Fréttablaðið - 31.03.2003, Síða 15
15MÁNUDAGUR 31. mars 2003
Nýjar vörur á
hverjum degi!
Opnum í dag 27.3 2003 - Opnunartími virka daga 14.00-18.00 - Laugardaga/Sunnudaga 11.00-18.00 - Stendur til 6.4 2003
NIKE
Confetti
Regatta adidasSPEEDO
Triumph
Verðdæmi
66˚N Fleece peysur
okkar verð 3900 fullt verð 7990
Barnaúlpur Catmando
okkar verð 2950 fullt verð 6990
Barna kuldagallar
okkar verð 2950 fullt verð 6990
Osh Kosh pólóbolir barna
okkar verð 1000 fullt verð 2990
O’Neill, SPEEDO, Adidas, NIKE sundbolir
verð frá 1000
NIKE barnabuxur verð frá 1500
isit Zo
Eingöngu merkjavara
og sömu góðu verðin
Mikið af göngu-og útivistarfatnaði
■ Asía
JAFNRÉTTI „Það er mat okkar að í
auglýsingum Flugleiða sé ótví-
ræður kynferðislegur undirtónn,“
segir Þorbjörg I. Jónsdóttir, for-
maður Kvenréttindafé-
lag Íslands, um auglýs-
ingar Flugleiða sem
mörgum þykja tvíræð-
ar og að íslenskar kon-
ur séu niðurlægðar þar.
Eftir að íslenskar flug-
freyjur komu við sögu í
frægum Sopranos-
sjónvarpsþætti í hlut-
verki hjásvæfa mafíósa gaus upp
mikil umræða meðal kvenna um
það orðspor sem færi af íslensk-
um konum erlendis í kjölfar þátt-
arins. Á vefslóðinni feministinn.is
hafa hundruð tölvuskeyta gengið
á milli þar sem auglýsingar fé-
lagsins eru fordæmdar.
Guðjón Arngrímsson, fjöl-
miðlafulltrúi Flugleiða, hefur
mótmælt þessu harð-
lega og sagt að þeir
sem telji auglýsingarn-
ar vera niðurlægjandi
skiji enski ekki nægi-
lega vel.
Þorbjörg segir að
stjórn Kvenréttindafé-
lagsins hafi rætt þessi
mál og mikillar
óánægju gæti þar vegna auglýs-
ingatækni Flugleiðamanna.
„Okkur finnst sérstaklega al-
varlegt að Flugleiðir skuli standa
að þessari kynningu. Fram hefur
komið hjá blaðafulltrúa þeirra að
auglýsingarnar séu ekki ósiðleg-
ar. Þá finnst mér ástæða til þess
fyrir Flugleiðamenn að ræða mál-
in við þá auglýsingastofu sem
hannar auglýsingarnar,“ segir
Þorbjörg.
Hún segir að á næstu vikum
muni Kvenréttindafélagið taka af-
stöðu til þess hvort gripið verði til
aðgerða gagnvart flugfélaginu.
„Okkur finnst full ástæða til
þess að kanna hvort kærugrund-
völlur sé fyrir hendi,“ segir Þor-
björg. ■
FÓLKSFJÖLDI, AP Íbúar þeirra 15 ríkja
sem nú mynda Evrópusambandið
verða 88 milljónum færri árið 2100
en þeir eru í dag ef barneignum
fjölgar ekki. Þetta er niðurstaða
vísindamanna sem hafa rannsakað
fæðingartíðni í ríkjunum. Íbúar í
ríkjum Evrópusambandsins voru
375 milljónir talsins árið 2000 en
yrðu samkvæmt þessu aðeins 287
milljónir eftir 97 ár.
Í dag fæðir hver kona að meðal-
tali eitt og hálft barn á lífsleiðinni.
Það dugar ekki til að viðhalda
fólksfjöldanum. Tvær leiðir eru til
að koma í veg fyrir að íbúum
fækki. Annars vegar að fæðingar-
tíðnin fari hækkandi, hins vegar að
fleiri innflytjendur leggi leið sína
til ríkjanna 15. Stefna margra ríkj-
anna hefur þó frekar miðað að því
að draga úr fjölda innflytjenda frá
löndum utan Evrópusambandsins.
Brian C. O’Neill, einn þeirra
sem unnu að rannsókninni, segir
ekki öruggt að íbúum ríkjanna 15
fækki mjög á þessu tímabili.
Breytt aldurssamsetning, þar sem
eldra fólki fækkar en þeim sem
eru á barneignaraldri fækkar,
þrýstir þó á fólksfækkun. Meðal-
aldur kvenna við fyrstu barneign
hefur einnig hækkað og það dreg-
ur úr líkum á að þær eignist mörg
börn. ■
HJÁLPARSTARF STÖÐVAÐ Alþjóða
Rauði krossinn hefur ákveðið að
stöðva hjálparstarf í Afganistan
um stundarsakir. Ákvörðunin var
tekin í kjölfarið á morði á sviss-
neskum starfsmanni síðastliðinn
fimmtudag. Þá réðust vígamenn
á tvær bifreiðar Rauða krossins,
skutu manninn til bana en létu
lausa tvo Afgana sem voru með
honum í för.
SLEGIST YFIR SJÓNVARPINU Til
harðra átaka kom á heimavist
háskólanema í Bangladesh þeg-
ar nemendur gátu ekki komið
sér saman um það hvort horfa
ætti á vinsælan framhaldsþátt
eða fréttir af stríðinu í Írak á
BBC. Hátt í 50 háskólanemar
slösuðust í átökunum en auk
hnefanna var barist með eldhús-
hnífum og járnstöngum.
UMDEILDIR
Auglýsingar Flugleiða er-
lendis eru umdeildar.
Kvenréttindafélag Íslands íhugar kæru á Flugleiðir:
Meiðandi kynning
fyrir íslenskar konur
TONY SOPRANO
Íslenskar flugfreyjur dúkkuðu upp og
reyndust vera hinar mestu glyðrur.
FÆRRI OG ELDRI EVRÓPUBÚAR
Lengi hefur verið varað við því að meðal-
aldur færi hækkandi í ríkjum Evrópusam-
bandsins. Nú er mikilli fólksfækkun spáð
að óbreyttu.
Mikilli fólksfækkun spáð í ríkjum Evrópusambandsins:
Gæti fækkað um
allt að fjórðung