Fréttablaðið - 01.03.2003, Blaðsíða 16
Könnunin var gerð fyrir vikuog spurt var: „Hvaða íslenski
íþróttamaður finnst þér skara
mest fram úr um þessar mundir?“
Það kemur kannski fáum á
óvart að Ólafur Stefánsson hand-
knattleiksmaður er talinn skara
mest fram úr og öruggur í öðru
sætinu er gullkálfurinn Eiður
Smári Guðjohnsen.
Yfirburðir Ólafs
Ólafur Stefánsson nýtur mestr-
ar hylli meðal landsmanna en rúm
32% svarenda nefndu hann á
nafn. Ólafur hefur staðið sig frá-
bærlega með félagsliði sínu Mag-
deburg í Þýskalandi og hefur ver-
ið burðarásinn í íslenska landslið-
inu sem náði frábærum árangri á
Heimsmeistaramótinu í Portúgal
og á Evrópumótinu í Svíþjóð.
Eiður Smári Guðjohnsen,
knattspyrnumaður hjá Chelsea,
varð annar í valinu með um 20%
atkvæða. Eiður Smári er senni-
lega besti knattspyrnumaður Ís-
lands um þessar mundir, að öðr-
um ólöstuðum. Það hlýtur að telj-
ast honum til framdráttar í könn-
uninni að enska knattspyrnan er
sú vinsælasta hér á landi, ef ekki í
heimi, og er sýnd í beinni útsend-
ingu nokkrum sinnum í viku í
sjónvarpsstöðvum hér á landi.
Leikmenn enskra úrvalsdeildar-
liða eru orðnir vinsælt umfjöllun-
arefni slúðurblaða og eru vin-
sældir þeirra eins miklar og ger-
ist hjá tónlistarmönnum. Eiður
Smári hefur fengið að finna fyrir
bresku pressunni og stutt er síðan
hann prýddi síður þeirra fyrir
fjárhættuspil.
Kristín Rós Hákonardóttir
sundkona er í þriðja sæti vin-
sældalistans þótt hún sé vön að
koma fyrst í mark. Kristín Rós
hefur náð stórkostlegum árangri í
sundi. Hún vann til þrennra gull-
verðlauna og einna silfurverð-
launa á heimsmeistaramót fatl-
aðra í Argentínu í lok síðasta árs
en um 1.100 keppendur voru
skráðir til leiks, sem var met-
fjöldi.
Tugþrautamaðurinn Jón Arnar
Magnússon er öruggur í fjórða
sætinu. Hann hefur lengi verið
einn vinsælasti íþróttamaður
landsins, með sitt skrautlega
skegg og einstaka keppnisskap. Á
tímabili virtist Jón Arnar hafa
misst dampinn en hann lét ekki
slá sig út af laginu og kom aftur
sterkur til leiks. Hann er nú í 4.-5.
sæti yfir þá sem bestum árangri
hafa náð í sjöþraut innanhúss á ár-
inu og því líklegt að honum verði
boðin þátttaka á heimsmeistara-
mótinu innanhúss sem fram fer í
Birmingham seinna í mánuðinum.
Þórey Edda Elísdóttir stekkur í
fimmta sæti listans og skýtur þar
með sveitunga sínum Erni Arnar-
syni og Völu Flosadóttur ref fyrir
rass. Þórey Edda ber nú af ís-
lenskum stangarstökkskonum og
verður í eldlínunni á heimsmeist-
aramótinu í Birmingham.
Vala Flosadóttir vann til brons-
verðlauna á Ólympíuleikunum í
Sydney árið 2000. Hún er enn að
kljást við stöngina þótt árangur
hennar hafi upp á síðkastið ekki
verið eins og þegar hún var upp á
sitt besta.
Örn Arnarson má vart koma
nálægt vatni án þess að setja Ís-
landsmet. Hann vann til tvennra
gullverðlauna á Evrópumeistara-
mótinu í 25 metra laug í Berlín á
síðasta ári.
Handboltakappinn Guð-
jón Valur Sigurðsson, leik-
maður Essen í Þýska-
landi, er í áttunda
sæti. Hann var einn
besti leikmaður
landsliðsins á heims-
meistaramótinu og var
fyrir skömmu valinn kyn-
þokkafyllsti maðurinn á Rás 2.
