Fréttablaðið - 26.03.2003, Síða 32

Fréttablaðið - 26.03.2003, Síða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Trúlofunar- og giftingarhringir 20% afsláttur í takmarkaðan tíma www.gunnimagg . i s Bakþankar ÞRÁINS BERTELSSONAR Stórmennsku- brjálæði 300 milljón krónur eru skemmtilegtala. Vonandi dettur einhverjum í hug að bjóða mér 300 milljónir fyrir að hætta að hæðast að sér í Frétta- blaðinu. Þó ekki væri nema 100 milljónir. Safnast þegar saman kem- ur. Þegar ég er búinn að eignast þessa peninga ætla ég að nota þá til að gerast meðeigandi í stríði ein- hvers staðar. ÍSLAND keypti hlutabréf í inn- rásinni í Írak fyrir einmitt 300 millj- ónir sem eru smápeningar þegar um svona stórframkvæmd er að ræða. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að ég geti keypt mig inn í hóp hinna stað- föstu þjóða sem einstaklingur ef ég get einhvern veginn barið upp 300 milljónkall í aðgangseyri. Þá fæ ég örugglega að taka í höndina á Banda- ríkjaforseta og ókeypis þyrluflug að skoða valkesti, húsarústir og brenn- andi olíulindir. Það góða við stríð sem fjárfestingu er að ekki þarf að setja þau í umhverfismat. SÍÐUSTU 2000 árin hefur verið mikil verðbólga í heiminum. 30 silf- urpeningar eru orðnir að 300 millj- ónum áður en maður veit af. Þar að auki hefur gildismatið snúist við. Í staðinn fyrir að fá greitt fyrir að framselja meðbræður sína í dauðann verður maður núna að borga fyrir að fá að taka þátt í aftökunni. Það er líka andstætt frjálshyggjunni að rík- ið skuli hafa einkarétt á því að taka þátt í styrjöldum. Auðvitað á að einkavæða styrjaldarþátttöku Íslend- inga strax í dag, þannig að einstak- lingum og lífeyrissjóðum gefist kost- ur á að fjárfesta í styrjöldum úti um víða veröld, og þurfi ekki að sætta sig við miðstýrðar ríkisfjárfestingar í styrjöldum sem eru ríkisstjórninni þóknanlegar. GEÐLÆKNIRINN minn sagði að það væri ótvírætt einkenni um geð- veiki þegar ég sagði honum að mig dreymdi um að eignast 300 milljón krónur til að geta keypt mig inn í styrjöld suður í Írak. Þá spurði ég hann hvort sama gilti um ríkisstjórn Íslands sem er einmitt nýbúin að gera þetta. Geðlæknirinn sagðist enga ábyrgð bera á ríkisstjórninni en bað mig að koma aftur í næstu viku og muna að halda áfram að taka lyfin mín. Ég held hann hafi verið að muldra um eitthvað sem hann kallaði „mikilmennskubrjálæði“. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.