Fréttablaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 13
hvort fyrirtækin hefðu í ein- hverju beitt sér óeðlilega með tilliti til samkeppnis- mála. Endurskoðunarfyrir- tækið KPMG annaðist úttekt þar sem horft var til þess hvort fyrirtækið hefði ekki farið að lögum með tilliti til ávirðinga um óeðlilega við- skiptahætti. KPMG skilaði niðurstöðu í maí. Þar voru ýmsar ábendingar um úr- bætur sem stjórn Baugs lét hrinda í framkvæmd. Eftir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, forsætisráð- herraefni Samfylkingar, sagði í ræðu í Borgarnesi þann 10. febrúar að stjórn- völd hefðu óeðlileg sam- skipti af fyrirtækjum svo sem Baugi og Norðurljósum brást forsætisráðherra illa við og sagði Ingibjörgu Sól- rúnu fara með slúður. Hann hefði aldrei heyrt minnst á Sullenberger. Eftirfarandi sagði Dav- íð í fréttum Stöðvar 2 sama dag: „Hún var með get- gátur og að hlusta eftir slúðri, engar stað- reyndir. Og var að reyna að draga fram að fyrst það hefði ver- ið skattrannsókn hjá Jóni Ólafssyni, for- stjóra þess fyrirtækis, að þá hlyti ég að vera á bak við það. Sama væri með Baug. Fyrst að starfs- maður þess erlendis, sem ég hef aldrei séð og aldrei heyrt nefnd- an fyrr en hann kom í fjölmiðlum og veit ekkert um, að fyrst að hann kærði fyrirtækið þá hlyti ég að vera á bak við það,“ sagði Dav- íð Oddsson rúmu ári eftir fund- inn með Hreini í London. Hreinn Loftsson vildi í samtali við Fréttablaðið í gær ekkert tjá sig um þessi mál. rt@frettabladid.is 13LAUGARDAGUR 1. mars 2003 HÖFUÐSTÖÐVAR BAUGS Lögreglan gerði húsleit hjá fyrir- tækinu á grundvelli kæru Jóns Geralds Sullenberger. HREINN LOFTSSON Sendi út viðvörun til helstu stjórnenda Baugs eftir fundinn með Davíð Oddssyni. 22. janúar 2002: Davíð Oddsson for- sætisráðherra segir að 60 prósenta eignaraðild matvælafyrirtækja á markaði sé alltof há og til greina komi að skipta upp slíkum fyrirtækjum. 26. janúar: Davíð Oddsson fundar með Hreini Loftssyni í London. Fyrirtækið Nor- dica nefnt í tengslum við Baug. Hreinn tilkynnir um afsögn sem formaður einka- væðingarnefndar. 28. janúar: Hreinn Loftsson leggur fram afsagnarbréf sitt til einkavæðingarnefnd- ar. 29. janúar: Hreinn Loftsson varar stjórn- endur Baugs við hugsanlegum aðgerðum yfirvalda. Stjórnarformaðurinn spyr um Jón Gerald sem hann segir að Davíð hafi nefnt og óskar eftir úttektum á Baugi með tilliti til þess hvort fyrirtækið hafi í einhverju brotið af sér. 14. febrúar: Stjórn Baugs ræðir opinskátt um andúð Davíðs á Baugi. Stjórnarfor- maður gerir grein fyrir Lundúnafundinum. 28. ágúst: Lögregla ræðst til inngöngu í Baug á grundvelli kæru Jóns Geralds Sullenberger, forráðamanns Nordica. 10. febrúar 2003: Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir, forsætisráðherraefni Samfylkingar, segir í ræðu í Borgarnesi að stjórnvöld hafi óeðlileg afskipti af fyrirtækjum. 10. febrúar 2003: Dav- íð Oddsson forsætis- ráðherra segir í fréttum Stöðvar 2 að Ingibjörg Sólrún fari með slúður. Hann segist fyrst hafa heyrt minnst á Jón Gerald eftir að lögregluinnrás var gerð í Baug í ágúst 2002. Atburðarásin

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.