Fréttablaðið - 01.03.2003, Side 6
6 1. mars 2003 LAUGARDAGURVEISTU SVARIÐ?
Svörin eru á bls. 38
1.
2.
3.
Feðgarnir Ísleifur Haraldsson og
Gylfi Arnar Ísleifsson björguðust
eftir að bátur þeirra sökk 11
mílum fyrir utan Grindavik.
Hvað hét báturinn?
Nýr morgunþáttur lítur dagsins
ljós hjá RÚV 3. mars nk. Hver
verður umsjónarmaður þáttar-
ins?
Á Hlustendaverðlaunum FM957
steig óvænt fram á sjónarsviðið
hljómsveit sem hætti samstarfi
árið 1999. Hvaða hljómsveit var
þetta?
Brýnt að skrá í
erlendri mynt
Samkvæmt lögum er heimilt að skrá hlutabréf í erlendum myntum. Sú
skráning lætur á sér standa. Skráning í erlendri mynt er brýnt hags-
munamál bæði Kauphallar Íslands og fyrirtækja í erlendri sókn.
KAUPHALLARVIÐSKIPTI Þrátt fyrir
heimild löggjafans um að félög
geti skráð hlutabréf sín í erlendri
mynt hefur ekki tekist að ljúka
málinu þannig að slíkt sé mögu-
legt. Samkvæmt
heimildum Frétta-
blaðsins er nokk-
urrar óþreyju far-
ið að gæta hjá
stjórnendum fyr-
irtækja sem gera
upp í erlendri
mynt. Þeir telja að
allt of hægt gangi
að koma þessu í
kring. Meðal fyrir-
tækja sem gera
upp í erlendri
mynt eru Marel, Bakkavör og
Össur. Skráning bréfanna í er-
lendri mynt eykur möguleika fyr-
irtækjanna á að fá erlenda fjár-
festa að fyrirtækjunum. Krónan
er óstöðug og erlendir fjárfestar
eru tregir til að bæta gengis-
áhættu við fyrirtækjaáhættuna
sem fylgir fjárfestingum í ís-
lenskum fyrirtækjum.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Kauphallar Íslands, segir mögu-
leika á skráningu bréfa í erlendri
mynt ekki bara brýnt hagsmuna-
mál fyrirtækjanna, heldur ekki
síður Kauphallarinnar sjálfrar.
„Við höfum áhuga á að setja upp
alþjóðlegan markað í Kauphöll-
inni fyrir sjávarútvegsfyrirtæki.
Það er engin leið að markaðssetja
Kauphöllina með þeim hætti
nema erlend fyrirtæki geti skráð
bréf sín í alþjóðlegum myntum.“
Hindrun þess að takist að skrá
bréf í erlendri mynt liggur í því
að ekki hefur tekist að finna leiðir
til að láta viðskiptin fara fram og
gera þau upp í erlendri mynt
þannig að krónan komi þar hvergi
nærri. Erfiðlega hefur gengið að
leysa þennan uppgjörsvanda í
kerfinu. „Það er ekki búið að finna
nægilega góða leið til að klára
það.“
Þórður segir verið að vinna að
lausn á þessu máli í samráðsnefnd
Seðlabankans, Kauphallar Íslands
og Verðbréfaskráningar Íslands.
„Þar brennur hitinn á mönnum að
finna leið í þessu. Við teljum að
við séum með leið í sjónmáli, en
endanleg lausn er ekki komin á
málið.“
Þórður segir brýnt bæði fyrir
Kauphöll Ísland og fyrirtæki sem
vilja skrá sig að það takist að
leysa málið. „Við styðjum heils-
hugar sjónarmið þeirra fyrir-
tækja sem ýta á eftir því að skrán-
ing í erlendri mynt verði möguleg
sem fyrst. Þetta er mjög brýnt
mál, því án þessa möguleika verð-
ur Kauphöllin aldrei annað en
heimamarkaður.“
haflidi@frettabladid.is
Stúdentaráð Háskóla Íslands:
Varar við frumvarpi
LÖG Stúdentaráð Háskóla Íslands
hefur sent frá sér ályktun þar sem
varað er við að Alþingi samþykki
óbreyttar þær breytingatillögur á
lögum um lögmenn sem þar liggja
fyrir.
