Fréttablaðið - 31.03.2003, Síða 2

Fréttablaðið - 31.03.2003, Síða 2
2 31. mars 2003 MÁNUDAGUR Nei, það kom mér hvorki á óvart hver var kjörinn né hversu glæsileg kosningin var. Við stöndum með Davíð. Sigurður Kári Kristjánsson, frambjóðandi Sjálf- stæðisflokksins, sat um helgina landsþing Sjálf- stæðisflokksins. Í gær var Davíð Oddsson endur- kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins. Þess má geta að Davíð var fyrst kjörinn formaður árið 1991. Spurningdagsins Sigurður, kom formannskjörið þér á óvart? Reykjanesbraut: Létust í um- ferðarslysi SLYS Mennirnir sem létust í um- ferðarslysi á Reykjanesbraut á föstudag hétu Jóhannes Sigurðs- son, fæddur 1978, til heimilis að Lækjargötu 34d í Hafnarfirði, og Søren Staunsager Larsen, fæddur 1946, til heimilis að Víkurgrund 8, Kjalarnesi. Jóhannes lætur eftir sig eiginkonu, sex mánaða dóttur og níu ára stjúpson. Søren lætur eftir sig eiginkonu og þrjú upp- komin börn. ■ Fékk á sig heybagga: Lífshættu- lega slasaður SLYS Karlmaður slasaðist mjög al- varlega þegar um 200 kílóa þung- ur heybaggi féll á hann. Var verið að afferma vörubíl við Nesbú á Vatnsleysuströnd þegar heybaggi féll af pallinum og á manninn sem stóð við bílinn. Við það missti hann meðvitund og var fluttur með sjúkrabíl á Landspítala – há- skólasjúkrahús. Þar gekkst hann undir tvær aðgerðir en hefur ekki enn komist til meðvitundar. Hon- um er nú haldið sofandi í öndunar- vél. ■ Rúta með 64 farþega: Fauk út af veginum LÖGREGLUMÁL Rúta fauk út af veg- inum undir Hafnarfjalli rúmlega fjögur síðdegis í gær. Miklar vind- hviður voru á þessu svæði og mældist vindhraði um 40 m/sek. Í rútunni voru sextíu og fjögur ung- menni frá Akureyri á leiðinni til Reykjavíkur. Að sögn lögreglunn- ar í Borgarnesi náði ökumaður að stýra rútunni út af veginum og koma þannig í veg fyrir að hún valt. Þannig hafi hann komið í veg fyrir hugsanlegt slys. Björgunarsveitin á Akranesi og Borgarfirði var kölluð út til að aðstoða farþegana úr rútunni. Var þeim komið til Borgarness þar til gerðar voru ráðstafanir til að koma þeim til Reykjavíkur. ■ Söngkeppni framhaldsskólanna: MA vann söngkeppni framhalds- skólanna SÖNGUR Anna Katrín Guðbrands- dóttir frá Menntaskólanum á Ak- ureyri fór með sigur af hólmi í Söngkeppni framhaldsskólanna og hafði þar með betur en 24 aðr- ir keppendur. Anna Katrín söng vísur Vatnsenda-Rósu í R&B-útsetn- ingu. Í öðru sæti var Sigþór Árnason frá Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi með lag Muse sem á íslensku bar nafnið Vöðvasafnið. Elísabet Eyþórs- dóttir, Borgarholtsskóla, hafnaði í þriðja sæti með lagið „Þá sá ég þig“. Keppninni var sjónvarpað og sáu nemendur um útsend- ingu, sem tókst vel í alla staði. Gera þurfti hlé á útsendingu í um tíu mínútur vegna rafmagns- leysis og biðu bæði keppendur og áhorfendur með mikilli ró þar til straumur komst aftur á. ■ Eiginkona Slobodan Milosevic: Neitar að snúa aftur til Serbíu MORÐRANNSÓKN Mirjana Marcovic, eiginkona Slobodan Milosevic, harðneitar þrátt fyrir skipanir lögreglu að snúa aftur til Serbíu, þar sem á að yfirheyra hana um morðið á fyrrum forseta Serbíu, Ivan Stambolic. Mirjana, sem dvelur í Rússlandi, segist forviða á þeim yfirlýsingum lögreglu að hún sé á flótta og verði eftirlýst af alþjóðalögreglu ef hún mæti ekki til yfirheyrslunnar. Lögreglan telur að Marcovic kunni að búa yfir vitneskju um morðið á Ivan Stambolic, sem var myrtur í október árið 2002. ■ MIRJANA MARCOVIC Dvelur nú í Rússlandi, en neitar því að hún sé á flótta undan réttvísinni. ÁREKSTUR Á VESTURLANDSVEGI Tveir bílar rákust saman á móts við Blikastaði á Vesturlandsvegi síðdegis í gær. Ökumenn beggja bílanna voru fluttir á Landspítala – háskólasjúkrahús með sjúkra- bíl. Að sögn lögreglu voru þeir ekki mikið slasaður. Bílarnir voru að koma úr gagnstæðri átt þegar þeir rákust saman. Loka þurfti veginum í klukkustund í kjölfar- ið. ■ Lögreglufréttir Skólastjórinn semur ekki Skólastjóri Varmárskóla í Mosfellsbæ hefur enn ekki lokið gerð samn- inga við aðra starfsmenn en kennara í samræmi við reglur. Skólastjór- inn segir vandamálið vera greiðslur vegna nýju vetrarfríanna. Lausnin sé að hætta með vetrarfrí. SKÓLAR Skólastjóri Varmárskóla hefur ekki