Fréttablaðið - 08.04.2003, Page 4

Fréttablaðið - 08.04.2003, Page 4
4 8. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR ■ Sveitarstjórnir Eru Íslendingar góðir ökumenn? Spurning dagsins í dag: Heldur þú að samkomulag náist um framtíð Evrópska efnahagssvæðisins? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 48,5% 51,5% Engan veginn Vissulega Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is Andrés Sigmundsson: Kveðst umvafinn flokks- bræðrum SVEITARSTJÓRNARMÁL „Ég vonast til að þetta gangi allt upp,“ segir Andrés Sigmundsson, bæjarfull- trúi Framsóknarflokksins, um nýjan meirihluta í Vestmannaeyj- um, sem tók til starfa í síðasta mánuði. Andrés segir að þegar skipað var að nýju í nefndir í framhaldi þess að nýr meirihluti hans og Vestmannaeyjalista tók við völd- um hafi ýmsir flokksbræðra hans innan Framsóknarflokksins skilað sér þótt ýmsir meðal framsóknar- manna hafi tekið þann kost að halla sér að minnihluta Sjálfstæð- isflokksins. „Ég er umvafinn framsóknar- mönnum,“ segir Andrés og kveðst fagna því sérstaklega að vera í betri félagsskap en áður. Andrés skipaði Skæring Georgsson varamann sinn en sjálfstæðismenn hafa lýst því að þeir muni kæra þá ákvörðun til fé- lagsmálaráðuneytisins. ■ Ráðherrar: Efla ímynd hrossa STJÓRNMÁL Landbúnaðarráðherra, samgönguráðherra og utanríkis- ráðherra undirrita í dag sam- komulag um átaksverkefni til kynningar og markaðssetningar á íslenska hestinum. Verkefnið stendur til ársins 2007. Efla á „jákvæða ímynd hrossaræktar og hestamennsku og auka sölu á íslenska hestinum og hestatengdri vöru og þjónustu innanlands og utan.“ Lögð er áhersla á forystuhlut- verk Íslands sem upprunalands íslenska hestsins. Efla á almennan áhuga á hestamennsku, meðal annars í grunnskólum og fram- haldsskólum. ■ JÖRÐ GENGUR ÚT Borgarbyggð vill taka hæsta tilboði í eyðijörð- ina Stapasel með fyrirvara um kaupskilmála. Sex tilboð bárust frá ýmsum stöðum. Hæsta tilboð- ið kom frá aðila úr sveitarfélag- inu sjálfu. Atvinnuleysi á Suðurnesjum: Þrefalt fleiri án atvinnu ATVINNUMÁL „Bæjarstjóri Reykja- nesbæjar hefur sagt frá undirrit- un samnings varðandi stálpípu- verksmiðju hér á Suðunesjum,“ segir Kristján Gunnarsson, for- maður Verkalýðs- og sjómanna- félags Keflavíkur. Hann segir engan kominn með vinnu vegna þessa ennþá nema starfsmenn Íslenskra aðalverktaka sem vinna að undirbúningi lóðar. Hann segir þetta atvinnusköpun fyrir stóran hóp véla- og verka- manna, sem sé mjög jákvætt. „Varla verður aftur snúið mið- að við þá vinnu sem komin er af stað. Ég horfi björtum augum til þessa. En það leysir ekki þennan bráða atvinnuvanda sem hér er. Á fimmta hundrað manns eru at- vinnulausir, sem er yfir fimm prósent. Tala atvinnulausra hef- ur nærri þrefaldast frá því í fyrra. Við erum mjög óróleg yfir þessu hérna hjá Verkalýðs- og sjómannafélaginu. Þau merki sem við sáum frá atvinnulífinu í haust bentu öll til þess að það myndi þrengja að hjá okkur,“ segir Kristján. Hann segir að Svæðisvinnumiðlun Suðurnesja hafi gefið út viðvörun til sveitar- félaganna í haust. Kristján segir að þó loðnuver- tíðin