Fréttablaðið - 21.03.2003, Page 15
FÖSTUDAGUR 21. mars 2003
Í LESTINNI
Hjartastuðtækjunum í neðanjarðarlestum
Kaupmannahafnar er ætlað er auka öryggi
farþeganna sem og annarra borgarbúa.
Hjartastuðtæki á lestar-
stöðvum:
Hátækni í
skyndihjálp
DANMÖRK Ákveðið hefur verið að
setja upp hjartastuðtæki á öllum
neðanjarðarlestarstöðvum í
Kaupmannahöfn í byrjun næsta
árs, að því er fram kemur í frétta-
blaðinu Urban. Stuðtækin sem
sett verða upp eru afar einföld og
eiga allir sem lært hafa skyndi-
hjálp að geta notað þau. Í þeim er
meðal annars búnaður sem getur
greint hvort sjúklingurinn þarf á
rafstuði að halda og er þannig
komið í veg fyrir að hægt verði að
misnota tækin. ■
SEOUL, AP Viðbragðsstaða Suður-
kóreska hersins hefur verið auk-
in. Stjórnvöld í Seoul óttast að
norður-kóresk stjórnvöld reyni
að magna spennuna á Kóreu-
skaga í kjölfar innrásar Banda-
ríkjanna í Írak. Norður-kóresk
stjórnvöld juku einnig við-
bragðsstöðu hers síns og sögðu
það gert vegna hættu á að
Bandaríkin gerðu árás.
Um 4.000 manns komu saman
við sendiráð Bandaríkjanna í
Seoul til að mótmæla árásum á
Írak. Fólkið krafðist þess að
stjórnvöld drægju stuðning sinn
við hernaðaraðgerðirnar til
baka. ■
VÖRÐUR STAÐINN
Þessi suður-kóreski landgönguliði stóð
vörð við herstöð sína á Pohang-strönd,
suðaustur af Seoul.
Spenna á Kóreuskaga:
Hækka varnarstig
Olíuleit hafnað:
Ekki borað
í Alaska
WASHINGTON, AP Öldungadeild
bandaríska þingsins felldi með
naumindum tillögu sem miðaði að
því að leyfa olíuborun á friðuðum
svæðum í Alaska. Í forsetakosn-
ingunum árið 2000 tókust George
W. Bush og Al Gore á um hvort
heimila ætti olíuleit á svæðinu.
Bush studdi olíuleit.
Báðir öldungadeildarþingmenn
Alaska sögðust myndu berjast
áfram fyrir því að heimilað yrði
að bora eftir olíu á náttúruvernd-
arsvæðunum. ■
Rafiðnaðarsambandið:
Hvetur til
leiðréttingar
SKATTAMÁL Miðstjórn Rafiðnaðar-
sambandsins segir það óhrekjan-
lega staðreynd að skattbyrði
þeirra sem minna mega sín hafi
hækkaðu um allt að fimm prósent.
Í ályktun sambandsins segir að í
þessum hópi séu oft eldra fólk eða
einstaklingar sem af einhverjum
ástæðum geti ekki tekið fullan
þátt í kapphlaupi um betur launuð
störf. Miðstjórnin hvetur til þess
að þessi mál verði leiðrétt. ■