Fréttablaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 2
2 1. mars 2003 LAUGARDAGUR Miðstjórn Sjálfstæðisflokksins hefur hafnað ósk Kristján Pálssonar alþingismanns um að fá að bjóða fram í nafni DD. Óvíst er um sérframboð þingmannsins eða þá hvað hann ætlar að kjósa. “Það er enn langt í kosningar.“ SPURNING DAGSINS Kristján, ætlar þú að kjósa Sjálfstæðisflokkinn? Keflavíkurflugvöllur: Með hass innvortis FÍKNIEFNI Fertugur Norðmaður var handtekinn á Keflavíkurflugvelli á miðvikudag eftir að fjörutíu grömm af hassi fundust í líkama hans. Það fannst eftir að röntgen- mynd hafði verið tekin af Norð- manninum. Tollgæslan á Keflavíkurflug- velli handtók manninn ásamt Ís- lendingi. Komu þeir til landsins með áætlunarflugi frá Osló. Lög- reglan í Reykjavík fékk málið í hendurnar og leiddi rannsókn í ljós að Íslendingurinn átti ekki hlut að máli. Báðum mönnunum hefur verið sleppt og er málið upplýst. ■ Bókamarkaður Félags íslenskra bókaútgefenda h in n e in i s an ni bó kamarkaður Kópavogi: Smáralind, sími 562 9701. Akureyri: Hafnarstræti 91-93, 2. hæð, sími 663 1224. aðeins nokkrir dagar eftir! Mundu! Lýkur 2. mars Opið 10 til 19 Líka um helgar VIÐSKIPTI Búnaðarbankinn braut ákvæði laga um þagnarskyldu og heilbrigða og eðlilega viðskipta- hætti í viðræðum við Fjölmiðlafé- lagið um málefni Norðurljósa. Þetta er niðurstaða athugunar Fjármálaeftirlits- ins. Telji Fjármála- eftirlitið brot svo alvarleg að þau séu refsiverð ber því að vísa málum til ríkislögreglustjóra. Það er ekki gert í þessu tilviki. B a n k a s t j ó r a r Búnaðarbankans eru ósammála niðurstöðu Fjár- málaeftirlitsins. Þeir telja bank- ann ekki hafa veitt neinar upplýs- ingar um stöðu Norðurljósa. Upp- lýsingar um stöðu Norðurljósa hafi allar komið frá fulltrúum Fjölmiðlafélagsins. „Öll brot í okkar huga eru alvarleg, en við teljum okkur hafa unnið sam- kvæmt hagsmunum bankans,“ segir Árni Tómasson. Hann telur ekki tilefni til afsagnar vegna nið- urstöðu Fjármálaeftirlitsins, en bankinn muni taka á málinu með þeim hætti að koma í veg fyrir að slíkt endurtaki sig. Upphaf málsins má rekja til þess að forsvarsmenn Norður- ljósa komust yfir skjal úr bankan- um, þar sem reifuð er skuldastaða fyrirtækisins og möguleikar til yfirtöku þess. Meðal annars með gjaldfellingu 450 milljón króna láns í Búnaðarbankanum. Fjár- málaeftirlitið telur að með því að taka þátt í gerð yfirlýsingar þar sem lánsnúmer voru tilgreind hafi bankinn brotið gegn þagnar- skyldu sinni. Mótbárur Búnaðar- bankans felast í því að lánsnúmer segi ekkert til um stöðu og upp- hæðir lána. Búnaðarbankinn heldur því fram að forsvarsmenn hans hafi um nokkurt skeið haft áhyggjur af stöðu láns Norðurljósa í bank- anum. Beiting gjaldfellingar á lán Norðurljósa sé því ótengd viðræðum bankans og Fjölmiðla- félagsins. Fjármálaeftirlitið telur ekki ástæðu til að draga áhyggj- ur bankans af fjárhagsstöðu Norðurljósa í efa. Ekki verði með vissu leitt í ljós hvort, hvenær eða með hvaða hætti hefði verið gripið til gjaldfellingar lána ef yfirlýsing Fjölmiðlafélagsins hefði verið til staðar. Yfirlýsing- in hafi hins vegar haft óhjá- kvæmilega þýðingu við áfram- haldandi aðgerðir