Fréttablaðið - 01.03.2003, Side 1
KURTEISI
Nýjum siðum
fylgja nýjar reglur
bls. 20
Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Laugardagurinn 1. mars 2003
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Bíó 28
Íþróttir 10
Sjónvarp 30
KVÖLDIÐ Í KVÖLD
SÝNING Hundasýning Hundaræktar-
félags Íslands hefst í reiðhöll Gusts
klukkan 9.30. Þetta er umfangs-
mesta sýning á vegum félagsins til
þessa en sýndir verða um 350
hundar af 54 tegundum sem marg-
ar hverjar hafa ekki sést hér á
landi áður.
Umfangsmikil
hundasýning
HÁTÍÐ Margt verður á boðstólum á
öðrum degi Vetrarhátíðar í Reykja-
vík og ættu allir að geta fundið eitt-
hvað við sitt hæfi. Hátíðin stendur
yfir í þrjá daga en dagskrána má
nálgast í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Mikið um dýrðir
á Vetrarhátíð
TÓNLEIKAR Óperustjörnurnar Eteri
Gvazava sópran og Bjarni Thor
Kristinsson ásamt Jónasi Ingi-
mundarsyni píanóleikara halda tón-
leika í Salnum í Kópavogi í kvöld
klukkan 20.00. Þar munu þau bjóða
áheyrendum í spennandi söng-
ferðalag frá Rússlandi til Íslands.
Spennandi söng-
ferðalag
MYNDLIST Franski myndlistarmað-
urinn Serge Comte opnar fyrstu
einkasýningu sína á Íslandi í Ný-
listasafninu klukkan 16.00. Hann er
búsettur hérlendis en hefur að
mestu sýnt erlendis, þá einkum í
París.
Myndverk frá
Frakklandi
ÍÞRÓTTIR
Yfirburða-
vinsældir Ólafs
LAUGARDAGUR
51. tölublað – 3. árgangur
bls. 18
STJÖRNUSPEKI
Of lík til að
þola hvort annað
bls. 16
REYKJAVÍK Austlæg átt 3-8
m/s. Skýjað og rigning öðru
hverju. Hiti 4 til 8 stig.
VEÐRIÐ Í DAG
VINDUR ÚRKOMA HITI
Ísafjörður 8-13 Skýjað 6
Akureyri 10-15 Skýjað 5
Egilsstaðir 10-15 Rigning 4
Vestmannaeyjar 3-8 Rigning 7
➜
➜
➜
➜
+
+
+
+
NOKKRAR STAÐREYNDIR UM
MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 69,6% SAMKVÆMT
FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í OKTÓBER 2002.
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Meðallestur vikunnar
meðal 25 til 49 ára
samkvæmt
fjölmiðlakönnun
Gallup frá
október 2002
29%
D
V
80.000 eintök
70% fólks les blaðið
Hvaða blöð
lesa 25 til 49
ára íbúar á
höfuðborgar-
svæðinu?
62%
72%
VIÐSKIPTI Hreinn Loftsson, stjórnar-
formaður Baugs og fyrrverandi
formaður einkavæðingarnefndar,
lýsti því fyrir stjórnarmönnum í
Baugi í endaðan jan-
úar í fyrra að á fundi
sínum með Davíð
Oddssyni í London
hefði forsætisráð-
herra lýst því að
spilling ætti sér stað
hjá feðgunum Jóni
Ásgeiri Jóhann-
essyni, forstjóra
Baugs, og Jóhannesi
Jónssyni, stjórnar-
manni fyrirtækis-
ins. Í því samhengi
nefndi Davíð, að
sögn Hreins, fyrir-
tækið Nordica og
forráðamann þess
Jón „Gerhard“. Sjö
mánuðum eftir
fundinn í London, þar sem Hreinn
tilkynnti Davíð að hann segði af sér
stjórnarformennsku í einkavæð-
ingarnefnd vegna
ummæla ráðherr-
ans í þingræðu,
réðst lögreglan
inn í höfuðstöðv-
ar Baugs á grund-
velli kæru frá
Jóni Gerald Sull-
enberger, for-
ráðamanns Nord-
ica.
Rúmu ári eftir
fundinn í London
sagðist Davíð
Oddsson ekki
hafa heyrt minnst
á Jón Gerald Sull-
enberger fyrr en í tengslum við lög-
reglurannsóknina á Baugi.
