Fréttablaðið - 26.03.2003, Síða 6

Fréttablaðið - 26.03.2003, Síða 6
6 26. mars 2003 MIÐVIKUDAGUR ■ Asía GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 78.26 -1.57% Sterlingspund 123.41 -1.26% Dönsk króna 11.28 -1.05% Evra 83.79 -1.09% Gengisvístala krónu 122 0,4% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 416 Velta 6.446 m ICEX-15 1.406,340 0,01% Mestu viðskipti Pharmaco hf. 548.968.272 SH hf. 284.678.742 Framtak Fjárfestingarb. hf. 284.067.845 Mesta hækkun Austurbakki hf. 8,96% Skeljungur hf. 1,96% Eimskipafélag Íslands hf. 1,57% Mesta lækkun Þormóður rammi-Sæberg hf. -3,33% Kögun hf. -2,04% Sjóvá-Almennar hf. -1,89% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ*: 8322,9 1,9% Nasdaq*: 1396,3 1,9% FTSE: 3762,0 0,5% DAX: 2630,5 3,2% Nikkei: 8002,7 1,7% S&P*: 878,0 1,6% *Bandarískar vísitölur kl. 17.00 Veistusvarið? 1Kötturinn Rellir átti afmæli á dögun-um. Hversu gamall varð Rellir? 2Fræg manneskja fékk höfnun á krítar-korti sínu þegar hún var að versla í Eymundssyni í Austurstræti. Hvaða fræga persóna var þetta? 3Bæjarfulltrúi í Vestmanneyjum sagðiskilið við meirihluta Sjálfstæðisflokks- ins og myndar nú meirihluta með V-lista. Hvað heitir bæjarfulltrúinn? Svörin eru á bls. 28 VELFERÐARKERFIÐ „Við þurfum að staga í stór göt í okkar velferðar- kerfi og lyfta öryggiskerfinu um- talsvert hærra á einstökum sviðum, eins og á sviði örorkubóta, ellilíf- eyris, almannatrygginga, sjúkra- dagpeninga og atvinnuleyfisbóta,“ segir Stefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, sem hefur unnið að umfangsmikl- um rannsóknum á íslenska velferð- arkerfinu á undanförnum árum. „Eitt stærsta óheillaskrefið var þegar atvinnuleysisbætur voru teknar úr samhengi við lægstu um- sömdu laun. Atvinnuleysisbætur í dag væru rúmlega 20 þúsund krón- um hærri ef það hefði ekki verið gert. Örorkulífeyrir og ellilífeyrir almannatrygginga væri um 20% hærri. Lífeyrir almannatrygginga, sem var árið 1990 um 80% af lág- markslaunum, er núna innan við 60% af lágmarkslaunum og rétt um 40% af meðallaunum verkafólks. Það er því ljóst að bilið á milli líf- eyrisupphæðanna sem koma frá al- mannatryggingakerfinu og launa á vinnumarkaði hefur stóraukist. Og bara þetta þýðir að almanntrygg- ingakerfið hefur veikst til muna.“ Stefán nefnir fleira sem hefur veikt velferð- arkerfið á undanförnum 10 árum. Þar á meðal er aukinn hlutur notendagjalda í heil- brigðisþjónustu, aukinn hlutur skólagjalda og aukinn hlutur sjúk- linga í lyfjakostnaði. „Ég myndi líka nefna síaukna beitingu tekju- tengingar á bótagreiðsl- um og lífeyri, sem gerir hlut ríkisins sífellt minni,“ segir Stefán. „Og svo myndi ég nefna aukið hlutverk einkaað- ila í velferðarþjónustunni, sem kall- ar yfirleitt á greiðslu frá notend- um.