Fréttablaðið - 08.04.2003, Síða 12
12 8. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR
ÓSKASTUND
Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands,
blæs á kerti á köku sem bökuð var í tilefni
af 59 ára afmæli leiðtogans þann 7. apríl.
Schröder er staddur í Hannover, þar sem
nú fer fram stærsta iðnaðarsýning sem
haldin hefur verið í heiminum.
Ráðherra telur mikilvægt að tengja Seyðisfjörð Fjarðabyggð:
Ný jarðgöng á Austfjörðum
SAMGÖNGUR Iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra vill tengja Seyðisfjörð,
Mjóafjörð, Norðfjörð, Eskifjörð
og Reyðarfjörð með jarðgöngum.
Valgerður Sverrisdóttir sagði
þetta íbúaþingi Seyðisfjarðar á
laugardaginn.
„Þungamiðja atvinnuþróunar-
innar á næstu árum verður á
Reyðarfirði,“ sagði Valgerður.
„Það er mikilvægt að Seyðfirðing-
ar geti sótt vel launaða vinnu í ál-
verið ef þeir svo óska, en ekki er
síður mikilvægt að á Seyðisfirði
geti orðið til afleidd störf og af-
leiddur iðnaður sem þjóni álver-
inu, eða þjónusta sem nýtir sér
þau sóknarfæri sem ótvírætt
verða til í tengslum við uppbygg-
inguna.“
Á grundvelli þessa sagðist
Valgerður sjá fyrir sér að þegar
til lengri tíma væri litið myndu
jarðgöng tengja Seyðisfjörð,
Mjóafjörð, Norðfjörð, Eskifjörð
og Reyðarfjörð og gera þessi
byggðarlög að einu atvinnu-
svæði.
„Ég tel rétt að gerð verði
kostnaðaráætlun þar sem ekki
eingöngu verði dreginn fram
kostnaður við gerð þessara sam-
göngubóta heldur einnig að
ávinningur byggðarinnar hér og
íslensks samfélags í heild verði
metinn.“ ■
Skýrsla um framtíð samvinnuformsins:
Samvinnufélög á öld
samþjöppunar
FÉLÖG Samvinnuformið á brýnt er-
indi í breyttu efnahagsumhverfi á
Íslandi á 21. öldinni, samkvæmt
skýrslu dr. Ívars Jónssonar sem
tekin var saman fyrir Samband ís-
lenskra samvinnufélaga í tilefni af
aldarafmæli sambandsins. Í
skýrslunni, sem kynnt var á Bif-
röst um helgina, er greint frá stöðu
samvinnufélaga í Bandaríkjunum,
Bretlandi og Svíþjóð og reifuð
sóknarfæri samvinnuformsins á
Íslandi. Fram kemur að bændur í
Bandaríkjunum nota formið til að
styrkja stöðu sína gagnvart stór-
fyrirtækjum þar í landi, enda eru
smábændur lítils megnugir gagn-
vart þeim stórfyrirtækjum sem
kaupa afurðir þeirra. Þá segir í
skýrslu Ívars að vaxandi sam-
þjöppun auðs og valda einkafyrir-
tækja á Íslandi skapi andúð á fyr-
irtækjunum í fákeppnisstöðu.
Spurningin sé hvort almenningur
vilji „fákeppni fyrir fáa“ eða „fjár-
magn fyrir fjöldann“.
Helstu skilaboð skýrslunnar
eru að alþjóðavæðing þurfi ekki að
fela í sér að samvinnufélögin gangi
sér til þurrðar, og að sóknarfæri
samvinnuformsins á Íslandi liggi
víða, meðal annars í raforkufram-
leiðslu, smásölu og þjónustu á sviði
tómstunda. ■
Verðbólgan ekki
í tveggja stafa tölu
Aðalhagfræðingur Seðlabankans segist ekki hafa áhyggjur af því að verðbólgan fari
í tveggja stafa tölu vegna stóriðjuframkvæmda. Hann vill ekki tjá sig um boðaðar skattalækkanir
stjórnmálaflokkanna.
EFNAHAGSMÁL Aðalhagfræðingur
Seðlabankans hefur ekki miklar
áhyggjur af því að verðbólgan
fari í tveggja stafa tölu á þeim
þenslutímum sem fram undan eru
vegna virkjana- og
s t ó r i ð j u f r a m -
kvæmda.
