Fréttablaðið - 26.03.2003, Blaðsíða 11
SÓTTKVÍ
Heilbrigðisyfirvöld í Singapúr hafa gripið til
örþrifaráða í baráttu sinni við dularfulla
veirusýkingu sem breiðst hefur út í landinu
á undanförnum vikum.
Dularfulla veirusýkingin:
Hundruð
í sóttkví
SINGAPÚR, AP Yfirvöld í Singapúr
hafa skipað hundruðum borgara
að halda sig heima í von um að
hægt verði að hefta útbreiðslu
dularfullrar veirusýkingar sem
skaut upp kollinum í landinu fyrir
nokkrum vikum. Heilbrigðisyfir-
völd hafa einnig lokað leikskóla
og grunnskóla en þetta munu vera
umfangsmestu sóttvarnarráðstaf-
anir sem gripið hefur verið til í
heiminum.
Fram að þessu hafa 65
Singapúrar veikst af völdum
veirunnar og nú hefur um 740
landsmönnum sem gætu hafa um-
gengist sýkta einstaklinga verið
gert að halda sig heima næstu tíu
daga. Ef fólkið hlýðir ekki skipun
yfirvalda getur það átt yfir höfði
sér ákæru. ■
Árás á gyðing:
Enginn kom
til bjargar
BERLÍN, AP Ráðist var á bandarísk-
an námsmann um hábjartan dag á
verslunargötu í Berlín. Námsmað-
urinn var einn á ferð og var hann
klæddur að sið strangtrúaðra gyð-
inga.
Að sögn vitna voru árásar-
mennirnir fjórir og af arabískum
uppruna. Kýldu þeir Bandaríkja-
manninn í andlitið og köstuðu að
honum lauslegum hlutum. Hann
slapp án teljandi meiðsla en var
illa brugðið, einkum vegna þess að
enginn skarst í leikinn þrátt fyrir
að fjöldi fólks yrði vitni að árás-
inni. Reyndi hann meðal annars
árangurslaust að fá lánaðan síma
til þess að hringja á lögreglu. ■
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarstjórn
Borgarbyggðar hyggst selja
jarðirnar Skíðsholt og Stapasel
auk hluta síns í Hvítstöðum.
Bjóða á leigutökum á sumarbú-
staðalóðum í landi Syðri-
Hraundals lóðirnar til kaups.
Leita á leiða til að selja Syðri-
Hraundal og hlut í jörðinni
Grenjum þannig að aðgangur að
afrétti verði tryggður.
Minnihluti Framsóknar-
manna er alfarið á móti sölu á
Syðri-Hraundal og hlutnum í
Grenjum. Nauðsynlegt sé að
nýta land þessara jarða innan
fjallgirðingar sem afrétt:
„Sala á landinu væri aðför að
sauðfjárbúskap og búsetu í Álfta-
neshreppi,“ sögðu framsóknar-
menn á bæjarstjórnarfundi. Þeir
bentu á að íbúar í Álftanes-,
Hraun- og Borgarhreppi hafi
mótmælt söluáformunum. Salan
þjóni ekki hagsmunum Borgar-
byggðar.
Helga Halldórsdóttir, forseti
bæjarstjórnar, sagði á hinn bóg-
inn að með því að leita eftir um-
sögn landbúnaðarnefndar vildi
meirihlutinn tryggja aðgang að
afréttarlöndum:
„Það er fráleitt að ætla að slíkt
sé aðför að sauðfjárbúskap og bú-
setu í Álftaneshreppi og vísum við
því alfarið á bug,“ sagði Helga. ■
BORGARBYGGÐ
„Það er fráleitt að ætla að slíkt sé aðför að sauðfjárbúskap og búsetu í Álftaneshreppi og
vísum við því alfarið á bug,“ sagði Helga Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og
forseti bæjarstjórnar Borgarbyggðar, um gagnrýni framsóknarmanna á fyrirhugaða jarða-
sölu.
Framsókn í Borgarbyggð ósátt við jarðasölu:
Aðför að sauðfjárrækt
Heimsókn endurgoldin:
Páll í
Kína
OPINBER HEIMSÓKN Páll Pétursson
félagsmálaráðherra er nú stadd-
ur í Kína í opinberri heimsókn.
Með honum í för er ráðuneytis-
stjórinn Hermann Sæmundsson,
eiginkonur þeirra og ritari rá-
herra, María Sæmundsdóttir.
Tilgangur ferðarinnar er að end-
urgjalda heimsókn varafélags-
málaráðherra Kínverja, sem var
hér á ferð í október árið 2002.
Starfandi félagsmálaráðherra er
flokksbróðir Páls, Guðni Ágústs-
son, en frægt er þegar hann fékk
magakveisu í heimsókn sinni til
Kína á sínum tíma. ■
11MIÐVIKUDAGUR 26. mars 2003