Í breytingatillögunum er gert
ráð fyrir að hver og einn háskóli
hafi sjálfdæmi um menntunarkröf-
ur lögmanna.
„Þetta snýst ekki um hvort
kennsla er eitthvað betri í Háskóla
Íslands því við teljum að samkeppn-
in við skólann hafi verið til góða
fremur en hitt,“ segir Brynjólfur
Stefánsson, formaður Stúdentaráðs
Háskóla Íslands. „Við fögnum sam-
keppni á háskólastigi, sem hefur
orðið til þess að námsframboð hefur
aukist og nú býðst fjölbreyttara
nám en áður.“
Stúdentaráð telur að tryggja
verði að nemar í sama fagi, sem
ætla að afla sér sömu starfsrétt-
inda, verði að uppfylla ákveðnar
l á g m a r k s m e n n t u n a r k r ö f u r.
Brynjólfur segir slík ákvæði ekki
síður lúta að réttaröryggi þeirra
sem þurfi að leita til dómstóla í
framtíðinni. „Við teljum að það
þurfi að ljúka ákveðnum fögum til
að geta flutt mál fyrir rétti og geta
dæmt í þeim. Við Háskólann í
Reykjavík er til að mynda ekki
kenndur sifjaréttur og mjög fáir
tímar eru í almenni lögfræði.“
Brynjólfur segir Stúdentaráð
ekki telja fyrirhugaðar breytingar
tímabærar fyrr en efnisleg viðmið
um menntunarkröfur lögmanna
liggi fyrir. ■
Tveir fyrir einn
á Púkanammibar
alla laugardaga!
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
N
O
I
20
24
9
0
2/
20
03
GUÐJÓN A. KRISTJÁNSSON
Reiknað er með að breið samstaða verði
um Guðjón sem formann.
Frjálslyndi flokkurinn:
Guðjón
næsti for-
maður
STJÓRNMÁL Guðjón A. Kristjánsson,
varaformaður Frjálslynda flokks-
ins, hyggst bjóða sig fram til for-
mennsku á flokksþinginu sem hald-
ið verður á Hótel Sögu 7. og 8. mars
næstkomandi.
Sverrir Hermannsson, stofnandi
flokksins og núverandi formaður, er
að setjast í helgan stein. Margrét
Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri
flokksins, segist ekki ætla að gefa
kost á sér til formennsku og reiknar
með að breið samstaða verði um
Guðjón sem næsta formann. ■
KROTAÐ Á KIRKJU Tvö eigna-
spjöll voru tilkynnt lögreglu í
Vestmannaeyjum í vikunni. Í
öðru tilvikinu var um að ræða
skemmdir á sumarbústað sem
er í „gamla hrauninu“ við
Höfðaveg. Hafði verið gerð til-
raun til að kveikja í sófa sem
þar var inni. Í hinu tilvikinu var
um að ræða veggjakrot á
Landakirkju og safnaðarheimili
kirkjunnar. Ekki er vitað hverj-
ir voru að verki.
DRENGUR SLASAÐIST Tólf ára
drengur slasaðist þegar hann
var að renna sér á snjóþotu á
Stakkgerðistúni í Vestmannaeyj-
um. Drengurinn lenti á járn-
stykki með þeim afleiðingum að
hann skarst á fæti og þurfti að
sauma fimmtán spor til að loka
fætinum. Þá slasaðist maður í
andliti, handlegg og fótlegg eftir
að hafa fengið á sig heita gufu
þegar loki sprakk á vinnustað.
Meira flutt út til Færeyja en Rússlands og Kína samanlagt:
Útflutningstekjur námu 2,6 milljörðum
VIÐSKIPTI Útflutningur Íslands til
Færeyja er töluvert meiri en til
Kína og Rússlands samanlagt.