bankans. Fjár- málaeftirlitið telur því bankann hafa með háttsemi sinni brotið gegn heilbrigðum og eðlilegum viðskiptaháttum. haflidi@frettabladid.is Frelsisflokkurinn: Aftur í stjórn VÍN, AP Rúmlega þriggja mánaða stjórnarkreppu í Austurríki er lokið með því að Wolfgang Schüssel kanslari myndaði stjórn með eina flokknum sem hann hafði upphaflega neitað að eiga samstarf við í ríkisstjórn. Þjóðarflokkur Schüssels og Frelsisflokkurinn endurnýjuðu stjórnarsamstarf sitt tæpu hálfu ári eftir að það fór út um þúfur vegna innanflokksdeilna í Frelsis- flokknum. Schüssel sagði í kjölfar stjórnarslitanna að ekki kæmi til greina að mynda nýja stjórn með Frelsisflokknum. Eftir að aðrir möguleikar reyndust ekki færir endurskoðaði hann þá afstöðu sína. ■ Stjórnin beið ósigur: Klaus tekur við af Havel PRAG, AP Tékkneska stjórnin beið mikinn ósigur þegar þing landsins kaus Vaclav Klaus næsta forseta landsins. Klaus, sem er fyrrum for- s æ t i s r á ð h e r r a landsins, var fram- bjóðandi stjórnar- andstöðunnar og lagði Jan Sokol, f r a m b j ó ð a n d a stjórnarflokkanna, að velli í þriðju til- raun þingsins til að kjósa eftirmann Vaclavs Havels. Stjórnarflokk- unum þremur gekk erfiðlega að koma sér saman um frambjóð- anda. Úrslit forsetakosninganna veikja ríkisstjórnina mjög og telja sumir að þau geti orðið til að fella hana. ■ BARNAGEÐDEILD Rannveig Guð- mundsdóttir alþingismaður hefur spurt heilbrigðisráðherra hvernig starfsemi Barna og unglingageð- deildar sé háttað, hve langir biðlistar séu og hvernig sé háttað samvinnu félagsmála- og heil- brigðisyfirvalda um þjónustu við ungmenni með hegðunartruflanir. Í svari heilbrigðisráðherra kom meðal annars fram að ung- lingar sem leggjast inn á deildina eru með geðraskanir eða alvarleg geðræn einkenni, svo sem geðrof, kvíða og persónuleikaraskanir. Auk þess eiga þau við að stríða al- varlegt þunglyndi, áfallastreitu, átraskanir og sjálfsvígshugmynd- ir. Þeir sem eiga í vímuefnavanda eða glíma við félagsleg vandamál eða hegðunarvandamál leggjast inn á Stuðla eða á Vog. Biðlisti hefur verið á unglingageðdeildina nú í janúar og hafa 13 unglingar beðið í heimahúsum, þar af þrír töluvert veikir. Unglingar hafa í nokkrum tilvikum verið lagðir inn á geðdeildir fyrir fullorðið fólk þegar þannig ástand hefur skap- ast. Á biðlista eftir þjónustu voru 43 nú í janúar alls en voru 59 á sama tíma fyrir ári. Þar af bíða 25 eftir mati á ofvirkni. ■ FLUGHÓTELIÐ Keflavíkurverktakar eiga húsið – yfirtaka nú reksturinn. Flughótelið í Keflavík: Verktakar í hótelrekstur HÓTEL Keflavíkurverktakar hafa yfirtekið rekstur Flughótelsins í Keflavík, sem hingað til hefur verið rekið af KÁ-samsteypunni: „Keflavíkurverktakar voru eigendur húsnæðisins og við skipulagsbreytingar hjá þeim vildu þeir yfirtaka reksturinn og skjóta þar með nýjum stoðum undir rekstur sinn,“ segir Jó- hanna Róbertsdóttir, sem stýrir hótelrekstri KÁ. „Við rekum hót- elið út marsmánuð en þá taka verktakarnir við. Engar breyting- ar verða á starfsmannahaldi og hótelstjóri verður hinn sami,“ segir Jóhanna en KÁ rekur eftir sem áður fjögur hótel á Suður- landi: á Selfossi, Flúðum, Kirkju- bæjarklaustri og í Vík í Mýrdal. „Nú einbeitum