Fréttablaðið - 26.03.2003, Page 20
■ ■ FUNDIR
12.00 Sjávarútvegsráðuneytið og
Háskóli Íslands standa fyrir opn-
um fyrirlestri sem ber yfirskriftina
„Framtíðarviðfangsefni í sjávarút-
vegi“. Árni M. Mathiesen sjávar-
útvegsráðherra fjallar um ný við-
fangsefni á vegum ráðuneytisins
og gerir grein fyrir líffræðilegri
fiskveiðistjórnun. Fyrirlesturinn
verður haldinn í Hátíðasal Há-
skólans, Aðalbyggingu, og stend-
ur yfir frá kl. 12-13.
12.30 Í stofu 113 í Listaháskóla Ís-
lands, Skipholti 1, flytur Halldóra
Ísleifsdóttir, grafískur hönnuður,
fyrirlestur sem hún nefnir Dýrt
rusl eða verðmætasköpun?
12.30 Halldór Ásgrímsson utanrík-
isráðherra ræðir um stríðið í Írak
á hádegisfundi með Háskólastúd-
entum í Odda, stofu 101. Fundar-
stjóri er Ólafur Þ. Harðarson.
13.30 Fræðslu- og umræðufundur
verður haldinn í Safnaðarheimili
Dómkirkjunnar, Lækjargötu 14a,
um atvinnumissi, áhrif hans á
líðan fólks og hvernig skynsam-
legt er að bregðast við. Á þessum
fundi mun Garðar Björgvinsson
frá Fjármálaþjónustunni ræða fjár-
málahliðina á atvinnumissi.
16.00 Fundur verður haldinn fyrir
sjúklinga í dagvist MS-félagsins
og aðstandendur þeirra í húsi
MS-félagsins, Sléttuvegi 5. Fund-
arefnið er starfsemi dagvistarinn-
ar.
20.00 Stofnfundur Félags Les-
blindra á Íslandi verður haldinn
á Hótel Borg. Félagið mun vinna
markvíst að því að auka vitund og
þekkingu á lesblindu á Íslandi.
Undirbúningur hefur staðið yfir
síðan um áramót og nú er komið
að stofnun félagsins.
20.30 Bókaforlagið Bjartur efnir til
laufléttrar útgáfuhátíðar á Súfist-
anum í tilefni af útkomu bókar-
innar Við hinir einkennisklæddu
eftir Braga Ólafsson. Bragi les
upp úr bókinni og Eiríkur Guð-
mundsson fjallar um Braga og
skáldskap hans auk þess sem
Kristinn Árnason gítarleikari leik-
ur lauflétt lög, þó ekki á gítarinn.
■ ■ TÓNLEIKAR
12.30 Háskólakórinn og Bergþór
Pálsson flytja Háskólakantötuna
eftir Pál Ísólfsson á Háskólatón-
leikum í Norræna húsinu. Hákon
Leifsson stjórnar og Kristinn Örn
Kristinsson leikur á píanó.
21.00 Eyjólfur Kristjánsson með
tónleika á Stokkseyri.
21.00 Paul Lydon spilar á píanó og
syngur frumsamin lög í Norræna
húsinu. Kira Kira sér um plötu-
spilarann á eftir. Kaffistofa Nor-
ræna hússins verður opin til
klukkan ellefu.
Kanadíski dávaldurinn Paul Royters
verður með skemmtidagskrá í
Smáralind í dag.
■ ■ FRAM UNDAN
Á fimmtudaginn verður leikritið
Rauða spjaldið eftir Kjartan
Ragnarsson og Sigríði Margréti
Guðmundsdóttur frumsýnt í
Þjóðleikhúsinu.
Á fimmtudaginn flytur Peter Maté
píanóleikari ásamt Sinfóníu-
hljómsveit Íslands píanókonsert
eftir Béla Bartok á tónleikum í
Háskólabíói. Einnig verða flutt
verk eftir Jón Nordal og Tsjaíkov-
skí.
Á laugardaginn verður frumflutt
barnaleikritið Gaggalú eftir Ólaf
Hauk Símonarson í Hafnarfjarð-
arleikhúsinu.
Á laugardaginn frumflytur Íslenska
óperan úrdrætti úr óperunum
Madama Butterfly eftir Puccini
og Ítalska stúlkan í Alsír eftir
Rossini.
■ ■ SÝNINGAR
Sýningin Undir fíkjutré: Alþýðulistir
og frásagnarhefðir Indlands
stendur yfir í Listasafninu á Ak-
ureyri. Þetta er í fyrsta sinn sem
indversk myndlist er kynnt með
jafn víðfeðmum hætti hér á landi.
Í Arinstofu Listasafns ASÍ stendur
yfir sýning á nokkrum konkret-
verkum frá sjötta áratug síðustu
aldar. Á sýningunni eiga verk lista-
mennirnir Benedikt Gunnarsson,
Hjörleifur Sigurðsson, Nína
Tryggvadóttir, Valtýr Pétursson
og Þorvaldur Skúlason.
Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhús-
inu, stendur yfir sýning á sovésk-
um veggspjöldum úr eigu safns-
ins, sem hafa ekki komið áður fyr-
ir almenningssjónir. Heilbrigði,
hamingja og friður er yfirskrift
sýningarinnar.
Helgi Þorgils Friðjónsson er með
einkasýningu á Kjarvalsstöðum.
Hann sýnir þar eingöngu ný mál-
verk.
Finnbogi Pétursson myndlistarmað-
ur sýnir innsetningu í Kúlunni í
Ásmundarsafni þar sem hann
myndgerir hljóð.
Í Hafnarhúsinu stendur yfir einka-
sýning Patrick Huse sem nefnist
Penetration. Sýningin er síðasti
hluti trílógíu sýninga listamanns-
ins, sem fjalla um samband
manns og náttúru á norðurslóð-
um.
