað rætt en Ingibjörgu Sól- rúnu Gísladóttur. Hverju breytir það ef hún verður í 5. sæti á lista Samfylkingarinnar í öðru Reykja- víkurkjördæminu? Var skýlaus krafa samstarfsflokka Samfylk- ingarinnar í R-listanum um að hún segði af sér sem borgarstjóri byggð á ótta eða brostnu trausti? Ofmat Ingibjörg styrk sinn? Of- metum við yfirhöfuð styrk ein- staklinga í stjórnmálum? Samfylkingarmenn sögðu það söguleg tíðindi að Ingibjörg hefði nú valið sér landsmálin sem póli- tískan vettvang. Þau yrðu ekki söm á eftir. Andstæðingar Sam- fylkingarinnar gerðu lítið úr ákvörðun Ingibjargar; lýstu henni sem kostulegum misskilningi – að hún hefði misst stjórn á atburða- rásinni og sæti uppi með að hafa fórnað starfi borgarstjóra fyrir varamannssæti í þingliði Samfylk- ingarinnar. Innkoma hennar í landsmálin breytti sáralitlu; kosn- ingarnar í vor myndu snúast um málefni frekar en menn – allra síst eina konu. Samt var fátt rætt um málefni í öllum þeim kjaftavaðli sem fylgir áramótum á sjónvarps- og út- varpsstöðvum. Það var helst að Ólafur Ragnar Grímsson forseti fyndi málefni í áramótaávarpi sínu; vangetu velferðarkerfisins til að hjálpa þeim sem helst eru hjálparþurfi. Davíð Oddsson for- sætisráðherra lagði mestan þunga á traust á stjórnmálamönnum – á menn fremur en málefni. Auðvitað ættu stjórnmál að snú- ast um málefni. En auðvitað snúast þau um menn. Þegar stefnuskrár flokkana fyrir kosningarnar verða skoðaðar mun ekki verða hægt að greina skýra valkosti milli þeirra. Allir munu vilja allt fyrir alla gera. Við munum merkja örlítinn blæ- brigðamun í Evrópu- og virkjunar- málum. Þetta verða hins vegar ekki kosningamálin. Kosningabar- áttan mun snúast um hverjir eru hæfastir til að stjórna landinu – ekki hvaða stefnu þeir velja. Um allan hinn vestræna heim hafa stjórnmálaflokkar á undan- förnum áratugum stefnt frá könt- unum að miðjunni. Miðjan er við- hald óbreytt ástands; styrking og efling þess sem þegar hefur verið ákveðið – engar nýjar lausnir; ekk- ert sem ruggar bátnum – stjórn- málastefna fyrir þá sem eru til- tölulega sáttir við stöðu sína; milli- stéttina. Það sem aðgreinir flokka með keimlíka stefnu eru mennirn- ir á listunum. Kosningarnar í vor verða um blæbrigðamun í per- sónugerð þeirra, stíl og lundarfari. Ef við viljum kjósa um annað og meira viljum við í raun annað sam- félag en við lifum í. ■ skrifar um mikilvægi manna og málefna í stjórnmálum dagsins. Mín skoðun GUNNAR SMÁRI EGILSSON EFNAHAGSMÁL Samdráttur varð í landsframleiðslu á þriðja árs- fjórðungi ársins samkvæmt Þjóð- hagsreikningum Hagstofu Ís- lands. Þetta er í fyrsta skiptið sem landsframleiðsla dregst saman frá því að samantekt þjóðhags- reikninga hófst árið 1998. Einka- neysla er nánast óbreytt, en fjár- festing dróst saman um tæp 23%, sem skýrir að mestu samdráttinn í landsframleiðslunni. Hagvöxtur undanfarinna missera er einkum rakinn til samdráttar í innflutn- ingi eða vaxtar í útflutningi. Því er ekki að heilsa á þriðja ársfjórð- ungi. Meðan einkaneysla stendur í stað er vöxtur í útgjöldum hins opinbera. Björn Rúnar Guðmundsson hjá greiningardeild Búnaðarbanka segir í sjálfu sér ekkert koma á óvart í þjóðhagsreikningunum. Hann bendir á að minni vöxtur hafi verið í útflutningi en áður. Skýringanna kunni að vera að leita í birgðasöfnun. Lítið þurfi því að breytast til þess að hagvaxtarspá bankans um að hagvöxtur ársins verði 0% gangi eftir. ■ Þjóðhagsreikningar Hagstofunnar: Samdráttur í landsframleiðslu DÓMSMÁL Atli Helgason, bana- maður Einars Arnar Birgis, kref- st þess að máli Birgis Arnar Birgis, föður Einars, gegn sér og eiginkonu sinni verði vísað frá dómi. Birgir Örn vill að kaupmála, sem Atli og eiginkona hans gerðu þegar þau gengu í hjónaband, verði rift og þau verði sameigin- lega dæmd til að greiða 12 millj- ónir króna. Atli hefur verið úrskurðaður gjaldþrota. Samtals námu kröfur í bú hans rúmum 29 milljónum króna. Atli og eiginkona hans hófu sambúð á árinu 1999. Kaupmál- inn var gerður þegar þau gengu í hjónaband í lok júlí 2000. Í greinargerð lögmanns Atla, sem lögð var fyrir Héraðsdóm Reykjaness, segir að Birgir Örn hafi enga heimild til að reka mál fyrir þrotabú Atla eins og hann virðist telja sig vera að gera. Skiptastjóri í búinu hefur þegar gefið út yfirlýsingu um að enginn grundvöllur sé til máls- höfðunar vegna kaupmálans. Lögmenn kröfuhafa gerðu engar