Auk Eiðs Smára eru þrír aðrir
knattspyrnumenn á topp tíu list-
anum. Ásthildur Helgadóttir úr
KR er í áttunda sæti. Hún hefur
farið fyrir íslenska landsliðinu
sem náði frábærum árangri á síð-
astar ári þegar það komst í umspil
um laust sæti á heimsmeistara-
mótinu.
Olga Færseth, félagi Ásthildar
úr landsliðinu, situr í tíunda sæti
listans ásamt Þormóði Egilssyni,
fyrirliða karlaliðs KR. Olga er
helsti markaskorari íslenskrar
kvennaknattspyrnu fyrr og síðar.
Hún skipti nýlega úr KR yfir í
ÍBV og hyggst leika með Eyja-
stelpum næsta sumar.
Fáir knattspyrnumenn á Ís-
landi njóta jafn mikillar virðingar
og Þormóður Egilsson. Móði, eins
og hann er gjarnan kallaður, hefur
verið klettur í vörn Íslandsmeist-
aranna og fór fyrir sínu liði þegar
titillinn var loks í höfn árið 1999
eftir 31 árs bið. Þormóður lagði
skóna á hilluna fyrir síðasta tíma-
bil en ákvað þegar mótið var
löngu byrjað að taka þá fram á ný
og klæðast búningi þeirra rönd-
óttu.
Sterk staða kvenna
Fimm konur eru á topp tíu list-
anum yfir vinsælustu íþrótta-
mennina og verða það að teljast
ánægjulegar fréttir. Lengi vel
fannst fólki konur ekki fá næga
umfjöllun í fjölmiðlum þrátt fyrir
góðan árangur á íþróttavellinum.
Það hefur þó breyst til hins betra
á síðustu árum þótt enn sé tals-
vert í land. Af þeim 28 íþrótta-
mönnum sem nefndir voru í könn-
uninni áttu konur 13 fulltrúa, eða
46,5%.
Konur eru líka líklegri til að
velja konur sem vinsælasta
íþróttamanninn. Þær konur sem
komust inn á topp tíu listann
fengu allar fleiri atkvæði frá kon-
um en körlum. Örn Arnarson,
sundkappi úr Hafnarfirði, er líka
vinsælli meðal kvenna en karla.
Af þeim atkvæðum sem hann
hlaut voru tæp 60% þeirra frá
konum. Kynin skiptast þó nokkuð
jafnt þegar kemur að vinsælasta
íþróttamanninum en af atkvæðum
Ólafs Stefánssonar voru 47% frá
konum en 53% frá körlum.
Flestir úr handbolta
og frjálsum
Af þeim 28 íþróttamönnum
sem svarendur Fréttablaðsins
nefn-
du eru
s e x
s e m
l e g g j a
stund á
handbolta
og sex sem
stunda frjáls-
ar íþróttir.
Fimm koma úr
fótboltanum,
þar af þrír sem
spila með liðum
á Englandi; áður
nefndur Eiður
Smári, Jóhannes
Karl Guðjónsson hjá
Aston Villa og Brynj-
ar Björn Gunnarson
hjá Stoke. Tveir sund-
menn voru nefndir og
komust þeir báðir inn á
topp tíu listann.
Kannski má þakka kross-
ferð Hrafns Jökulssonar
að tveir skákmenn læðast
inn á listann, þeir Hannes
Hlífar Stefánsson og Jón Vikt-
or Gunnarsson. Það kemur þó
kannski á óvart að Guðjón
Skúlason, fyrirliði Keflvíkinga,
er eini körfuboltamaðurinn sem
nefndur var í könnuninni.
Um könnunina
Könnunin var gerð fyrir viku
og fólst í því að hringt var
í sex hundruð manns
af handahófi úr síma-
skrá. Spurningin var,
eins og áður sagði,
„Hvaða Íslendingur í fjöl-
miðlum finnst þér skara mest
fram úr um þessar mundir?“
Svarhlutfall var með hæsta móti
eða um 75%. Við úrvinnslu voru
svörin flokkuð í karla á höfuð-
borgarsvæðinu, konur á höfuð-
borgarsvæðinu, karla á lands-
byggð og konur á landsbyggð.
kristjan@frettabladid.is
16 1. mars 2003 LAUGARDAGUR
Það er gaman að þessu,“ sagðiÓlafur Stefánsson handknatt-
leiksmaður hógværðin uppmáluð
þegar hann var inntur álits á könn-
un Fréttablaðsins um kjör á vin-
sælasta íþróttamanni landsins.