“ Stefán telur að íslenska velferð- arkerfið eigi mjög langt í land með að nálgast þau kerfi sem við lýði eru á hinum Norðurlöndunum í gæðum. Hann telur að Íslendingar hafi færst mjög merkjanlega í átt til velferðarkerfis eins og ríkir í Bandaríkjunum, þar sem hlutur hins opinbera er minni og hópur fá- tækra sem þurfa að leita ölmusu hjá sjálfstæðum stofnunum er mun stærri. Stefán segir að það hafi komið fram í skoðanakönnunum að al- menningur styðji kröftuglega efl- ingu allra meginþátta velferðar- kerfisins og vilji auka útgjöld til þess. „Það er óþarfi að hafa lélegt velferðarkerfi hér á landi,“ segir Stefán. „Við getum mjög auðveld- lega leyst þessa sárustu fátækt í landinu án þess að að kostnaður sé verulegur.“ gs@frettabladid.is STEFÁN ÓLAFSSON Eitt stærsta óheillaskrefið í íslensku velferðarkerfi var stigið um miðjan tíunda áratuginn þegar atvinnuleysisbætur voru teknar úr sam- hengi við lægstu umsömdu laun. Þetta gerir það að verkum að atvinnuleysisbætur eru nú undir fátæktarmörkum. SJÁVARÚTVEGSMÁL „Við eigum auð- vitað að umgangast þetta lífríki okkar af ábyrgð. Það er ekki síst hagsmunamál okkar sem stöndum að LÍÚ,“ segir Friðrik J. Arn- grímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegs- manna, í framhaldi af ummælum sem féllu á fundi smábátamanna í Borgarnesi fyrir nokkru. Þar lýsti Magnús Þór Hafsteinsson, frétta- maður, fiskifræðingur og fram- bjóðandi Frjálslynda flokksins, afleiðingum þess að hann sýndi í Sjónvarpinu myndir sem sýndu skemmdir á hafsbotni vegna botn- vörpuveiða. Sérstaklega þótti slá- andi hve illa botnvarpan lék kór- ala sem af mörgum eru taldir nauðsynlegir til þess að viðhalda tegundasamsetningu. Magnús Þór sagði að ekkert hefði gerst við sýningu myndanna annað en það að hann hafi uppskorið andúð að- standenda LÍÚ. Friðrik segir að það sé þvert á alla skynsemi að halda því fram að hagsmunasamtök útgerðar- manna vilji standa að eyðilegg- ingu á hafsbotninum. Þvert á móti felist hagsmunir þeirra sem standa að LÍÚ í því að viðhalda auðlindinni. „Ef kórallar eru góðir fyrir líf- ríkið þá á auðvitað að vernda þá. En auðvitað er ljóst að það vantar rannsóknir á þessu sviði. Það er okkar hagur að ítarlegar rann- sóknir fari fram því við ætlum að lifa af veiðum og skila auðlindinni áfram til komandi kynslóða,“ seg- ir Friðrik. Hann segir að í framhaldi rannsókna verði menn að bregð- ast við í samræmi við niðurstöð- urnar, hverjar sem þær séu. En hann efast um að málflutningur smábátamanna gegn botnvörpu- veiðum sé byggður á heilindum. „Þetta snýst auðvitað að miklu leyti um að þeir fái áfram að veiða smáfisk á króka,“ segir Friðrik. ■ FRIÐRIK J. ARNGRÍMSSON Hagsmunamál allra útgerðarmanna að við- halda auðlindinni. HAFSBOTNINN Víða á hafsbotni má sjá stórbrotið „landslag“. Þessi tölvumynd er hönnuð af Guðrúnu Helgadóttur hjá Hafrannsóknastofnun og sýnir botnlag skammt frá Grímsey. Smábátamenn segja botnvörpu skaða lífríki: LÍÚ vill láta rannsaka áhrif veiða á botninn FJÖLMIÐLAR „Það sætir auðvitað töluverðum tíðindum að í landinu séu núna komin tvö blöð með jafn mikla útbreiðslu,“ segir Þorbjörn Broddason, prófessor í fjölmiðla- fræðum við Háskóla Íslands, um nýja fjölmiðlakönnun Gallup. Hún sýnir að ívið fleiri Íslending- ar lesa Fréttablaðið en Morgun- blaðið. Þorbjörn segir að þó menn hafi spáð frekar illa fyrir Frétta- blaðinu hafi það náð stöðu sem ókeypis blöð hafi ekki náð áður. Blaðið hafi mikla sérstöðu meðal slíkra blaða; það væri borið heim til