Fréttablaðið - 26.03.2003, Blaðsíða 18
18 26. mars 2003 MIÐVIKUDAGUR
FRÁBÆR TILÞRIF
Skautaparið Yuko Kawaguchi og Alexander
Markuntsov sýndi frábær tilþrif á heims-
meistaramótinu í skautadansi sem haldið
er um þessar mundir í Washington.
Skautadans
FÓTBOLTI Stærstu knattspyrnufélög
Evrópu gætu á næstu misserum
neitað að hleypa leikmönnum sín-
um í landsleiki. Þetta segir David
Dein, varaformaður Arsenal, í
heimildarmynd sem sýnd var í
gærkvöldi á BBC-sjónvarpsstöð-
inni.
Hann á von á því að bylting
verði næsta árið hvað varðar
skipulag í hinum alþjóðlega knatt-
spyrnuheimi. Í myndinni er
brugðið ljósi á deiluna sem komið
hefur upp á milli knattspyrnufé-
laga og landsliða um það hvort eða
hversu mikið leikmenn eigi að
spila með landsliðum sínum.
Sepp Blatter, forseti Alþjóða
knattspyrnusambandsins, FIFA,
hefur lýst ákvörðun knattspyrnu-
sambands Englands um að tefla
fram tveimur mismunandi liðum í
landsleik gegn Ástralíu á dögun-
um sem farsa. „Í framtíðinni geta
menn ekki leikið vináttuleiki með
eitt lið í 45 mínútur og annað
næstu 45 mínúturnar. Það er ekki
rétt gagnvart andstæðingnum og
það er alls ekki sanngjarnt gagn-
vart almenningi. Enska knatt-
spyrnusambandið á ekki að skipu-
leggja þannig leiki og því ætlum
við að skerast í leikinn,“ sagði
Blatter. ■
FÓTBOLTI Eyjamaðurinn Tryggvi
Guðmundsson, sem leikur með
norska liðinu Stabæk, hefur verið
valinn í íslenska landsliðshópinn
fyrir leikinn gegn Skotum næsta
laugardag í undankeppni EM.
Tryggvi kemur í hópinn í stað
Heiðars Helgusonar, leikmanns
Watford, sem er meiddur.
Tryggvi hefur leikið 29 A-lands-
leiki og skorað í þeim átta mörk.
Hann lék í síðasta landsleik Ís-
lands, gegn Eistlandi í nóvember í
fyrra. ■
FÓTBOLTI Heimavöllur skoska
landsliðsins heitir Hampden Park.
Völlurinn var eitt sinn sá stærsti
og fullkomnasti í heiminum og
rúmaði 150 þúsund áhorfendur.
Bygging vallarins hófst árið 1903
eftir að forráðanenn áhuga-
mannafélagsins Queen’s Park
keyptu 13 hektara land í suður-
hluta Glasgow.
Mesta aðsókn á Hampden Park
er 149.415 manns á leik Skota og
Englendinga árið 1937 og sama ár
sáu 146.433 manns bikarúrslita-
leik Celtic og Aberdeen. Leikur
Celtic og Leeds United í undanúr-
slitum Evrópukeppni meistaraliða
dró að sér 136.505 áhorfendur og
er það metaðsókn í leik í Evrópu-
keppni félagsliða.
Árið 1993 hófust umfangsmikl-
ar endurbætur á vellinum. Þeim
er ekki að fullu lokið en kostnað-
urinn er orðinn um 70 milljónir
punda.
Skoska knattspyrnusambandið
tók völlinn á leigu af Queen’s Park
árið 2000 en rekstur vallarins er í
höndum hlutafélags. Völlurinn
rúmar 52.000 áhorfendur eftir
breytingarnar en áhorfendur á
leik Skota gegn Írlandi í febrúar
voru 33.337. ■
HEIÐAR
Heiðar Helguson var með í fyrri leik
Íslands og Skotlands á Laugardals-
velli. Hann verður fjarri góðu gamni
á Hampden Park á laugardag.
Landsleikur Íslands og
Skotlands:
Tryggvi í
stað Heiðars
NÝR LANDSLIÐSBÚNINGUR
Leikmenn enska landsliðsins kynna nýjan
landsliðsbúning fyrir leikinn gegn Liechten-
stein í undankeppni EM á laugardag. Fé-
lagslið hafa kvartað undan því að rándýrir
leikmenn sínir komi þreyttir til baka eftir
að spilað með landsliðum sínum.
Heimildarmynd um deilu félaga og landsliða:
Leikmönnum ekki
hleypt í landsleiki?