Hreinn varaði aðra stjórnendur
Baugs við því strax eftir fundinn
með Davíð í London að þess væri að
vænta að yfirvöld samkeppnismála,
skattamála eða lögregla myndu eitt-
hvað aðhafast gagnvart fyrirtæk-
inu á næstunni. Á stjórnarfundi í
Baugi í febrúar í fyrra lýstu stjórn-
armenn miklum áhyggjum sínum
vegna andúðar forsætisráðherra á
Baugi. Stjórnarmenn ræddu málið í
þaula og þar kom fram hjá Þorgeiri
Baldurssyni, stjórnarmanni og for-
manni fjáröflunarnefndar Sjálf-
stæðisflokksins, að „valdamiklir að-
ilar í viðskiptalífinu hefðu miklar
áhyggjur“ vegna forsætisráðherra.
Þar var fært til bókar að fyrirtækið
Nordica hefði verið tengt Baugi.
Fréttablaðið hefur undir höndum
afrit af fundargerðum Baugs og
tölvuskeytum þar sem Hreinn gerði
grein fyrir fundi sínum með Davíð
og bað menn að vera á varðbergi.
Tilraunir til að ná í Davíð Odds-
son forsætisráðherra báru ekki ár-
angur. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
forsætisráðherraefni Samfylking-
arinnar, vildi að svo stöddu ekki tjá
sig um málið.
Óttuðust afskipti
forsætisráðherra
Hreinn Loftsson upplýsti stjórnarmenn í Baugi um það fyrir ári að forsætisráðherra hefði
sakað Baugsfeðga um spillingu og sagt sér frá Nordica og Jóni Gerald Sullenberger. Stjórnar-
fundur í Baugi í febrúar 2002 gekk út á andúð Davíðs og viðvaranir Hreins.
Hreinn varaði
aðra stjórn-
endur Baugs
við því strax
eftir fundinn
með Davíð í
London að
þess væri að
vænta að yfir-
völd sam-
keppnismála,
skattamála
eða lögregla
myndu eitt-
hvað aðhafast
gagnvart fyrir-
tækinu.
MÓTMÆLI Náttúruverndarsinnar
sem fjölmenntu í Hálendisgöngu
um miðbæ Reykjavíkur í fyrra-
dag undir forystu Guðrúnar Ás-
mundsdóttur leikkonu fengu ekki
að enda gönguna með bænastund í
Dómkirkjunni. Prestar safnaðar-
ins höfnuðu ósk Guðrúnar um að
göngufólk fengi að eiga hljóða
stund í bæn í kirkjunni í göngulok.
Þess í stað baðst hópurinn fyrir
undir beru lofti á Austurvelli:
„Mig tekur sárt að þetta sé lagt
út á þennan veg,“ segir séra
Hjálmar Jónsson dómkirkjuprest-
ur. „Kirkjan er öllum opin en hún
lætur ekki blanda sér í mótmæli.“
Séra Hjálmar var í kirkjunni
við undirbúning barnastarfs þeg-
ar göngufólk kom á Austurvöll.
Hafði hann dyr kirkjunnar opnar
en aðeins einstaka maður leit inn:
„Það var ljúft í sjálfu sér en okkur
finnst ekki passa að kirkjan sé lið-
ur í auglýstum mótmælum. Hún
stendur utan þeirra en er samt öll-
um opin,“ segir séra Hjálmar.
Í bænastund Guðrúnar Ás-
mundsdóttur á Austurvelli gat
leikkonan þess sérstaklega að
prestar Dómkirkjunnar hefðu
hafnað ósk hennar um inngöngu.
Tók göngufólk undir vonbrigði
hennar vegna þess. ■
Göngumenn vildu enda með bænastund:
Dómkirkjunni lokað
á mótmælendur
DÓMKIRKJAN
Lætur ekki blanda sér í mótmæli.
DAVÍÐ ODDSSON
Fundaði með Hreini
Loftssyni í London.
HREINN
LOFTSSON
Sagði samstarfs-
mönnum sínum
hjá Baugi að vera
á varðbergi.
Ætlarðu til Mombasa,
út á Dalvík, til New Orleans
eða upp á Brávallagötu?
Sími: . . . . . . . . . 5050 600
Fax: . . . . . . . . . 5050 650
Netfang: hertz@hertz.is
er með frábær tilboð
á bílaleigubílum um allan heim.
Ekki eyða öllum gjaldeyrinum í leigubíla.
Pantaðu bíl hjá Hertz.
Nánar á bls. 12 og 13
rt@frettabladid.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
IL
LI