við okkur að Suð- urlandi enda er hefð fyrir því hjá KÁ,“ segir Jóhanna. ■ EKKI SVO SMART Daimler- Chrysler hefur innkallað 50.000 Smart smábíla sem framleiddir voru á árunum 1999 og 2000. Ástæðan er tæknileg vandamál með bakkljósabúnað. RANNSAKA SS-MENN Þýskir sak- sóknarar rannsaka hvort hægt sé að ákæra átta fyrrum meðlimi í SS-sveitum nasista fyrir að myrða 560 manns á Ítalíu árið 1944. Rannsóknin er hluti af til- raunum Þjóðverja til að refsa þeim þýsku hermönnum sem frömdu stríðsglæpi á Ítalíu. FJÁRMÁLAEFTIRLIT „Við fögnum þess- um úrskurði Fjármálaeftirlitsins og lítum málið mjög alvarlegum aug- um,“ segir Ragnar Birgisson, að- stoðarforstjóri Norðurljósa, um niðurstöðu eftirlitsins varðandi gjaldfellingu láns fyrirtækisins í bankanum. Hann telur Norðurljós hafa unnið fullnaðarsigur í málinu. „Málið er mjög alvarlegt fyrir bankastjórnina, sem auglýsir sig sem traustan banka.“ Hann segir ásakanirnar alvar- legar. Fjármálaeftirlitið telji ekki að það sé í verkahring þess að vísa málinu áfram til ríkislögreglu- stjóra. „Við ætlum að vísa þessu máli áfram til ríkislögreglustjóra. Að brjóta gegn þagnarskyldu er mjög alvarlegt mál og ég er ekki í vafa um það að erlendis myndu bankastjórar segja af sér vegna svona máls.“ ■ Norðurljós og Búnaðarbankinn: Bankinn kærður til ríkislögreglu KÆRA BANKANN Norðurljós líta á niðurstöðu Fjármálaeftir- litsins sem fullnaðarsigur og ætla að kæra bankann til ríkislögreglustjóra. Búnaðarbankinn braut bankalög Fjármálaeftirlitið telur að Búnaðarbankinn hafi brotið gegn þagnar- skyldu og eðlilegum viðskiptaháttum í samskiptum sínum við Norður- ljós. Bankastjórar Búnaðarbankans eru ósammála niðurstöðunni. VIÐSKIPTAHÆTTIR Fjármálaeftirlitið telur Búnaðarbankann hafa brotið á Norðurljósum. Árni Tómasson og Sólon Sigurðsson bankastjórar telja bankann hafa verið að verja hagsmuni sína. Þeir hyggjast þó breyta verklagsreglum. „Öll brot í okk- ar huga eru al- varleg, en við teljum okkur hafa unnið samkvæmt hagsmunum bankans.“ Barna- og unglingageðdeild: Þrír mikið veikir bíða BARNA- OG UNGLINGAGEÐDEILD Þar voru 43 á biðlista nú í janúar eftir meðferð. EVRÓPA GLAÐBEITTUR SIGURVEGARI Vaclav Klaus bar sigurorð af öllum þeim sem stjórnarliðar tefldu fram gegn honum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Útvarpssvið Norðurljósa: Dagskrár- stjórinn líka hættur ÚTVARP Ágúst Héðinsson, dag- skrárstjóri útvarpssviðs Norður- ljósa, hefur sagt upp störfum. Fylgir hann þar í kjölfar yfir- manns síns, Jóns Axels Ólafsson- ar, sem einnig er hættur. Auk þeirra tveggja hefur Bára Einars- dóttir, rekstrarstjóri útvarpssviðs Norðurljósa, sagt upp störfum. „Ég hætti af persónulegum ástæðum,“ segir Ágúst Héðinsson og vill ekki tjá sig um ástæður uppsagnarinnar frekar en Jón Axel, sem snúið hefur sér að við- skiptafræðinámi við Háskólann í Reykjavík. Með brotthvarfi þrí- eykisins úr yfirstjórn útvarps- sviðs Norðurljósa eru horfnir á braut þeir þrír stjórnendur sem báru ábyrgð á og mótuðu stefnu útvarpsstöðva Norðurljósa. Ekki náðist í Sigurð G. Guðjónsson, for- stjóra Norðurljósa, þar sem hann er staddur í fjallgöngu erlendis. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.