Fréttablaðið - 26.03.2003, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 26.03.2003, Blaðsíða 13
■ Evrópa 13MIÐVIKUDAGUR 26. mars 2003 FRAKKAR HALDA SIG HEIMA Pöntunum hjá frönskum ferða- skrifstofum hefur fækkað um 15 til 25 prósent síðan Bandaríkja- menn og Bretar gerðu innrás í Írak. Eiga þessar tölur við um ferðalög Frakka til útlanda og eru nokkuð breytilegar eftir áfangastöðum. PÁFI Á LEIÐ TIL SPÁNAR Vatikanið hefur staðfest að Jó- hannes Páll páfi annar muni fara í opinbera heimsókn til Spánar í maí næstkomandi. Þetta er sú fyrsta af mörgum ferðum páfa út fyrir landsteinana á þessu ári en hann mun að öllum líkindum einnig heimsækja Króatíu, Bosn- íu og Slóvakíu. SKÆÐUR BERKLAFARALDUR Rúmenar horfast nú í augu við versta berklafaraldur sem geisað hefur í landinu í 27 ár. Á síðustu vikum hafa að meðaltali sex manns látist úr sjúkdómnum á degi hverjum og yfir 80 ný til- felli komið upp. Yfirvöld áforma að úthluta sem nemur 550 millj- ónum íslenskra króna til þess að reyna að hefta útbreiðslu sjúk- dómsins. RÍKISBORGARARÉTTUR „Í sendiráðinu var mér sagt að konsúllinn væri veikur og því ekki hægt að losa mig undan ríkisborgararéttinum,“ segir Þór Saari hagfræðingur, sem í gær ætlaði að stíga það skref að skila inn bandarísku vegabréfi sínu og afsala sér þar með ríkisborgarétti sínum innan öflugasta herveldis heims, en varð að hverfa frá áformum sínum. Klukkan 10 í gærmorgun mætti hann ásamt lögmanni sín- um eins og ákveðið hafði verið í sendiráð Bandaríkjanna á Laufás- vegi til að ganga frá þeim forms- atriðum sem þurfti til að slíta tengslin við fæðingarland sitt. Þór gerði ráð fyrir að ganga inn í sendiráðið sem Bandaríkjamaður en koma út eftir að formsatriðum væri lokið sem Íslendingur. Þau áform brugðust. „Mér var sagt að líklega yrði hægt að ljúka þessu í næstu viku,“ segir Þór, sem verður að una sínum bandaríska ríkisborgarétti. Þór hefur búið í Bandaríkjun- um um 16 ára skeið þar sem hann nam hagfræði og viðskiptafræði. Um tíma starfaði Þór í World Tra- de Center, í turni 2. Hann er ein- nig með íslenskan ríkisborgarétt og starfar hér á landi. Hann lýsti því í grein í Fréttablaðinu í gær að ástæða þess að hann vildi losna við ríkisborgararéttinn væri sú stefna sem ríkisstjórn George Bush fylgdi innanlands sem utan. Innrásin í Írak fer hvað mest fyr- ir brjóstið á Þór. Samkvæmt upplýsingum frá sendiráði Bandaríkjanna er ekk- ert fordæmi fyrir því hér á landi að einstaklingar hafi óskað eftir að losna við bandarískt ríkisfang sitt af pólitískum ástæðum. Einn einstaklingur óskaði eftir því fyr- ir skömmu að fá að skila inn ríkis- borgararétti en hann hafði búið á Íslandi um langan tíma og var að fá íslenskan ríkisborgararétt. ■ ÞÓR SAARI Mætti í bandaríska sendiráðið á fyrir fram ákveðnum tíma en varð frá að hverfa án þess að fá að skila vegabréfi sínu. BORGARAR Í JERÚSALEM Samtökin Law Society hafa haft eftirlit með mannréttindabrotum Ísraelsmanna og Palestínumanna