sé farin af stað rétti hún lít- ið úr stöðunni. Hann segir fleiri atvinnutækifæri skila sér hægar en samdráttur. „Hluti af bráða- vandanum er sá að sveitarfélög- in eru ekki að vinna nógu vel saman. Þau vinna að málunum hvert í sínu horni. Suðurnesin eru eitt vinnusvæði. Fólk setur vegalengdirnar ekki fyrir sig. Þegar unnið er í atvinnumálum hér á Suðurnesjum þarf að skoða þau sem eina heild,“ segir Krist- ján. ■ Kynferðislegt ofbeldi: Eyjarskeggj- ar fyrir rétt WELLINGTON, AP Fimmti hver íbúi á Pitcairn-eyju í Kyrrahafi hef- ur fengið á sig ákæru fyrir kyn- ferðislegt ofbeldi. Eyjarskeggj- ar eru aðeins um 45 og er því um níu manns að ræða. Fjöldi lögreglumanna frá Englandi og Nýja-Sjálandi tók þátt í umfangsmikilli rannsókn á meintri kynferðislegri misnotk- un eyjarskeggja en ásakanir þar að lútandi höfðu borist frá um 20 konum sem búið höfðu á eynni. Að rannsókninni lokinni var ákveðið að gefa út ákæru á hend- ur níu karlmönnum. Á meðal ákæruatriða eru nauðganir og kynferðisleg misnotkun á ung- um börnum. Pitcairn, sem er afskekkt eld- fjallaeyja, var numin árið 1790 af níu áhafnarmeðlimum breska skipsins Bounty, en þeirra á meðal var stýrimaðurinn sem leiddi uppreisnina gegn Bligh skipstjóra. ■ Gordon Brown: Enga Evru í Bretlandi BRETLAND Búist er við því að Gordon Brown, fjármálaráð- herra Bretlands, noti kynningu sína á fjárlagafrumvarpi næsta árs til að mæla gegn því að Bret- ar taki upp evruna. The Times segir að meðal þess sem Brown muni leggja áherslu á í kynningu sinni séu slæm áhrif strangra reglna evrusvæðisins um fjárlagahalla. Þær eru taldar hafa gert evru- ríkjum erfitt fyrir við að auka hagvöxt. Þær myndu einnig koma í veg fyrir lántöku sem Bretar þurfa að leggja í til að standa straum af kostnaði við aðgerðir ríkisstjórnarinnar. ■ Ekkert lát á útbreiðslu Yfir hundrað manns hafa nú látist af völdum heilkennis alvarlegrar bráðrar lungnabólgu. Óttast er að holskefla tilfella sé í vændum og leita yfirvöld um allan heim nú leiða til þess að takast á við þennan áður óþekkta vágest. FARALDUR, AP Skráð dauðsföll af völdum HABL, heilkennis alvar- legrar bráðrar lungnabólgu, eru nú orðin yfir eitt hundrað. Yfir 2.300 manns hafa veikst í heim- inum öllum, flestir í Kína og Hong Kong, og heldur tilfellun- um áfram að fjölga þó að hart sé barist gegn útbreiðslu sjúk- dómsins. Dæmi eru um að lækn- ar og hjúkrunarfólk hafi veikst af sjúkdómnum. Tæplega áttræð kona í Hong Kong varð þess vafasama heið- urs aðnjótandi að verða hund- raðasti einstaklingurinn sem deyr úr HABL. Þrátt fyrir stór- tækar aðgerðir yfirvalda hefur sjúkdómurinn haldið áfram að breiðast út í héraðinu. Ráða- menn í Hong Kong óttast nú að holskefla tilfella sé í vændum og er stefnt að því að við lok þessa mánaðar geti sjúkrahús á svæð- inu tekið á móti allt að 3.000 sjúklingum. Í dag geta þau að- eins annað um 1.500 manns og er því hætt við að neyðarástand skapist ef ekki verður hafinn undirbúningur nú þegar fyrir það sem koma skal. Kínverskir ráðamenn hafa nú viðurkennt að sjúkdómurinn sé mun útbreiddari þar í landi en áður hefur