Fréttablaðið - 26.03.2003, Blaðsíða 28
28 26. mars 2003 MIÐVIKUDAGURMeð súrmjólkinni
32 ÁRA „Ég ætla að vera í fríi og
taka því mjög rólega“, segir Dýr-
leif Ýr Örlygsdóttir, sem er 32 ára
í dag. „Ég fer kannski á kaffihús
og dúlla mér eitthvað og um kvöld-
ið ætla ég að bjóða nánustu fjöl-
skyldunni í súpu.“ Dýrleif rak á
sínum tíma hina rómuðu tísku-
verslun Fríðu og Dýrið en fæst nú
við ýmislegt er viðkemur búning-
um og leikmunum í kvikmyndum
og auglýsingum hjá fyrirtækinu
Skyggni ágætt.
Dýrleif segist ekki vera mikið
afmælisbarn og kjósa því helst að
eiga náðuga afmælisdaga í góðra
vina hópi. „Þegar ég varð þrítug
ætlaði ég að hafa rosalega stóra
veislu en þá datt inn stórt verkefni
og ég sá ekki fram á neitt annað en
vinnu og sló því öllum áætlunum á
frest. Verkefnið datt svo upp fyrir
einum eða tveimur dögum fyrir af-
mælisdaginn en þá var of seint að
halda veislu. Ég tók því þess vegna
bara rólega en það var samt rosa-
lega skemmtilegt. Maðurinn minn
fór með mig á Planet City um
morguninn og þar fengum við
kampavín og snittur í heita pott-
inn.“
Umræddur maður, sem var
svona huggulegur við elskuna sína
á afmælinu, er Kormákur Geir-
harðsson veitingamaður, en hann
hefur að sögn Dýrleifar lyft
nokkrum afmælisdögum upp. „Ég
er svo lítið afmælisbarn í mér en
er svo heppin að þessu er þveröf-
ugt farið með hann. Ég væri sjálf-
sagt búin að gleyma nokkrum af-
mælisdögum ef hann hefði ekki
gripið inn í.“ Þrítugsafmælisdeg-
inum luku þau á Argentínu í góðra
vina hópi. „Við leyfðum kokkinum
að velja matinn, þannig að þetta
var gourmet-dagur í mat og
drykk.“
Hvað afmælisdaga fortíðarinn-
ar varðar segist hún ekki muna
eftir neinum sérstaklega. „Ég er
bara með svo mikið gullfiskaminni
að mér dettur ekkert sérstakt í
hug svona í fljótu bragði en ég
man hins vegar eftir því að þegar
ég var krakki varð ég alltaf ofsa-
lega ánægð þegar ég fékk skart í
afmælisgjöf. Plasteyrnalokkar,
armbönd og svoleiðis drasl var í
miklu uppáhaldi. Og svo auðvitað
dúkkur líka. Ég man sérstaklega
eftir einni, litlum, svörtum strák
sem mér þótti mjög vænt um.“
thorarinn@frettabladid.is
Kampavín í heitum potti
DÝRLEIF ÝR
ÖRLYGSDÓTTIR
Segir þrítugsafmæl-
isdaginn hafa verið
nákvæmlega eins og
hún vill hafa afmæl-
isdagana sína. „Ég
kann best við þetta
svona, borða góðan
mat og hitta vini og
fjölskyldu.“
Hemmi og Sara komu að óska-brunni. Hemmi beygði sig yfir
hann, óskaði sér og lét smápening detta í
miðjan brunninn. Sara ákvað að gera
þetta líka, en þegar hún hallaði sér yfir
brunninn, missti hún fótfestuna og datt
ofan í hann. Hemmi varð höggdofa, en
brosti svo og sagði „Andskotinn sjálfur!
Þetta virkar!“
■ Húsið
NOOR JÓRDANÍUDROTTNING
Er hér ásamt Mariu Shriver, fréttamanni og eiginkonu vöðvabúntsins Arnolds
Schwarzenegger, og Bono, söngvara U2, í útgáfuteiti í Beverly Hills. Blásið var til veislunn-
ar í tilefni af útkomu bókarinnar Leap of Faith eftir drottninguna.
NÁM Ísfirðingar berjast nú
um að fá að hefja fjarnám í
hjúkrunarfræði við Háskól-
ann á Akureyri haustið
2004, en minnst tíu nemend-
ur þurfa að stunda námið til
að leyfi fáist. Fleiri bæjar-
félög eru á höttunum eftir
að fá námið til sín en aðeins
einn staður í einu fær slíkt
leyfi í einu.
Ísfirðingar voru með
þeim fyrstu til að útskrifa
hjúkrunarfræðinga í fjar-
námi fyrir nokkrum árum
og sagði Þröstur Óskarsson,
framkvæmdastjóri Sjúkra-
hússins á Ísafirði, það hafa gengið
mjög vel á sínum tíma. Það er Há-
skólinn á Akureyri sem hefur með
það að gera hvar fjarnám er
stundað. ■
ÍSFIRÐINGAR VILJA
LÆRA HJÚKRUN Í BÆNUM
Minnst tíu nemendur verða að vera til
staðar til að leyfi fáist frá Háskólanum
á Akureyri.
Ísfirðingar vilja læra:
Barist um
hjúkrunarnám
Við Geirsgötu 1 stendur lítið,hrörlegt hús sem má muna fíf-
il sinn fegurri. Húsið var teiknað
af Einari Sveinssyni og Gunnari
H. Ólafssyni og reist árið 1946.
Það lætur lítið yfir sér enda er
grunnflötur þess aðeins um 55
fermetrar. Engu að síður var á
árum áður mikið líf í húsinu og
var hlutverk þess þá einkum tví-
þætt. Annars vegar var það vigt-
arhús fyrir fisk og voru þá báta-
bryggjur niður af húsinu norðan-
verðu. Hins vegar var í því lítil
kaffistofa og snyrtingar auk sölu-
turns með afgreiðslulúgu í austur-
enda hússins.
Byggingarlag hússins verður
að teljast nokkuð óvenjulegt en
greinilegt er að talsvert hefur
verið lagt í útlitshönnun þess.
Vesturendinn er bogadreginn en í
austurendanum er lítill turn sem í
var klukka.
Pondus eftir Frode Øverli
Afmæli
■ Dýrleif Ýr Örlygsdóttir verður 32
ára í dag og ætlar að hafa það náð-
ugt. Hún segist helst vilja slappa af á
afmælinu sínu og njóta góðs matar
með vinum sínum. Þrítugsafmælið
er eftirminnilegt dæmi um slíkan
dekurdag.
Svo margar dömur...
svo lítill plástur...
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/TH
O
R
STEN