Fréttablaðið - 21.03.2003, Qupperneq 23
23FÖSTUDAGUR 21. mars 2003
Íslandsvinurinn og gereyðingar-sinninn Grant Morrison heldur
áfram að byggja ofan á þær rústir
sem hann skapaði í upphafssögu
New X Men-seríunnar í nýút-
kominni þriðju bók, „New Worlds“.
Með því að gefa manni eins og
Morrison lausan tauminn sýndi
Marvel-útgáfan mikla dirfsku.
Hann nýtti sér tækifærið og kálaði
um 2 milljónum „X-manna“ í fyrsta
blaðinu. Hann bjó einnig til nýjar
grunnaðstæður. Nú er mannkynið í
útrýmingarhættu og Prófessor Xa-
vier stiginn upp úr hjólastól sínum.
Svo er að myndast skemmtilegur
ástarþríhyrningur á milli hinnar
lostufullu Emmu Frost, Scott
Summers og Jean Grey.
Í þriðju bókinni kynnir Morri-
son nýjar persónur til leiks, þar á
meðal franska ofurbófann
Fantomex sem gerir ekkert án þess
að fá vel borgað fyrir það. Við lest-
urinn fær maður það á tilfinning-
una að flestum römmum sögunnar
sé eytt í uppbyggingu stærri og
viðameiri sögu sem er handan við
hornið. Þó hasarinn sé mikill grun-
ar mig að það sem koma skal verði
öllu stórfenglegra.
Morrison er án efa að fram-
kvæma athyglisverðustu rannsókn-
ir sem gerðar hafa verið á X-mönn-
unum í langan tíma. Frumleikinn
kemst þó hvergi nærri hans eigin
seríu, „The Filth“ og „Invisibles“,
enda væri það líklegast ófram-
kvæmanlegt.
Birgir Örn Steinarsson
Umfjöllunmyndasögur
Lognið á undan
storminum?
NEW X-MEN: New Worlds
Höfundur: Grant Morrison
SÍMI 553 2075
Sýnd kl. 4, 6, 8, 10 og 12 b.i. 16 ára
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10 ABOUT SCHMIDT kl. 5.30, 8 og 10.30
BLUE CRASH kl. 7
THUNDERPANTS kl. 4 og 5 SKÓGARLÍF 2 m/ísl. tali kl. 4
Sýnd kl. 5.50, 8, 9, 10.10 og 11.15 b.i.16
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30 b.i. 12 ára
FRIDA b.i. 12 kl. 5.30 CHICAGO b.i. 12 kl. 5.30, 8 og 10.20
PUNCH DRUNK b.i. 12 kl. 8 og 10.10Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 16 ára
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 b.i. 12 ára
■ FÓLK
Sigurlíkur Birgittu Haukdal íEurovisionkeppninni í Lettlandi
þann 24. maí minnkuðu snarlega í
gær þegar Rússar tilkynntu að þeir
ætluðu að senda lesbíudúettinn
Tatu fyrir hönd þjóðarinnar.
Stúlkurnar Julia Volkova og
Lena Katina eru þekktar fyrir afar
djarfa sviðsframkomu. Það má því
búast við einum blautum lesbíu-
kossi á sviðinu, í það minnsta. Þær
koma einnig sjaldnast fram á öðru
en undirfötunum. Stúlkurnar eru
17 ára.
Þær segjast vonast til að ganga
fram af dómurum og að þær sigri
vegna símakosninga. Lag þeirra
heitir „Ne ver, ne bojsia“ sem þýð-
ir víst „Engin trú, engin skoðun“.
„Það á enginn að hræðast okkur,
en við eigum eftir að sigra í
Eurovision,“ sagði Julia í viðtali við
breska blaðið The Sun.
„Við vildum gera þetta af því að
við erum rússneskar í húð og hár,“
bætti Lena við. „Við ætlum að rústa
öllu sem hefur farið fram á sviði
Eurovision áður með kynþokka-
fullu atriði okkar.“
Nú þarf kjóll Birgittu svo sann-
arlega að vera fleginn. ■
Eurovision 2003:
Rússar
senda TaTu
TATU
Lesbíudúettinn TaTu keppir fyrir hönd Rússa í Eurovision. Stúlkurnar eru afar borubrattar
og segjast ætla að vinna keppnina.