Fréttablaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 40
Gladdi mig að sjá hvað forstjóriKaupþings gerir það gott. Dá- ist að mönnum sem kunna að semja, hvort sem er tónverk, texta eða um laun. Lít á þetta allt sem hreinræktaða íþrótt þar sem árangurinn skiptir öllu. Ekki bara að vera með. Forstjóri Kaupþings er fremstur meðal jafningja og því valdi ég hann til að ávaxta líf- eyrisgreiðslurnar mínar. Þær eru að vísu ekki árangurstengdar eins og launin hans. Verra þótti mér að sjá yfirlitið frá Kaupþingi eftir að hafa dælt þar inn tíund af launum mínum svo árum skiptir. Línuritið var eins og skíðabrekka og þar sem átti að vera ávöxtur var auðn. Hef ekki fengið viðhlítandi skýringar á því hvernig þessum milljón pró- sent manni tókst að fara svona með sparnaðinn minn. Hef svo sem ekki miklar áhyggjur af þessu. Of marga líf- eyrisþega hef ég séð lepja dauð- ann úr skel eftir að hafa greitt í lífeyrissjóði í hálfa öld eða meira. Án þess að gera athuga- semdir. Sumir segja að greidd skuld sé glatað fé. Nær að halda að það eigi betur við um greitt iðgjald í lífeyrissjóð. En þetta er allt bundið í lög og því heldur vitleysan áfram. Hinn eini sanni lífeyrissjóður er nær en við höldum. Frummaður- inn fann hann upp. Tryggingin í ell- inni liggur í börnunum. Við gætum þeirra þegar þau eru lítil. Þau gæta okkar þegar við verðum gömul. Því fleiri börn, því meira öryggi. Í þessu kerfi myndu barnlausir að vísu lenda í vanda sem yrði að leysa með því að setja þá á auka- fjárlög eins og svo margt annað. Annars getur fólk skipulagt framtíðina eins og það vill. Verst að flestir gera það eins. Með því að greiða í lífeyrissjóði. En lífið hefur tilhneigingu til að leita jafnvægis hvernig sem við reynum að stjórna því. Þetta lá ljóst og skýrt fyrir John Lennon: Lífið er eitthvað sem hendir þig á meðan þú ert upptekinn við að plana eitthvað annað. Við verð- um bara að vanda okkur á með- an við drögum andann. Ekki flóknara en það. ■ www.IKEA.is SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Slappaðu af! ÍS LE NS KA A UG LÝ SI NG AS TO FA N EH F/ SI A. IS IK E 20 40 5 03 .2 00 3 © In te r IK EA S ys te m s B. V. 2 00 3 Hvíldardagar - út mars Heimilið er griðastaður okkar allra í erli og amstri dagsins. Þar slöppum við af og hlöðum batteríin fyrir næstu átök. Við hjá IKEA vitum hvað þarf til að slappa af. Hjá okkur er breitt úrval af hagnýtum og fallega hönnuðum vörum sem geta hjálpað þér að njóta lífsins heima hjá þér. 19.900,- BERGEN rúmgrind 160x200 - birki, eik og hvítt FEMMEN motta 1.390,- SULTAN dýnur 90x200 26.800,- FIONA gardínur 3.990,- FEMMEN teppi 1.890,- Auralíf 50% afsl. í dagí Nammilandi Hagkaup Smáralind og Kringlunni Bakþankar Eiríks Jónssonar

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.