á Vesturbakkanum og Gaza-ströndinni síðan árið 1990 og á þeim tíma hlotið sem svarar milljörðum króna í styrki frá aðilum víðs vegar í heiminum. Fjármálaóreiða: Misnotuðu styrki JERÚSALEM, AP Alþjóðlegar styrk- veitingar til palestínsku mann- réttindasamtakanna Law Society hafa verið stöðvaðar vegna gruns um að hundruð milljóna króna úr sjóðum þeirra hafi verið notuð í vafasömum tilgangi. Ákvörðunin var tekin í kjölfar skýrslu óháðs endurskoðanda þar sem fram kom að 300 milljónir króna vantaði í sjóði samtakanna. Höfðu peningarnir meðal annars verið notaðir til að kaupa bíla handa umsjónarmönnum sjóð- anna og í vafasamar lánveitingar til ættingja þeirra. Um 120 millj- ónir höfðu verið lagðar inn á sparireikning án vitneskju gef- enda en að sögn talsmanns sam- takanna var um eins konar vara- sjóð að ræða. ■ VIÐSKIPTI Íslensk erfðagreining (ÍE) birtir á næstu vikum afkomu- tölur síðasta árs. Síðustu tölur sem hafa verið birtar um afkomu ÍE voru fyrir þriðja ársfjórðung ársins í fyrra. Þá varð gríðarlegt tap á rekstrin- um, ekki síst vegna þess að á því tímabili voru gjaldfærðar mjög háar upphæðir vegna greidds fjögurra mánaða uppsagnarfrests um 200 starfsmanna. Þó nokkrar mannabreytingar hafi orðið hjá ÍE mun tala starfs- manna vera óbreytt frá því eftir fjöldauppsagnirnar í fyrrahaust. Um 350 starfsmenn eru á Íslandi og á bilinu 120 til 140 í Bandaríkj- unum. Yfirlýst markmið ÍE er að ná rekstrinum í jafnvægi fyrir lok þess árs; að þá sé fyrirtækið hætt að ganga á eigin sjóði til að fjár- magna daglegan rekstur. Á aðal- fundi félagsins í maí skýrist hvernig útlitið er varðandi þetta markmið. Gengi hlutabréfa DeCode, móð- urfélags ÍE, á Nasdaq-hlutabréfa- markaðnum hefur verið um og undir 2 dollurum á hlut að undan- förnu. Lokagengið á mánudag var 1,95. Það er 5,4% hærra en um ára- mót. Að meðaltali hefur gengi erfðafræðifyrirtækja á Nasdaq lækkað um 10,7% frá áramótum. ■ Tælenski herinn: Hommum vísað frá BANGKOK, AP Tælenski herinn áformar að veita samkynhneigðum karlmönnum og klæðskiptingum undanþágu frá herskyldu af ótta við að þeir muni grafa undan starf- semi hersins. Hingað til hafa þess- ir menn sinnt herskyldu eins og aðrir en að sögn talsmanns tæ- lenska hersins hafa þeir átt erfitt með að aðlagast og því oftar en ekki verið reknir úr hernum. Í viðtali sagði tælenskur herfor- ingi að samkynhneigðir menn og klæðskiptingar hefðu líkamlegar hvatir sem væru óviðeigandi og því stæði nú til að bera kennsl á þá í læknisskoðun og senda þá heim. ■ ÍSLENSK ERFÐAGREINING Nokkrar mannabreytingar hafa orðið hjá Íslenskri erfðagreiningu en starfsmenn eru jafn margir og þeir voru eftir fjöldauppsagnir í fyrrahaust. Íslensk erfðagreining birtir afkomutölur ársins 2002 á næstu vikum: Hefur haldið fjölda starfsmanna í horfinu FR ÉT TA B LA Ð IÐ /T H O R ST EN Konsúll Bandaríkjanna sagður veikur: Bandarískur í eina viku í viðbót

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.