AP
/M
YN
D
SKOSKIR STUÐNINGSMENN
Þessir ágætu knattspyrnuunnendur verða á heimavelli á laugardag.
Hampden Park:
Var lengi
stærsti völl-
ur heims
A
P/
M
YN
D
FÓTBOLTI Ólafur lék með Hibernian
frá 1997 til 2000 og þekkir því
skosku knattspyrnuna mjög vel.
Fréttablaðið bað Ólaf um að segja
frá skoska liðinu. „Heildarmunur-
inn á liðunum er kannski sá að
Skotarnir leika allir svipaða
knattspyrnu, þ.e. enskan eða
skoskan bolta, en Íslendingarnir
leika víðs vegar um Evrópu.“
Fimm Íslendinganna hafa leik-
ið yfir 40 landsleiki en Christian
Dailly er leikjahæstur Skota með
41 leik. Ólafur telur fjölda lands-
leikja ekki eina mælikvarðann á
reynslu. Knattspyrnureynsla
Skotanna er gríðarleg og „ekki má
gleyma því að það er mun erfiðara
að komast í skoska liðið. Hvað
hafa þeir t.d. leikið marga deildar-
leiki? Robert Douglas lék með
Dundee í áratug og Celtic síðustu
þrjú ár. Colin Cameron lék með
Hearts í úrvalsdeildinni og Barry
Ferguson hefur verið í byrjunar-
liði Rangers í mörg ár. Þarna eru
margir reyndir leikmenn sem
geta borið uppi skoska landsliðið
en okkur vantar sömu breidd.“
Skotar eiga marga leikmenn sem
eru í lykilhlutverkum í sínum fé-
lagsliðum t.d. Cameron, Fergu-
son, Lambert, Crawford og Mc-
Namara.
„Christan Dailly og Steven
Pressley leika í skosku vörninni.
Þeir eru að vísu reyndir en ekki
fljótir og gætum við að mínu mati
ógnað þeim með skyndisóknum.
Skotar eiga mjög sterka miðju-
menn og fljóta sóknarmenn.
Kenny Miller og Colin Cameron
eru mjög fljótir og Don Hutchison
er sterkur leikmaður. Stephen
Crawford er lunkinn sóknarmað-
ur, útsjónarsamur og nýtir færin
sín vel. Hann er kannski ekki
fljótur á fyrstu metrunum, en
fljótur þegar hann er kominn á
ferðina og kemur mönnum að
óvörum. Við þurfum að hafa gæt-
ur á Crawford.“
Skotar ættu að vera í góðri
leikæfingu enda langt liðið á
breska tímabilið. Á móti kemur að
pressan er mikil á skoska lands-
liðinu fyrir leikinn og gæti það
verið okkar hagur. „Þetta er alltaf
spurning um hvernig okkur tekst
að stilla saman hópinn á þeim
stutta tíma sem við höfum.“
obh@frettabladid.is
Okkar möguleikar
felast í skyndisóknum
Íslendingar leika gegn Skotum á laugardag í undankeppni EM. Varnar-
menn Skota eru ekki fljótir, segir Ólafur Gottskálksson, markvörður
Grindavíkur. sem lék þrjú tímabil með skoska liðinu Hibernian.
LEIKMENN SKOTLANDS
Markverðir L M
Neil Alexander (Cardiff City) - -
Robert Douglas (Celtic) 7 -
Paul Gallacher (Dundee United) 3 -
Varnarmenn
Graham Alexander (Preston) 8 -
Gary Caldwell (Newcastle United)* 4 -
Christian Dailly (West Ham) 41 4
Robert Malcolm (Rangers) - -
Steven Pressley (Hearts) 5 -
Maurice Ross (Rangers) 8 -
Andy Webster (Hearts) - -
Lee Wilkie (Dundee) 5 -
Miðjumenn
Colin Cameron (Wolves) 16 2
Scot Gemmill (Everton) 25 1
Paul Devlin (Birmingham City) 3 -
Barry Ferguson (Rangers) 14 2
Paul Lambert (Celtic) 35 1
Jackie McNamara (Celtic) 14 -
Gary Naysmith (Everton) 10 1
Jamie Smith (Celtic) - -
Sóknarmenn
Stephen Crawford (Dunfermline) 8 3
Scott Dobie (WBA) 6 1
Don Hutchison (West Ham) 20 6
Kenny Miller (Wolves) 1 -
Steven Thompson (Rangers) 7 2
*Gary Caldwell er skráður leikmaður Newcastle en
hefur verið í láni hjá Coventry frá því í fyrra.
SKOTLAND - ÍSLAND
Skotar höfðu betur í leik þjóðanna á Laugardalsvelli í haust.