Listamaðurinn Svandís Egilsdóttir er
með myndlistarsýningu í Galleríi
Sævars Karls. Á sýningunni eru
olíumálverk og skúlptúr. Þetta er
fyrsta einkasýning hennar í
Reykjavík.
Þór Magnús Kapor er með mynd-
listarsýningu í Listasal Man,
Skólavörðustíg 14.
Í sal Íslenskrar grafíkur, sem er
hafnarmegin í Hafnarhúsinu, sýnir
Alistair Macintyre stór pappírs-
verk, sem unnin eru með ís og
járnlitarefni.
Í Hafnarborg, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar, stendur yfir
sýning á áður ósýndum verkum
listakonunnar Louisu Matthías-
dóttur.
Myndlistarmaðurinn Gunnar Örn
sýnir í Listasafni ASÍ, Freyjugötu
41. Verkin á sýningunni nefnast
Sálir og Skuggi.
20 26. mars 2003 MIÐVIKUDAGURhvað?hvar?hvenær?
23 24 25 26 27 28 29
MARS
Miðvikudagur
Ég segi það með glotti á vör, aðþessi bók sé mín skáldskapar-
fræði,“ segir Bragi Ólafsson
skáld. Bókaforlagið Bjartur gef-
ur út í dag eftir hann bókina Við
hinir einkennisklæddu. „Ég kalla
þetta póetískt testamenti. Ég er
þarna svolítið að setja fram mína
eigin sýn á skáldskapinn og
hvernig hann tengist veruleikan-
um.“
Bragi segir bókina setta sam-
an úr aðskildum brotum, sem
hanga aðeins lauslega saman.
Sumt í henni er sett fram sem
hefðbundnar smásögur, annað er
meira eins og ljóð í lausu máli.
„Þetta er öðrum þræði unnið
upp úr gömlum ljóðahugmynd-
um, sem hafa lengi legið í skúff-
unni hjá mér og í hausnum.
Síðan fóru þessar myndir
smám saman að taka á sig mynd
þegar ég var kominn með yfir-
skriftina, Við hinir einkennis-
klæddu.“
Bragi segir að fyrsta persónan
í heiti bókarinnar eigi við hann
sjálfan, þótt hún sé höfð í fleir-
tölu. „Við erum alltaf að koma
fram í einhverjum einkennis-
klæðnaði dags daglega, hvort
sem það er hversdagslegur
klæðnaður eða ekki.“
Árið 1996 kom út bók eftir
Braga sem heitir Nöfnin á úti-
dyrahurðinni. Hann segir að nýja
bókin kallist á við þá bók, því
hvorug þeirra er hefðbundin
ljóðabók eða smásögur.
„Þessi nýja bók stendur saman
af óljósum minningum mínum,
bæði úr æsku og frá seinni árum.
Svo er einhver togstreita á milli
þess hvort þetta séu sannar
minningar eða búnar til. Ég get
ekki alltaf greint á milli þess
sjálfur.
Mér finnst ég í rauninni alltaf
vera að glopra niður öllum minn-
ingum, gleyma eigin ævi, þannig
að mér finnst ég þurfa að fylla
upp í eyðurnar. Þetta er í raunni
það sem drífur mig mest áfram í
að skrifa, að búa til staðreyndir
inn í mitt eigið líf. Þetta verða
eins konar staðgenglar fyrir glat-
aðar minningar.“
Bragi segist ekkert viss um að
þessi bók hefði komið út ef það
efni sem hann var kominn með í
óformlegu handriti hefði ekki
fallið svona vel að nýrri bókaröð
forlagsins Bjarts. Í sömu röð er
bók Hermanns Stefánssonar,
Sjónhverfingar, sem kom út í síð-
ustu viku. Á næstu vikum koma
svo út tvær bækur í viðbót í sömu
röð, Einkavegir eftir Þröst
Helgason og Ferðalok eftir Jón
Karl Helgason.
gudsteinn@frettabladid.is
■ NÝ BÓK
Verð frá
68.500.- m. grind
Queen 153x203
Tilboð
Amerískar lúxus
heilsudýnur
BRAGI ÓLAFSSON
Bókaforlagið Bjartur efnir til laufléttrar út-
gáfuhátíðar á Súfistanum í kvöld í tilefni af
útkomu nýrrar bókar eftir Braga Ólafsson.
Bragi les upp úr bókinni, Eiríkur Guð-
mundsson fjallar um skáldskap Braga og
svo leikur Kristinn Árnason gítarleikari
nokkur lög, en ekki þó á gítarinn.
Skáldskaparfræði
Braga Ólafssonar
Það mark-v e r ð a s t a
sem ég hef séð
undanfarið er
sýning norska
listamannsins
Patrick Huse í
Hafnarhúsinu,“ segir Erla Þórar-
insdóttir myndlistarmaður. „Sýn-
ingin heitir Penetration og það er
athyglisvert hvernig hann tekur
öðruvísi en við á landinu, sem
landslagsmálari, en hann fer ofan
í það og inn í það. Það er hætt við
að svona sýningar líði hjá þegar
fólk veit engin deili á listamannin-
um en þetta er eitthvað sem fólk
ætti endilega að gefa sér tíma til
að skoða.“
Mittmat
Leikfélagið
Snúður og Snælda sýnir
„Forsetinn kemur í heimsókn“
gamanleik með söngvum í
Ásgarði, Glæsibæ, miðvikudaga
og föstudaga kl. 14.00
og sunnudaga kl. 15.00.
Miðapantanir á skrifstofu
s. 588 2111, einnig eru miðar
seldir við innganginn.
SÝNINGUM FE
R FÆKKANDI