athugasemdir við yfirlýsingu hans. Lögmaður Atla segir að kröfugerðin sé að auki með öllu óskiljanleg, til dæmis sé upp- hæð kröfunnar ekki skýrð einu orði. Lögmaðurinn segir kaupmál- ann fullkomlega eðlilegan þar sem mjög mikill munur hafi ver- ið á eignastöðu Atla og eiginkonu hans. Í honum hafi verið skráðar staðreyndir um fjárhagstöðu hjónanna. Eftir að Atli hafi slitið sambúð við fyrri konu sína á ár- inu 1998 hafi skuldir hans um- fram eignir numið 7,3 milljónum króna. Verðandi eiginkona Atla hafi á hinn bóginn átt verulegar eignir bundnar í íbúð, hlutabréfum og bíl. Eign hennar hafi verið notuð til að kaupa lóð og byggja á því hús. Eðlilegt hafi því verið að telja húsið sem hennar séreign. Í aðilaskýrslu, sem lögð var fram með greinargerð lögmanns Atla, segir að kaupmálinn hafi verið fullkomlega eðlileg trygg- ingarráðstöfun með hagsmuni eiginkonu Atla og dóttur hennar úr fyrri sambúð í huga: „Raunar má segja að annað hefði verið í hæsta máta óeðli- legt og óvarlegt,“ segir í skýrsl- unni. Þar segir enn fremur að gjaldþrot Atla hafi verið fjar- lægt og óraunhæft á þeim tíma sem kaupmálinn var gerður. gar@frettabladid.is Kaupmáli sagður eðlileg ráðstöfun Skiptastjóri í þrotabúi Atla Helgasonar segir ekki grundvöll til mála- ferla vegna kaupmála Atla og eiginkonu hans. Atli krefst frávísunar. FANGAKLEFI Atli Helgason situr á Litla-Hrauni fyrir að hafa banað Einari Erni Birgis fyrir rúmum tveimur árum. Faðir Einars telur Atla hafa skotið eignum undan gjaldþrotaskiptum með kaupmála um að hús sem Atli bjó í ásamt konu sinni væri hennar séreign. Keimlíkt fólk með keimlíka stefnu RACIP TAYYIP ERDOGAN OG VLADIMÍR PÚTÍN Forseti Tyrklands brá sér á fund Rússlandsforseta í Moskvu um jólin. Leiðtogi tyrkneska stjórnarflokksins: Breyting í deilunni ANKARA, AP Racip Tayyip Erdogan, leiðtogi tyrkneska stjórnarflokks- ins, hefur lýst andstöðu sinni við harðlínustefnu leiðtoga Kýpur- tyrkja, sem hefur verið tregur til að samþykkja sáttatillögur Sameinuðu þjóðanna um lausn á Kýpurdeilunni. „Ég er ekki fylgjandi þeirri stefnu sem fylgt hefur verið á Kýp- ur undanfarin 30 til 40 ár,“ sagði Erdogan. Jafnt almenningur í Tyrklandi sem meirihluti Kýpurtyrkja virðist vera fylgjandi því að samið verði um að stofna sambandsríki á Kýpur að svissneskri fyrirmynd. Náist ekki samkomulag fær eingöngu gríski hluti eyjunnar aðild að Evr- ópusambandinu. ■ Héraðsdómur: Biskup ekki bættur DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- víkur hefur sýknað konu af skaða- bótakröfu manns, en þau eru eigendur stóðhestsins Hóla-Bisk- ups. Sonur mannsins sagði konuna hafa selt hestinn til Finnlands án samþykkis föður síns. Þannig hafi hann misst eignarhald sitt á skepnunni. Hesturinn mun hafa verið fluttur utan en vera óseldur. Hér- aðsdómur samþykkti gagnkröfu konunnar um að maðurinn greiddi henni 367 þúsund króna fóður- kostnað og annað kostnað við um- hirðu hrossins sem hún greiddi frá árinu 1998 til ársins 2001. ■ AP /S ER G EI K AR PU KH IN Stakk konu með hnífi: Lengur í gæslu LÖGREGLUMÁL Lögreglan í Reykjavík fór fram á að gæsluvarðhaldi yfir manni sem grunaður er um að hafa á aðfangadagskvöld stungið konu með hnífi í bringu í heimahúsi í Fellahverfi í Breiðholti yrði fram- lengt. Féllst Héraðsdómur Reykja- víkur á beiðnina og framlengdi úr- skurðinn um viku eða til 6. janúar. Konan og maðurinn voru bæði ölvuð þegar atvikið átti sér stað. Hefur það m.a. átt þátt í því að rann- sókn hefur dregist að sögn Harðar Jóhannessonar yfirlögregluþjóns. ■ Tækifærið gekk úr greipum Haraldur Haraldsson skrifar: Skaði að Reykjavíkurlistinnskyldi ekki splundrast. Þá hefði sú ótrúlega staða komið upp að all- ir fengju óskir sínar uppfylltar. Sjálfstæðisflokkurinn hefði komist til valda fyrir sundrung vinstri manna. Hans uppáhalds- íþrótt. Framsókn hefði fengið að sitja, þeirra uppáhaldsíþrótt, Al- freð hefði fengið orkuveituna áfram og Kárahnúkavirkjun verið gulltryggð. Samfylkingin hefði fengið forystumann strax og byrj- að að verða 30-40% flokkur. Vinstri grænir hefðu fengið báðum hug- sjónum sínum framgengt, það er að vera í stjórnarandstöðu og að Sjálfstæðisflokkurinn sitji við völd. En þetta tækifæri, til að kenna veröldinni nýja tegund stjórnmála þar sem allir stjórnmálaflokkar fá allt sem þeir vilja, gekk úr greip- um. Skaði. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.