„Ef ekki verður
gripið til neinna að-
h a l d s a ð g e r ð a
vegna stóriðju-
framkvæmda er að
vísu hugsanlegt að
verðbólga geti
nálgast tveggja stafa tölu,“ segir
Már Guðmundsson, aðalhagfræð-
ingur Seðlabankans. „En þetta er
auðvitað ekki raunhæft því við
munum auðvitað hækka vexti.“
Már segir að í skýrslu Efna-
hags- og framfarastofnunarinnar
(OECD) komi fram að meginþung-
inn af hagstjórnaraðgerðum
vegna stóriðjuframkvæmda muni
lenda á peningastjórninni en rík-
isfjármálin verði að styðja við
hana. Aðspurður segir Már að
samkvæmt síðustu úttekt Seðla-
bankans á stóriðjuframkvæmdum
gætu vextir farið yfir 10% ef ekki
kemur neinn stuðningur frá að-
gerðum í ríkisfjármálum eða
hærra gengi.
„Þegar búið er að taka fram-
kvæmdir vegna Norðuráls inn í
þetta er náttúrlega þörf á meiri
vaxtahækkun, en ég get ekki svar-
að því hversu mikilli. Það veltur á
því hvernig gengisþróunin verður
og hvað verður gert í ríkisfjár-
málunum.“
Már segist ekki vilja tjá sig
neitt um boðaðar skattalækkanir
stjórnmálaflokkanna.
„Það eina sem ég vil segja er að
svigrúm til slökunar í ríkisfjár-
málum er væntanlega að verða lít-
ið og hverfur þegar nær dregur
stóriðjuframkvæmum. OECD
kveður, ef eitthvað er, fastar að
orði. Þetta þýðir að ef skattalækk-
anir verða á allra næstu árum
verður að skera niður opinber út-
gjöld á móti eða hækka aðra
skatta. Það er því mikill misskiln-
ingur ef einhver heldur að OECD
telji óhætt að auka halla ríkissjóðs
á næstu misserum.“
trausti@frettabladid.is
VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR
„Það er mikilvægt að Seyðfirðingar geti
sótt vel launaða vinnu í álverið ef þeir svo
óska,“ sagði iðnaðar- og viðskiptaráðherra
á íbúaþingi Seyðisfjarðar.
MÁR GUÐMUNDSSON, AÐALHAGFRÆÐINGUR SEÐLABANKANS
Már segir að í skýrslu Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) komi fram að megin-
þunginn af hagstjórnaraðgerðum vegna stóriðjuframkvæmda muni lenda á peningastjórn-
inni en ríkisfjármálin verði að styðja við hana.
■
Ef skattalækk-
anir verða á
allra næstu
árum verður að
skera niður op-
inber útgjöld á
móti eða
hækka aðra
skatta.
BLÁSIÐ TIL SÓKNAR
Ari Teitsson, formaður Bændasamtaka Íslands, og Gísli Jónatansson, kaupfélagsstjóri
á Fáskrúðsfirði, hlýddu andaktugir á fyrirlestur um framtíð samvinnuformsins á Bifröst
á helginni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Stríðsglæpamenn:
Verða allir
handteknir
BELGRAD, AP Zoran Zivkovic, nýr
forsætisráðherra Serbíu, heitir því
að handtaka alla þá sem Stríðs-
glæpadómstóllinn í Haag grunar
um stríðsglæpi. Vesturveldin hafa
þrýst á Serba að handtaka Ratko
Mladic, foringja Bosníu-Serba í
borgarastríðinu sem geisaði í lýð-
veldum fyrrum Júgóslavíu. Hann er
talinn fela sig í Serbíu og njóta við
það aðstoðar hersins. Zivkovic ját-
aði að það kynni að vera rétt, hann
sagði stjórnvöld ætla sér að ná betri
tökum á hernum. ■
Dalai Lama:
Tíbet fái
heimastjórn
NÝJA-DELHÍ, AP „Við sækjumst ekki
eftir sjálfstæði. Við verðum að lifa
saman hlið við hlið, það er veruleik-
inn sem við stöndum frammi fyrir,“
sagði Dalai Lama, trúarlegur leið-
togi Tíbeta, þegar hann tilkynnti að
fulltrúi hans myndi fara til Peking
innan tveggja mánaða til viðræðna
við kínversk stjórnvöld. Hann sagði
Tíbeta myndu fara fram á heima-
stjórn innan Kínaveldis.
Bróðir Dalai Lama fundaði
með kínverskum embættismönn-
um á síðasta ári. Kína hernam Tí-
bet 1950, en Dalai Lama flýði
landið eftir misheppnaða upp-
reisn árið 1959. ■