Fréttablaðið - 26.03.2003, Qupperneq 14
14 26. mars 2003 MIÐVIKUDAGUR
LONDON, AP Innrás Breta og Banda-
ríkjamanna í Írak gengur „ná-
kvæmlega samkvæmt áætlun,“
sagði Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, við fjölmiðla
þegar hann bjó sig undir að halda
til fundar við George W. Bush
Bandaríkjaforseta í Washington.
„Það verður mótstaða allt til
loka herferðarinnar,“ sagði Blair
á öðrum blaðamannafundi sínum
frá því innrásin hófst. „Það þarf
tíma og þrautseigju, einbeitingu
og fagmennsku hermanna okkar
til að brjóta hana á bak aftur.“
Forsætisráðherrann breski sagði
að það þyrfti enginn að velkjast í
vafa um að markmið innrásarinn-
ar myndu nást.
Blair sagði að hann og Bush
myndu ræða innrásina í Írak á
fundi sínum í dag. Enn fremur
yrði rætt um samskipti við aðrar
þjóðir og hvernig hægt yrði að
bæta samskipti Evrópu og Banda-
ríkjanna þannig að þau störfuðu
saman sem vinir en ekki keppi-
nautar. ■
■ Innrás í Írak/
Kostnaður
Á LEIÐ TIL WASHINGTON
Tony Blair og George W. Bush funda um innrásina í Írak og samskipti við Evrópuþjóðir á
fundi sínum í dag.
Árásin gengur samkvæmt áætlun, segir Tony Blair:
Brjótum mótsöðu
á bak aftur
SKRIÐDREKAR Í ÍRAK
Stríðsrekstur Bandaríkjamanna í Írak kostar
á við 19 ára rekstur íslenska ríkisins.
Nítjánföld
fjárlög
WASHINGTON Innrás Bandaríkja-
manna í Írak kostar á við nítján-
föld fjárlög íslenska ríkisins sé
miðað við þá fjárveitingu sem Ge-
orge W. Bush Bandaríkjaforseti
hefur farið fram á hjá þinginu.
Bush fer fram á andvirði tæpra
6.000 milljarða íslenskra króna til
að standa straum af kostnaði við
innrásina í Írak og varnir gegn
hryðjuverkum. Stærstur hluti
fjárhæðarinnar fer til varnar-
málaráðuneytisins til að greiða
kostnað við hálfs árs rekstur hers-
ins í Írak. Sú upphæð nemur 4.900
milljörðum íslenskra króna.
Kostnaður breska hersins er ekki
meðtalinn. ■
AUKINN STUÐNINGUR Stuðningur
Breta við innrásina í Írak hefur
aukist mjög eftir að hún varð að
raunveruleika. 54% eru fylgjandi
innrásinni samkvæmt könnun
sem birtist í The Guardian, 30%
eru andvíg henni.
VILL VIÐSKIPTABANN Yassin
Ramadan, varaforseti Íraks,
gagnrýndi arabaþjóðir fyrir að
styðja ekki við bakið á Írökum
gegn innrás Breta og Bandaríkja-
manna. Hann hét á þá að hætta
að selja olíu til Bandaríkjanna og
Bretlands meðan á stríðinu stæði.
ÁTTA FELLDIR Upplýsingamála-
ráðherra Íraks segir að átta
óvinahermenn hafi látist í bar-
dögum nærri An Nasiriyah. Hann
sagði enn fremur að þrjú bryn-
varin farartæki hefðu verið
eyðilögð í bardögum. Yfirmenn
bandamanna könnuðust ekki við
fregnirnar.
■ Innrás í Írak/
Örfréttir
FYLGST MEÐ FRÉTTUM
Kúrdinn Khamoo Haji hlustaði á útvarpið í helli sem hann hafði komið sér fyrir ásamt
ættingjum sínum til að komast í skjól frá loftárásum í norðanverðu Írak. Fjöldi íbúa hefur
flúið svæðið.
SPRENGJUVÉL HLAÐIN
Það er meira en að segja það að hlaða hinar risavöxnu B-52 sprengjuflugvélar. Hver
þeirra um sig getur flogið með allt að 50 sprengjur.
TEKIST Á LOFT
Bandarísk herþota sést hér taka á loft frá flugmóðurskipinu Constellation. Flugmóðurskip-
ið er statt á Persaflóa og tekur þátt í árásum á Írak.
INNRÁSINNI MÓTMÆLT Á GAZA-STRÖNDINNI
Palestínsk stúlka mundar leikfangabyssu á meðan pabbi hennar heldur á mynd af
Saddam Hussein. Fjölmargir Palestínumenn hafa líst sig andvíga innrásinni í Írak.
MYRKUR Í BAGDAD
Mikill sandstormur og þykkur reykur frá
skurðum fylltum af olíu sem kveikt hefur
verið í til að halda aftur af innrásarherjum
hefur orðið til þess að myrkvað er í
Bagdad um miðjan dag. Flestir íbúar borg-
arinnar héldu sig inni við í gær.
SKYGGNI Í LÁGMARKI
Sandstormur hefur gert það að verkum að
skyggnið er oft ekki nema nokkrir metrar
fram á veginn. Þetta hefur dregið úr fram-
sókn innrásarherjanna.