komið fram. Kínverj- ar hafa verið harðlega gagn- rýndir fyrir að halda leyndum mikilvægum upplýsingum varð- andi útbreiðslu sjúkdómsins og tefja þannig fyrir sérfræðingum sem eru að reyna að komast að rótum sjúkdómsins. Sendinefnd frá Alþjóðaheil- brigðisstofnuninni hefur verið í Guangdong-héraði í Kína síðan á fimmtudag í þeim tilgangi að komast að uppruna HABL. Rannsóknin beinist einkum að því að kanna hvort veiran sem veldur sjúkdómnum gæti hafa borist í menn frá húsdýrum eða jafnvel villtum dýrum. Sérfræð- ingar telja að sjúkdóminn megi rekja til áður óþekkts afbrigðis kórónaveiru en slíkar veirur finnast venjulega aðeins í dýr- um. Í Víetnam hafa að minnsta kosti fjórir látist af völdum HABL. Hefur komið til tals að hætta að hleypa inn í landið gest- um frá þeim löndum þar sem sjúkdómurinn hefur komið upp. Ekki er þó talið líklegt að af því verði þar sem það myndi að lík- indum skaða ferðaþjónustuna í landinu verulega. ■ Skattatillögur flokkanna skipta meirihluta landsmanna litlu eða engu máli í kosningunum: Meirihlutinn kýs ekki skattamál SKOÐANAKÖNNUN Meirihluti lands- manna segir að tillögur stjórn- málaflokkanna í skattamálum stjórni litlu eða engu um það hvernig þeir ætla að kjósa í vor samkvæmt skoðanakönnun, Fréttablaðsins frá því á laugar- daginn. Rúmlega 46% þeirra sem tóku afstöðu segja að tillögur flokk- anna í skattamálum komi til með að skipta miklu máli um hvernig þeir verja atkvæði sínu í kosning- unum. Rúmlega 27% segja að til- lögurnar skipti litlu máli og rúm- lega 26% segja þær ekki skipta neinu máli. Nokkur munur er á afstöðu kynjanna til mikilvægis skattatil- lagna flokkanna. Um 53% kvenna segja þær skipta miklu máli um það hvernig atkvæðinu verði var- ið en um 40% karla eru sömu skoðunar. Karlar búsettir í þétt- býli láta skattatillögurnar sig meiru varða en karlar á lands- byggðinni. Um 44% þeirra segja tillögurnar skipta miklu máli en 34% karla á landsbyggðinni. Ekki er teljandi munur á afstöðu kven- na eftir búsetu. Á heildina litið lætur fólk í þéttbýli skattatillög- urnar sig meiru varða en fólk á landsbyggðinni. Um 49% íbúa í þéttbýli segja þær skipta miklu máli um það hvernig þeir verja at- kvæði sínu í vor en 43% íbúa á landsbyggðinni. Í könnuninni var hringt í 600 manns á landinu öllu og tóku tæp 93% þeirra afstöðu. Spurt var: Hversu miklu máli munu tillögur stjórnmálaflokkanna í skattamál- um skipta um hvernig þú verð at- kvæði þínu í kosningunum í vor? ■ HVERSU MIKLU MÁLI MUNU TIL- LÖGUR STJÓRNMÁLAFLOKK- ANNA Í SKATTAMÁLUM SKIPTA UM HVERNIG ÞÚ VERÐ ATKVÆÐI ÞÍNU Í KOSNINGUNUM Í VOR? HETJUR AÐ STÖRFUM Almenningur í Hong Kong er farinn að líta á lækna og hjúkrunarfólk sem hetjur á borð við bandarísku björgunarmennina sem hættu lífi sínu í World Trade Center. Þó nokkur dæmi eru um að heibrigðisstarfsmenn hafi veikst af HABL og læknirinn sem uppgötvaði sjúkdóminn er þegar látinn. ANDRÉS SIGMUNDSSON Ánægður með nýja meirihlutann. VOGAR Á VATNSLEYSUSTRÖND Milli fjögur og fimm hundruð manns eru á atvinnuleysisskrá á Suðurnesjum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.