„Ætli maður sé ekki valinn fyrst
og fremst af því að ég skora mörk-
in mín. Handboltinn skipar stóran
sess hjá þjóðinni þegar vel gengur
og landsliðinu hefur gengið ágæt-
lega tvö síðustu ár.“
Ólafur var valinn íþróttamaður
ársins á síðasta ári. Hann segir
nafnbótir sem þessar ekki breyta
miklu.
„Ég segi alltaf það sama.
Þetta verður kannski gaman
þegar þetta er búið en á meðan
ég stend í þessu eru þetta eins
og vegastikur sem fjúka fram-
hjá á leiðinni. Ég staldra ekki
mikið við þær,“ segir Ólafur.
Ólafur leikur nú með liði
Magdeburg undir stjórn Al-
freðs Gíslasonar. Ólíklegt þykir
að liðið nái að tryggja sér þýska
meistaratitilinn enda langt í
topplið Lemgo. Magdeburg er
þó enn með í Meistarakeppni
Evrópu. „Það gæti bjargað
tímabilinu að taka þann titil aft-
ur,“ segir Ólafur en Magdeburg
hampaði þeim titli í fyrra.
Þrír mánuðir eru eftir af
tímabilinu í Þýskalandi. Eftir
það ætlar Ólafur að flytja
ásamt fjölskyldu sinni til Spán-
ar þar sem hann hefur gert
samning við spænska liðið
Ciudad Real.
„Ég er að dunda mér í
spænsku þessa dagana og spila
handbolta. Það gengur bara
nokkuð vel. Ég hef ansi gaman
af þessu tungumáli,“ segir
Ólafur Stefánsson, vinsælasti
íþróttamaður landsins. ■
EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN
Eiður Smári er sennilega besti knatt-
spyrnumaður Íslands um þessar mundir,
að öðrum ólöstuðum.
KRISTÍN RÓS HÁKONARDÓTTIR
Kristín Rós vann til þrennra gullverðlauna
og einna silfurverðlauna á heimsmeistara-
móti fatlaðra í Argentínu í lok síðasta árs.
JÓN ARNAR
MAGNÚSSON
Jón Arnar er nú í 4.-5. sæti
yfir þá sem bestum árangri
hafa náð í sjöþraut innan-
húss á árinu.
ÞÓREY EDDA ELÍSDÓTTIR
Þórey Edda ber nú af íslenskum stangar-
stökkskonum og verður í eldlínunni á
heimsmeistaramótinu í Birmingham.
ÖRN ARNARSON
Örn má vart koma nálægt vatni
án þess að setja Íslandsmet.
Í könnun sem Fréttablaðið gerði fyrir viku var grennslast fyrir um
hvaða íslenski íþróttamaður væri í mestum metum meðal þjóðarinnar
um þessar mundir. Í ljós kemur að þjóðin er langhrifnust af Ólafi
Stefánssyni handknattleiksmanni.
Yfirburða-
vinsældir Ólafs
VINSÆLUSTU ÍÞRÓTTAMENN
LANDSINS
1. Ólafur Stefánsson 32,6%
2. Eiður Smári Guðjohnsen 20,1%
3. Kristín Rós Hákonardóttir 14,5%
4. Jón Arnar Magnússon 12,6%
5. Þórey Edda Elísdóttir 7,5%
6. Örn Arnarson 5,4%
7. Vala Flosadóttir 1,7%
8. Guðjón Valur Sigurðsson 1,5%
9. Ásthildur Helgadóttir 1,0%
10. Þormóður Egilsson 0,5%
10. Olga Færseth 0,5%
Ólafur Stefánsson um nafnbótina Vinsælasti íþróttamaður landsins:
Það eru mörkin
sem telja
ÓLAFUR STEFÁNSSON
Ólafur hefur staðið sig
frábærlega með félagsliði
sínu Magdeburg í Þýskalandi
og hefur verið burðarásinn
í íslenska landsliðinu.