Fréttablaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 38
Byrjið á því að fá ykkurgöngutúr í kringum Reykja- víkurtjörn. Vetrarhátíð stendur sem hæst og ljósaverk sóma sér vel í Tjörninni. Farið síðan upp í Þjóðleikhús en þar er ókeypis ráðstefna um hlátur og gildi hans í myrkrinu. Fræðimenn og leikar- ar fjalla þar um gleðina sem fylg- ir hlátrinum klukkan 13. Alltaf gaman að koma í Þjóðleikhúsið. Klukkan 18 verða stuttmyndir af ýmsum gerðar sýndar undir ber- um himni á Ingólfstorgi. Skömmu síðar heyja Danir og Íslendingar einvígi í vatni í Sundhöllinni und- ir beljandi ljósum og dynjandi tónlist. Hápunkturinn er svo gjörningur sem framinn verður við Perluna klukkan 20.45. Þar sameina krafta sína ungir lista- menn og Slökkvilið höfuðborgar- svæðisins í innsetningu á hlið- stæðu. Svo er nóttin eftir og ekki víst að hún verði alveg ókeypis eins og allt hitt sem að framan greinir. ■ 38 1. mars 2003 LAUGARDAGUR 54 ÁRA „Nei, það verður ekkert sérstakt gert í tilefni dagsins. Kannski ein vínarbrauðssneið og kaffi með mínum nánustu. Enda er þetta nú ekkert stórafmæli,“ segir Lárus Ýmir Óskarsson kvikmyndagerðarmaður, en hann verður 54 ára í dag. Aðspurður segir hann gráa fiðringinn löngu genginn yfir og honum lítist vel á þennan aldur. Hvað afmælisgjafir snertir hef- ur honum ekki tekist að hlera neitt en hugsanlega fái hann sokka eða eitthvað slíkt. „Ég bíð spenntur.“ Einn ánægjulegasti afmælis- dagurinn var þegar Lárus Ýmir varð þrítugur. Þá var hann í Stokkhólmi og var slegið upp veislu með miklum og góðum hópi samheldinna og skemmti- legra Íslendinga á borð við Þráin Bertelsson, Þórarin Eldjárn, Hallmar Sigurðsson, Gunnar Gunnarsson fréttamann, Kára Halldór, Lísbet Sveinsdóttur og fullt af öðrum góðum vinum og góðu fólki. En eftirminnilegasta afmælið var ekki jafn ánægju- legt. „Þegar ég fer að vorkenna mér, sem er ekki oft, hugsa ég til fertugsafmælisins, sem var ekki alveg jafn skrautlegt. Ég var í Stokkhólmi í stuttri ferð, hafði fengið lánaða þessa fínu íbúð á besta stað hjá kunningja mínum. En þennan dag þegar ég fór út um morguninn, að kaupa mér eitthvað góðgæti í tilefni dagsins, gleymdi ég lyklinum inni í íbúð- inni. Þessi vinur minn var á ferðalagi þannig að ég hafði uppi á lásasmið. Eftir að hafa setið á hækjum mínum í fjóra tíma að bíða hans fór við langur tími í að sannfæra hann um að ég hefði aðgang að íbúðinni. Ekki sú há- tíðarstemning sem ég hafði hugs- að mér.“ Fimmtugur fékk Lárus Ýmir höfðinglega gjöf sem hann ætlar að nýta sér nú í apríl. „Flottasta og skemmtilegasta gjöfin sem fel- ur væntanlega í sér lífsreynslu þegar upp er staðið. Þetta er ferð að eigin vali og skilyrði að ég fari eitthvað sem ég færi ekki annars. Og ég ætla að nota tækifærið og þjóna dellu sem ég er nýlega bú- inn að koma mér upp. Ætla að lifa eins og blóm í eggi og spila golf á einhverjum ægilega fínum stað og borða góðan mat.“ jakob@frettabladid.is AFMÆLI Maður er náttúrlega veiðisjúk-lingur og þar sem Kristján var að segja frá veiðinni í Þveit í síðustu viku er best að ég haldi áfram með veiðisögurnar. Þannig er mál með vexti að þann fyrsta apríl á hverju ári förum við Björgvin Gíslason að veiða í Skaftá frá Nýjabæ við Kirkjubæjarklaustur hjá Þorsteini bónda. Við erum farnir að hita okk- ur upp en þetta er þrettánda árið sem við förum. Við erum alltaf í tvo daga og höfum alltaf verið þarna í frábæru veðri og borðum alltaf nestið okkar úti. Við fáum alltaf sól en fiskiríið er misjafnt. Það veiddist lítið hjá mér að þessu sinni en Björgvini gekk ágætlega. Til að gera langa sögu stutta þá var ég þarna úrkula vonar á bakkanum á seinni degi og kastaði í hyl sem heit- ir Lækjarmót. Þegar ég er að draga fluguna upp að mér rennir fiskur sér skyndilega að og bítur á. Mér brá rosalega við þetta, skrikaði fót- ur og datt aftur fyrir mig um skafl, eða frostbunka, sem var þarna á bakkanum. Þegar ég reisti mig við lá svo þessi sex punda hrygna við hliðina á mér. Ég held að það sé óhætt að segja að þetta sé sú veiði sem ég hef minnst þurft að hafa fyr- ir. Datt bara aftur fyrir mig á rass- inn og kippti fiskinum á land.