Þetta kemur fram í skýrslu
Halldórs Ásgrímssonar utanríkis-
ráðherra um utanríkismál. Sam-
kvæmt henni eru Færeyjar á með-
al mikilvægustu viðskiptalanda
Íslands. Þannig nam útflutningur
til Færeyja tæpum 2,6 milljörðum
króna árið 2001, en á sama tíma
nam hann samanlagt 1,6 milljörð-
um til Kína og Rússlands, sem eru
margfalt fjölmennari ríki. Þetta
ár nam útflutningur til Finnlands
1,3 milljörðum og um tveimur
milljörðum til Kanada og Svíþjóð-
ar.
Íslendingar fluttu mest út af
notuðum skipum til Færeyja
árið 2001 eða fyrir rúmar 700
milljónir króna. Útflutnings-
tekjur af rafeindavogum námu
tæpum 400 milljónum, fiski til
bræðslu um 350 milljónum og
öðrum iðnaðarvörum um 300
milljónum. Þá námu tekjur af
útflutningi kindakjöts til Fær-
eyja um 130 milljónum króna. ■
MEST FLUTT ÚT AF
NOTUÐUM SKIPUM
Íslendingar fluttu mest út af notuðum
skipum til Færeyja árið 2001 eða fyrir rúm-
ar 700 milljónir króna.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
ERFITT AÐ LEYSA
Fyrirtæki sem gera upp í erlendum myntum og eru með meginhluta viðskipta í útlöndum
eru orðin óþolinmóð með hve hægt miðar í þá átt að þau fái að skrá bréf sín í alþjóðleg-
um myntum í Kauphöll Íslands.
„Það er engin
leið að mark-
aðssetja
Kauphöllina
með þeim
hætti nema
erlend fyrir-
tæki geti
skráð bréf sín
í alþjóðlegum
myntum.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Ábyrgðarsjóður launa:
Ábyrgð
hækkuð
ALÞINGI Hámarksábyrgð Ábyrgðar-
sjóðs launa vegna launakrafna verð-
ur hækkuð úr 232 þúsund krónum á
mánuði í 250 þúsund samkvæmt
frumvarpi til nýrra heildarlaga um
sjóðinn. Núgildandi lög sjóðsins eru
tíu ára gömul og hefur endurskoðun
þeirra staðið yfir um nokkurt skeið.
Auk hækkunar á hámarksábyrgð
launakrafna er lagt til að sjóðurinn
taki á sig ábyrgð á vangreiddum ið-
gjöldum, sem nema allt að 4% af ið-
gjaldsstofni á grundvelli samnings
um viðbótarlífeyrissparnað og sam-
kvæmt ákvæðum kjarasamninga.
Einnig eru lagðar til breytingar
er lúta að undanþágum frá ábyrgð
sjóðsins vegna tengsla kröfuhafa
við gjaldþrota eigendur. ■
HVETJA LÖGMENN TIL AÐ KYNNA SÉR BETUR LÖG UM LÖGMENN
Stúdentaráð telur felast í því ákveðið réttaröryggi fyrir þá sem leita þurfi til dómstóla í
framtíðinni.
LÖGREGLUFRÉTTIR
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 77.79 0.23%
Sterlingspund 122.9 -0.10%
Dönsk króna 11.27 -0.19%
Evra 83.73 -0.18%
Gengisvístala krónu 121,20 -0,41%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 594
Velta 9.147 m
ICEX-15 1.388 -0,05%
Mestu viðskipti
Fjárfestingarf. Straumur hf. 227.700.428
Eimskipafélag Íslands hf. 204.539.920
Vátryggingafélag Ísl. hf. 172.014.200
Mesta hækkun
Líftæknisjóðurinn MP BIO hf. 36,36%
Landssími Íslands hf. 8,49%
Jarðboranir hf. 6,67%
Mesta lækkun
Eimskipafélag Íslands hf. -2,42%
Kaupþing banki hf. -1,08%
Samherji hf. -1,05%
ERLENDAR VÍSITÖLUR
DJ*: 7907,1 0,3%
Nasdaq*: 1335,7 0,9%
FTSE: 3655,6 2,4%
DAX: 2563,9 2,0%
Nikkei: 8363,0 0,0%
S&P*: 842,3 0,6%
*Bandarískar vísitölur kl. 17.00