fólks en ekki dreift á brautar- stöðvum eða viðlíka stöðum. Þá væri það líkara hefðbundnu sölu- blaði en ókeypis blaði. „Frá sjónarmiði auglýsenda og þeirra sem vilja koma ein- hverju á framfæri er sú staða allt í einu komin upp að það er eigin- lega sama hvort blaðið valið er; boðskapurinn kemst til skila í jafn ríkum mæli,“ segir Þor- björn. Þorbjörn telur að Fréttablaðið hafi náð að vinna bug á stærsta vandanum sem að ókeypis blöð- um steðjar. „Mér sýnist að Fréttablaðið hafi komist yfir það sem gæti verið stærsti vandinn; að það sé ómerkilegra vegna þess að það sé ókeypis.“ ■ ÞORBJÖRN BRODDASON „Frá sjónarmiði auglýsenda og þeirra sem vilja koma einhverju á framfæri er sú staða allt í einu komin upp að það er eiginlega sama hvort blaðið valið er; boðskapurinn kemst til skila í jafn ríkum mæli,“ segir Þorbjörn Broddason prófessor í fjölmiðla- fræði. Prófessor í fjölmiðlafræði um lestur Fréttablaðsins: Útbreiðslan sætir tíðindum Evrópusambandið: Cresson ákærð BRUSSEL, AP Belgískir saksóknarar hafa ákært Edith Cresson, fyrrum forsætisráðherra Frakklands, fyr- ir misnotkun á almannafé meðan hún var einn af meðlimum fram- kvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins. Ásakanir um að Cresson og sjö undirmenn hennar hefðu notað fjármuni framkvæmda- stjórnarinnar til að umbuna vin- um og stuðningsmönnum urðu til þess að framkvæmdastjórnin sagði öll af sér. Verði Cresson fundin sek um misnotkun á almannafé er hægt að dæma hana til allt að fimm ára fangelsisvistar. ■ AURSKRIÐA Á FERÐAMANNASTAÐ Tólf manns létu lífið þegar aur- skriður féllu á vinsælum ferða- mannastað á eynni Sulawesi í Indónesíu. Miklar rigningar und- anfarna daga hafa valdið flóðum og aurskriðum víða á eyjunni en jarðvegurinn á svæðinu er afar laus í sér, einkum vegna skóg- areyðingar. TJÓN AF VÖLDUM JARÐSKJÁLFTA Snarpur jarðskjálfti, 5,3 á Richt- er-skala, skók landsvæði í miðri Indónesíu með þeim afleiðingum að að minnsta kosti 20 manns slösuðust. Fjölmörg hús skemmd- ust auk hafnarmannvirkja og um- ferðarmiðstöðvar. Skjálftin fannst í allt að 300 kílómetra fjarlægð frá upptökunum. ÍBÚÐIR UPP Í GJÖLD Bæjarráð Hornafjarðar hefur samþykkt að taka þrjár tveggja herbergja íbúðir í nýbyggingu í bænum upp í skuld. Verktakinn sem byggði húsið með íbúðunum hefur ekki staðið skil á gatnagerðargjöldum. ■ Sveitarstjórnir Segir Stefán Ólafsson félagsfræðiprófessor. Íslenska velferðarkerfið hefur veikst til muna á undanförnum árum að hans mati. Óþarfi að hafa lélegt velferðarkerfi Lyfja við Lágmúla: Játar lyfjastuld LÖGREGLUMÁL Lögreglan hefur handtekið mann vegna ráns í verslun Lyfju við Lágmúla. Mað- urinn, sem er rétt rúmlega tvítug- ur, hefur játað verknaðinn og telst málið upplýst. 16. mars ruddist maður sem virtist í annarlegu ástandi inn í verslun Lyfju við Lágmúla. Hann var með sólgleraugu og ógnaði lyfjafræðingi til að hann segði sér hvar tiltekin lyf væru. Svo virtist þó sem hann vissi nákvæmlega hvað hann vildi því hann var varla nema um mínútu inni í verslun- inni og hafði með sér talsvert magn sterkra verkjalyfja. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.