“ ■ Þorleifur Guðjónsson, veitingamaður í Hamrabæ í Berufirði, segir frá auðveldri veiði og skorar á veiðifélaga sinn Björgvin Gíslason að segja næstu sögu. Sagan Stysta viðureignin LÁRUS ÝMIR ÓSKARSSON Fertugsafmælið var eftirminnilegt og jaðraði við að vera martröð. MEÐ SÚRMJÓLKINNI Jesús og Móses voru að spilagolf við þriðja mann. Móses sló fyrst og kúlan stefndi beint út í nærliggjandi vatn. Móses lyfti staf sínum þannig að vatn- ið vék og kúlan rúllaði eftir botninum upp á bakka. Jesús sló í sömu átt. Kúlan lenti einnig í vatninu, en flaut þar og Jesús gekk út á það og sló kúlunni á flötina án teljandi erfiðleika. Sá þriðji mundaði kylfuna og sló, einnig í átt að vatninu. Í þann mund sem kúlan er að lenda þar birtist froskur sem gleypir kúluna. Þá kemur örn svífandi, læsir klónum í frosk- inn og á leið sinni yfir flötina missir froskurinn kúluna, sem hafnar beint ofan í holunni. Þá segir Jesús: „Ofboðslega er leiðinlegt að spila við þig golf, pabbi.“ ■ ÞORLEIFUR GUÐJÓNSSON OG YLFA RÓS „Við fáum alltaf sól en fiskiríið er misjafnt. Það veiddist lítið hjá mér að þessu sinni en Björgvini gekk ágætlega.“ Grái fiðringur- inn að baki Lárus Ýmir Óskarsson kvikmyndagerðarmaður verður 54 ára í dag. JARÐARFARIR 13.30 Anna S. Bjarnadóttir, Hlíf 1, Ísa- firði, verður jarðsungin frá Ísa- fjarðarkirkju. 13.30 Hermann Eyjólfsson verður jarð- sunginn frá Hafnarkirkju. 14.00 Gísli Júlíus Stefánsson, bóndi í Ystakoti í Vestur-Landeyjum, verð- ur jarðsunginn frá Akureyjarkirkju í Vestur-Landeyjum. 14.00 Hafdís G. Jónsdóttir frá Eskifirði verður jarðsungin frá Eskifjarðar- kirkju. 14.00 Margrét B. Þorsteinsson, Lauga- skarði, Hveragerði, verður jarð- sungin frá Hveragerðiskirkju. 14.00 Sigrún Jónsdóttir frá Ölvaldsstöð- um verður jarðsungin frá Borgar- neskirkju. ANDLÁT Elísabet Þórhallsdóttir lést miðvikudag- inn 26. febrúar. Guðfinna T. Guðnadóttir frá Braut- artungu, Lundarreykjadal, lést miðviku- daginn 26. febrúar. TÍMAMÓT Hverafold 1–5 S. 567-6511 ÍTÖLSK meiriháttar flott föt fyrir flotta krakka á flottu verði. DISNEY föt fyrir yngri börnin. Póstsendum - Sími 567 6511 ÓKEYPIS FRÉTTIR AF FÓLKI FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Þrátt fyrir langvarandi þung-lyndi og hremmingar net- miðla, sem hafa flestir verið í dauðateygjunum frá því netbólan margfræga sprakk með látum fljótlega upp úr aldamótum, hafa netfyrirtækin blásið til sinnar fyrstu árshátíðar, sem fer fram á Hótel Íslandi þann 8. mars. Að- standendur gera sér vonir um að hátíðin heppnist vel og verði til þess að skerpa ímynd hinnar ungu greinar og hvetja alla sem telja sig starfa við netmiðlun til að mæta, sýna sig og sjá aðra. Þar sem bransinn sá ekki ástæðu til að hóa sér saman á meðan ný- liðarnir voru enn að brenna upp stofnhlutafé sínu og allt lék í lyndi mætti ætla að gleðin nú sé vísbending um bjartari tíma. Að gefnu tilefni skal tekið fram að fátt verður um kaldar kveðjur á Vetrarhátíð í Reykjavík. Leiðrétting Draupnir. Óðinn Jónsson. Skítamórall. 1. 2.. Svör við spurningum á bls. 6 3. Veistu svarið? Kjölbátasamband Íslands heldur fræðslufund, sem er öllum opinn, að Skúlagötu 30 (Domus Vox salurinn beint á móti Aktu-Taktu), mánudaginn 3. mars. kl. 20:00. Fræ›sluefni: Þau keyptu seglskútu og sigldu í 7 ár um Karíbahafið. Siglingasvæðið og reynsla þeirra verður kynnt í máli og myndum á fundinum. Gestir greiða kr. 800 og félagsmenn kr. 500. Veitingar innifaldar. Stjórnin Skútusiglingar á Karíbahafi Sjá nánar vefsí›ur okkar http://www.mmedia.is/KBI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.