farið að endurteknum fyrirmælum bæjaryfirvalda um samninga við starfsmenn skólans. Varmárskóli er annar tveggja grunnskóla í Mosfellsbæ. Í Lága- fellsskóla hafa þegar verið gerðir sérstakir ráðningarsamningar við aðra starfsmenn en kennara. Í bréfi frá fræðslu- og menningar- sviði Mosfellsbæjar 4. október í haust eru áréttuð fyrirmæli frá haustinu 2000 um að slíkir samn- ingar séu gerðir. Þá átti að gera í framhaldi af breyttum vinnutíma og nýjum kjarasamningi vegna einsetningar grunnskólanna. Um er að ræða húsverði, matráða, rit- ara, skólaliða, stuðningsfulltrúa og starfsfólk skólaselja, alls um 40 manns. Björn Þráinn Þórðarson, for- stöðumaður fræðslu- og menning- arsviðsins, segir margt gamal- reynt starfsfólk hafa tekið óstinnt upp að þurfa að skrá hjá sér vinnustundir þannig að unnt yrði að leggja grundvöll að ráðningar- samningum. Það sé miður, því mikilvægt sé að vinnureglur milli stofnana séu með sama hætti. „Þetta er spurningin um það hvernig á að skilgreina vinnutíma þessa fólks á árs- grundvelli. Fólk fór úr því að fá laun níu mánuði á ári í að fá laun allt árið svo það færi ekki á atvinnu- leysisbætur yfir sumarið,“ segir Björn Þráinn. Viktor A. Guðlaugsson, skóla- stjóri Varmárskóla, segir málið vera leyst að öllu öðru leyti en því að ágreiningur sé um greiðslur vegna vetrarfrís. Bæjaryfirvöld hafi gefið leyfi fyrir því að starfs- fólkið gæti unnið af sér páska- og jólafrí en ekki hin nýju vetrarfrí. Fólk sé ekki reiðbúið að afsala sér launum vegna vetrarfrísins. „Það er fyrst og fremst verið að karpa um vetrarfríin. Fólki finnst því ekki bera skylda til að taka þetta frí,“ segir Viktor. Í Lágafellsskóla hafa laun starfsfólksins í vetrarfríum ein- faldlega verið felld niður í vetrar- fríum, að sögn Viktors. „Það hefur ekki náðst samkomulag um það hér í Varmárskóla. Þó þetta séu aðeins um 2 prósent af árslaunun- um skiptir það máli fyrir fólkið. En það er til einföld lausn. Hún er sú að vera ekki með nein vetrar- frí,“ segir Viktor. gar@frettabladid.is VARMÁRSKÓLI „Þetta er spurningin um það hvernig á að skilgreina vinnutíma þessa fólks á ársgrundvelli. Fólk fór úr því að fá laun níu mánuði á ári í það að fá laun allt árið svo það færi ekki á at- vinnuleysisbætur yfir sumarið,“ segir Björn Þráinn Þórðarson, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs Mosfellsbæjar. Illa gengur að ganga frá nýjum samningum við starfsfólk Varmárskóla. ■ Gamalreynt starfsfólk tók óstinnt upp að þurfa að skrá hjá sér vinnu- stundir. SØREN STAUNS- AGER LARSEN JÓHANNES SIGURÐSSON GASÁRÁS Á MARKAÐ Flytja þurfti átján manns á sjúkrahús eftir að gasárás var gerð á stór- markað í tékknesku borginni Olomouc. Fólkið átti erfitt með öndun eftir að hafa andað gasinu að sér. Líklegast er talið að tára- gas hafi verið notað. Varað hafði verið við árásum eftir að reynt var að kúga fé út úr borgaryfir- völdum. ■ Evrópa Tveir slösuðust þegar flugvél hrapaði í Hvalfirði: Þakkar bóndanum lífsbjörg sonarins FLUGSLYS „Við erum að ljúka við frumrannsókn slyssins. Vettvangs- rannsókn lauk í gær og flak vélar- innar var flutt til Reykjavíkur,“ segir Þormóður Þormóðsson hjá Rannsóknarnefnd flugslysa. „Rannsókn sem þessi beinist að öll- um hugsanlegum þáttum en augu okkar beinast helst að veðurfars- legum aðstæðum,“ bætti Þormóð- ur við. Á föstudagskvöld brotlenti tveggja sæta flugvél í suðurhlíðum Miðfellsmúla á Hvalfjarðarströnd. Mennirnir tveir sem voru í vélinni komust lífs af með ótrúlegum hætti. Líðan mannanna tveggja er eftir atvikum og njóta þeir að- hlynningar á Landspítalanum. „Hann er öklabrotinn og með annars stigs bruna á höndum, fót- um og hægra megin á höfði,“ sagði faðir annars mannsins í viðtali við Fréttablaðið í gær. „Við gerum okkur kannski ekki alveg grein fyrir þessu ennþá. Ég fékk náttúr- lega sjokk, þó ég hafi ekki fylgst með þessu í fréttum og séð það sem aðrir sáu. Núna er ég bara nokkuð rólegur. Það er engin spurning að það er bóndanum að þakka að þeir komust lífs af, því þeir voru orðnir mjög kaldir þegar hann kom þeim til hjálpar.“ ■ GJÖRÓNÝTT FLAK FLUGVÉLARINNAR Mikil mildi þykir að ekki skuli hafa farið ver þegar flugvélin hrapaði og brann.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.