Fréttablaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 31
31LAUGARDAGUR 1. mars 2003 Bolla og kaffi 195,- SJÓNVARP Kiefer Sutherland fær ekki að slappa af eftir að öðrum sólarhringnum í baráttu leyniþjón- ustumannsins Jack Bauers lýkur í spennuþáttaröðinni 24 sem Stöð 2 sýnir um þessar mundir. Fox-sjón- varpsstöðin hefur gert samning um framleiðslu á þriðju þáttaröð- inni og sem fyrr mun hamagangur- inn eiga sér stað í rauntíma þar sem hver þáttur greinir frá einni klukkustund í lífi hetjunnar. Þá hefur ABC gert samning um framleiðslu á þriðju Alias-þátta- röðinni, þannig að aðdáendur Jennifer Garner og 24 geta andað rólega enda ljóst að þessir nýju góðkunningjar eru komnir til að vera. Báðar þáttaraðirnar hafa feng- ið mikið lof gagnrýnenda en þrátt fyrir ágætisáhorf er ekki hægt að tala um þær sem stórsmelli. Áhorf hefur samt sem áður aukist á báða þættina undanfarið og það skemmir ekki fyrir að aukningin er mest hjá fólki á aldrinum 18 til 49, ára sem er einmitt sá mark- hópur sem auglýsendur hafa mestan áhuga á. ■ KIEFER SUTHERLAND Mun halda áfram að eltast við hryðju- verkamenn næstu misserin en samið hef- ur verið um framleiðslu á þáttum um enn einn sólarhringinn í lífi Jack Bauer. Spennuþættir: Meira af því sama SJÓNVARP Þrátt fyrir litla hrifn- ingu áhorfenda mun annar ár- gangur raunveruleikasjónvarps- þáttar fyrirsætunnar Önnu Nicole Smith hefja göngu sína í bandarísku sjónvarpi á sunnu- daginn. Anna giftist á sínum tíma auðkýfingnum J. Howard Marshall sem lést skömmu síðar á nítugasta aldursári. Hún hefur síðan þá staðið í deilum við fjöl- skyldu eiginmannsins um skipt- ingu auðæfanna og það þarf því sennilega engan að undra að af- komendur Marshalls hafa ekki áhuga á þáttunum. „Þrátt fyrir deilur okkar óskum við Önnu alls hins besta í nýju þáttaröð- inni, en við horfum ekki á hana“, sagði stjúpsonur hennar í yfir- lýsingu í vikunni. The Anna Nicole Show hóf göngu sína í ágúst á síðasta ári og fékk mesta áhorf sem sögur fara af þegar raunveruleika- þættir eru annars vegar. Vin- sældirnar snarminnkuðu síðan á næstu vikum enda virtist fólk fljótt missa áhugann á því að fylgjast með Önnu rífast við lög- fræðinginn sinn, slæpast með aðstoðarfólki sínu og innanhúss- hönnuði og kjassa kjölturakkann sinn. ■ ANNA NICOLE SMITH Ættingjar látins eiginmanns hennar hafa ekki nokkurn áhuga á raunveruleikasjón- varpsþáttum hennar. Raunveruleikasjónvarp: Stjúpsonurinn fylgist ekki með OPRAH WINFREY Spjallþáttastjórnandinn vinsæli hefur aldrei átt meiri velgegni að fagna og er hún nú komin á árs- lista Forbes-tímaritsins yfir millj- arðamæringa í Bandaríkjunum og er hún fyrsta blökkukonan sem kemst þar á blað.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.