Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.03.2003, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 01.03.2003, Qupperneq 18
Í raun er með ólíkindum hversulík þau eru, Davíð Oddsson og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Bæði eru steingeitur. Sól, tungl og rísandi eru oft kallaðir þrír aðal- þættirnir en þar er grunneðlið, lífsorkan, tilfinningarnar og framkoman. Þau hafa þetta allt í sömu merkjunum: steingeit, fisk- ur og sporðdreki,“ segir Gunn- laugur Guðmundsson stjörnu- spekingur. Hann hefur stúderað stjörnuspeki í þrjátíu ár og starf- að sem atvinnumaður í faginu í 22 ár. Fréttablaðið leitaði til Gunn- laugs með það fyrir augum að bera saman turnana tvo í íslensk- um stjórnmálum. Og samkvæmt því sem þar kemur fram má búast við heiftúðugum og grimmilegum átökum í komandi kosningabar- áttu. Þau eru einfaldlega of lík til að þola hvort annað. Metorðagirnd, ráðríki og að vita betur „Steingeitin er mjög metnaðar- gjörn,“ segir Gunnlaugur þegar hann rýnir í stjörnukort Davíðs og Ingibjargar Sólrúnar. „Þetta er stöðutáknsmerki. Að geta titlað sig til dæmis borgarstjóra er þeim mikils virði. Til samanburð- ar þá er til dæmis hrútum alveg sama um metorð. Svo framarlega sem sé líf og fjör og áskoranir þá er það nóg. Steingeitin er alltaf að klifra, klifra á toppinn. Steingeit- ur vilja ekki viðurkenna þetta snobb gagnvart stöðutáknum. En steingeitin sækir í titla og svo er um þau bæði: Hafa verið borgar- stjórar, hann forsætisráðherra og nú vill hún verða forsætisráð- herra. Því má þó alls ekki gleyma að á bak við þetta er rík þörf fyrir að gera það sem þær gera vel. Steingeitin tekur á sig ábyrgð og vill stjórna.“ Gunnlaugur er ekki endilega á því að þetta sé vegna þess að þau treysti öðrum illa, steingeitur geta hæglega úthlutað ábyrgð en þær vilja ráða. Þær eru ráðríkar: Svona á þetta að vera! Svona á að gera þetta. „Í þessu samhengi er mikilvægt að átta sig á að steingeitur eru ákaflega jarðbundnar og notfæra sér það markvisst til að ná yfirráð- um. Við getum til dæmis litið til samskipta Davíðs og Össurar Skarphéðinssonar. Össur talar kannski fjálglega um inngöngu í Evrópusambandið en Davíð segir bara: Jújú, það er hægt að tala um að ganga í Evrópusambandið. En raunveruleikinn er svona og svona og hinsegin... Svo verður hann pirraður og þá kemur upp ákveðin fyrirlitning: Ég veit hvernig þetta er! Innprentað er í fólk í þessu merki að það viti betur, einkum þegar hin praktíska hlið mála er annars vegar. Og því á steingeitin oft auðvelt með að ýta um koll þeim sem ekki gæta þess vel að hafa vaðið fyrir neðan sig.“ Jarðbundin og ísköld Gunnlaugur hefur í gegnum tíðina stúderað stjörnukort stjórnmálamanna og segir al- gengt að Alþýðubandalagsmenn og kommar séu í ljónsmerkinu. „Ljónin eru hugsjónamenn. Kol- brún Halldórsdóttir og Steingrím- ur J. Sigfússon eru bæði ljón. Ög- mundur er reyndar krabbi en hann er ídealisti: Það er rangt að eyða landinu, segir hann. Gerum hálendið að þjóðgarði! Og þetta kemur beint frá hjartanu. En þá kemur steingeitin Davíð og segir: Bíddu nú við, hvað kostar þetta? Svo rekur hann kannski tölur um kostnað við þjóðgarð á Þingvöll- um, Skaftafelli og svo framvegis. Segir svo: Þetta eru bara skýja- borgir! Og afgreiðir ídealistana sem skýjaglópa. Þetta fer í taug- arnar á vinstra fólki sem segir hroka hvernig hann afgreiðir mál- in. Þetta snúist ekki alfarið um praktík. Davíð er ofsalega jarð- bundinn. Þannig er það bara hvort sem fólki líkar betur eða verr við hann. Það er eftir honum haft að ef þessi þorp á Vestfjörðum bera sig ekki eigi bara að leggja þau niður. Þarna er styrkur hans og veik- leiki. Davíð er steingeit og svo er hann vatnsberi í hugsun og sam- skiptum, sem Ingibjörg Sólrún er ekki, getur verið ískaldur. Sem slíkur getur hann horft á fólk eins og á teikniborði. Honum er alveg sama um einstaklinginn án þess að það sé illa meint. Ég er hægri- sinnaður, segir hann, sem þýðir að ég vil að einstaklingurinn fái frelsi til að bjarga sér. Ef einstak- lingurinn verður svo undir, þá er það bara sorrí, ekki hans mál. Ingibjörg hefur þetta sama rekstrar-jarðelement í sér. Hún er málefnaleg og nennir að setja sig inn í hvað holræsakerfið kostar, eins og Davíð, meðan ídealistar á borð við Kolbrúnu tala bara út frá hjartanu.“ Í Miðhimninum eru markmið- in. Og þar eru kortin þeirra Dav- íðs og Ingibjargar Sólrúnar ólík. Davíð er með miðhimin í ljóni en Ingibjörg í vog. Davíð er Bubbi kóngur, einræðislegur sem telur skýlaust að einstaklingurinn eigi að njóta sín en vogin í Ingibjörgu segir félagshyggja, jöfnuður og réttlæti. Þau eru mjög lík nema hvað þetta varðar. Gunnlaugur er að finna út hvað aðskilur þau. En það ber flest að sama brunni. Árni Sigfússon átti ekki séns „Ég tel þau nota mismunandi stjórnunarstíl. Davíð notar tilfinn- ingalega kúgun sem stjórntæki. Hann brýtur fólk niður tilfinninga- lega og terroriserar. Ingibjörg reynir að vera meiri samvinnukona en hún getur sannarlega verið hvöss líka. Lýsandi er hvernig þau bera sig. Ef maður horfir til þess hvernig þau sitja í stjórnmálaum- ræðum, þá eru þau bæði stíf, sem er dæmigert fyrir steingeitina. Þau draga sig inn í sjálf sig og horfa út undan sér. Hvöss. Svo segir mótherjinn eitthvað og þá segja þau: Jújú, en... og svo kemur stunga og svo rífa þau andstæðinginn í spað. Þau eru bæði rísandi sporðdrek- ar sem skiptir miklu máli. Þetta kom berlega í ljós í einvígi Ingi- bjargar og Árna Sigfússonar. Hann átti einfaldlega ekki séns. Árni er ljón og með ákaflega svipað stjörnukort og Bill Clinton fyrrum Bandaríkjaforseti. Þeir eru báðir ljón með tungl í nauti, ákaflega góð- látlegar týpur, bangsalegir og góðir. Davíð og Ingibjörg eiga það sam- merkt að vera grimm og kaldhæð- in. Ingibjörg reif hinn góðlátlega Árna í sig. Og þetta segir okkur það um Ís- lendinga að þeir þola ekki einlægni og yfirborðsmennsku heldur hríf- ast þeir af kaldhæðni og niðurrifi. Foringjar eru flottir, taka málstað andstæðingsins og pakka honum saman, og ágætt að persónulegar stungur fylgi. Þau ganga frá and- stæðingnum. Það er sameiginlegt þeim. Þau eru rekstrartýpur, fram- kvæmdastjórar, jarðbundin, mál- efnaleg ... það er styrkur þeirra beggja. Svo hafa þau þennan hvas- sa front.“ Og hvað gerist þegar þau loksins 18 1. mars 2003 LAUGARDAGUR Turnarnir tveir í íslenskum stjórnmálum – Davíð Oddsson og Ingi- björg Sólrún Gísladóttir – eru lygilega lík í ljósi stjörnuspekinnar: Sól í steingeit, tungl í fiskum og rísandi sporðdrekar bæði: Köld, grimm, hvöss og fundvís á veikleika mótherjans stinga þau óhikað líkt og færustu skylmingameistarar. Of lík til að þola hvort annað Davíð Oddsson Fæðingardagur 17. janúar 1948 Staðartími 2:30 GMT 3:30 Reykjavík 64˚˚09 N 21˚53 V Sól í steingeit 25˚ 56’ 3. húsi Tungl í fiskum 29˚ 22’ 5. húsi Rísandi í sporðdreka 1˚ 55’ 1. húsi Merkúr í vatnsbera 4˚ 38’ 3. húsi Venus í vatnsbera 28˚ 51’ 4. húsi Mars í meyju 7˚ 08’ 10. húsi Miðhiminn í ljóni 23˚ 47’ 10. húsi Júpíter í bogmanni 18˚ 31’ 2. húsi Satúrnus í ljóni 21˚ 01’ 9. húsi Úranus í tvíbura 22˚ 54’ 8. húsi Neptúnus í vog 12˚ 60’ 12. húsi Plútó í ljóni 14˚ 10’ 9. húsi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Fæðingardagur 31. desember 1954 Staðartími 6:00 GMT 7:00 Reykjavík 64˚˚09 N 21˚53 V Sól í steingeit 9˚ 05’ 2. húsi Tungl í fiskum 19˚ 17’ 3. húsi Rísandi í sporðdreka 21˚ 52’ 1. húsi Merkúr í steingeit 12˚ 29’ 2. húsi Venus í sporðdreka 25˚ 19’ 1. húsi Mars í fiskum 19˚ 17’ 3. húsi Miðhiminn í vog 2˚ 30’ 10. húsi Júpíter í krabba 26˚ 56’ 8. húsi Satúrnus í sporðdreka 18˚ 17’ 12. húsi Úranus í krabba 26˚ 21’ 8. húsi Neptúnus í vog 27˚ 60’ 11. húsi Plútó í ljóni 14˚ 10’ 9. húsi GUNNLAUGUR GUÐMUNDSSON Stjörnuspekingur í þrjátíu ár. Hann hefur stúderað stjörnukort stjórnmálamanna gaum- gæfilega og það fer um hann þegar hann reynir að sjá fyrir sér fund Ingibjargar Sólrúnar og Davíðs. DAVÍÐ ODDSSON Hefur gríðarlega sterka og grimmdarlega tilfinningalega áru og brýtur fólk niður sál- rænt. Sem rísandi sporðdreki nýtur hann þess að taka fyrir tvíbura á borð við Össur sem talar mikið og skiptir oft um skoðun. Steingeitum reynist létt verk að hlaupa um koll þá sem ekki hafa vaðið fyrir neðan sig. INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR Þegar steingeitin reiðist stífnar hún upp, hverfur inn í sig og með rísandi sporð- dreka leitar hún yfirveguð færis og svo kemur hin banvæna stunga. Þannig fór fyr- ir hinu góðlátlega ljóni, Árna Sigfússyni, sem átti aldrei séns.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.