Fréttablaðið - 08.04.2003, Side 18
■ ■ FUNDIR
16.30 Námstefna um karlaheilsu
verður haldin í Norræna húsinu. Ásgeir
Theodórs meltingarsérfræðingur, Gestur
Þorgeirsson hjartalæknir, Ingólfur Gísla-
son, félagsfræðingur Jafnréttisstofu, og
Óttar Guðmundsson geðlæknir flytja er-
indi. Allir karlar eru velkomnir meðan
húsrúm leyfir. Ókeypis aðgangur.
20.00 Íslensk-japanska félagið
stendur fyrir dagskrá undir yfirskriftinni
Heimur ungu kynslóðarinnar í Alþjóða-
húsinu, 1. hæð. Ragnar Þorvarðarson,
sem var skiptinemi í Japan, segir frá
dvöl sinni í máli og myndum. Sagt verð-
ur frá menningar- og menntasamskipt-
um Íslands og Japans. Loks verður fjall-
að um tónlist í Japan, hiphop og margt,
margt fleira.
■ ■ OPNUN
13.30 Ellefta sýningin í sýningar-
röðinni Fellingar verður opnuð í Þjóðar-
bókhlöðunni í dag. Guðrún Vera Hjart-
ardóttir sýnir ljósmyndaröð sem hún
kallar Tilraun. Á opnuninni verður Guð-
rún Vera með uppákomu.
■ ■ KVIKMYNDIR
20.00 Opið bíó 12 verður haldið í
húsakynnum MÍR við Vatnsstíg 10a. Bíó
Reykjavík hvetur alla kvikmyndagerðar-
menn að safnast saman og horfa á
stuttmyndir eftir sjálfan sig og aðra, svo
lengi sem stuttmyndin er undir 45 mín-
útum. Skapandi umræður fyrir og eftir
hverja mynd. Enginn aðgangseyrir.
19.30 Kvikmyndakúbburinn Cine
Club Hispano sýnir myndina Plata que-
mada, eða Brunnar brýr að baki, sem
gerð var á Kúbu árið 2000. Sýnt verður í
stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands.
■ ■ TÓNLIST
12.15 Fjórðu og síðustu tónleikarnir
í hádegistónleikaröð Íslensku óperunn-
ar á vormisseri bera yfirskriftina Anti-
pasti. Flytjendur eru þau Sesselja Krist-
jánsdóttir mezzósópran, Jóhann Frið-
geir Valdimarsson tenór og Clive Poll-
ard píanóleikari. Á efnisskránni eru ítöl-
sk ljóð og antikaríur.
18.00 Pönk gegn stríði er yfirskrift
tónleika, sem haldnir verða í Iðnó í
kvöld. Fram koma hljómsveirnar I
Adapt, Dys, Kimono, Vígspá, Innvortis,
Lunchbox, Hrafnaþing og Elín Helena.
19.30 Ég býð þér dús, mín elsku-
lega þjóð nefnist leik- og söngskemmt-
un byggð á ljóðlist Halldórs Laxness,
sem haldin verður í Bókasafni Kópavogs
í kvöld í tilefni af 50 ára afmæli safnsins.
Aðgangur er ókeypis.
20.00 Hin sívinsælu sönglög
Vestmannaeyingsins Oddgeirs Krist-
jánssonar verða flutt á tónleikum í
Salnum í Kópavogi. Hafsteinn Þór-
ólfsson söngvari, sem er barnabarn
Oddgeirs, sér um flutninginn ásamt
Aðalheiði Þorsteinsdóttur píanóleik-
ara og Matta Kallio harmonikuleik-
ara.
20.00 Elfa Rún Kristinsdóttir fiðlu-
leikari og Kristinn Örn Kristinsson pí-
anóleikari flytja á tónleikum í Salnum,
Kópavogi, verk eftir J. S. Bach, Eugéne
Ysaÿe, Olivier Messiaen, Johannes
Brahms og Camille Saint-Saëns. Að-
gangur ókeypis og allir velkomnir með-
an húsrúm leyfir.
■ ■ SÝNINGAR
Helgi Þorgils Friðjónsson er með
einkasýningu á Kjarvalsstöðum. Hann
sýnir þar eingöngu ný málverk.
Á Kjarvalsstöðum er Ilmur Stefáns-
dóttir með sýningu er hún nefnir
Mobiler. Þar sýnir hún umbreytt farar-
tæki, vídeómyndir og örsögur.
Í Hafnarhúsinu stendur yfir einka-
sýning Patrick Huse sem nefnist
Penetration. Sýningin er síðasti hluti
trílógíu sýninga listamannsins, sem fjalla
um samband manns og náttúru á norð-
urslóðum.
Í Listasafni Reykjavíkur, Hafnar-
húsinu, stendur yfir sýning á sovésk-
um veggspjöldum úr eigu safnsins,
sem hafa ekki komið áður fyrir al-
menningssjónir. Heilbrigði, ham-
ingja og friður er yfirskrift sýningar-
innar.
Í Hafnarborg, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar, stendur yfir sýn-
ing á áður ósýndum verkum listakon-
unnar Louisu Matthíasdóttur.
Í Hafnarborg, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar, sýna Hlíf Ás-
grímsdóttir og Ólöf Oddgeirsdóttir
verk sín.
Þorbjörg Þórðardóttir veflistakona
sýnir stór ofin verk í fordyri Hallgríms-
kirkju. Hún er einnig með innsetningu í
glugga Meistara Jakobs gallerís, Skóla-
vörðustíg 5.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hefur
valið verk eftir fjölmarga myndlistar-
menn á sýninguna Þetta vil ég sjá í
Gerðubergi.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
8. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
5 6 7 8 9 10 11
APRÍL
Þriðjudagur
Jú, ég er ábyggilega í yngrikantinum, að minnsta kosti
miðað við Ísland,“ segir Elfa
Rún Kristinsdóttir fiðluleik-
ari. Hún er að ljúka prófi í
fiðluleik frá Listaháskóla
Íslands aðeins 18 ára
gömul og stefnir á fram-
haldsnám erlendis strax í
haust.
Liður í prófinu eru opin-
berir tónleikar, sem verða í
Salnum í Kópavogi í kvöld.
Þetta er engan veginn í fyrsta
sinn sem hún flytur einleiks-
verk opinberlega á tónleikum,
þótt þetta sé reyndar í fyrsta
skipti sem hún heldur heila ein-
leikstónleika.
Foreldrar Elfu Rúnar eru báðir
hljóðfæraleikarar og tónlistar-
kennarar, Lilja Hjaltadóttir
fiðluleikari og Kristinn Örn
Kristinsson píanóleikari.
Elfa Rún þykir afburða-
nemandi, sumir segja ekki
síðri en Sigrún Eðvaldsdótt-
ir var á hennar aldri. Kenn-
ari hennar hefur verið Guð-
ný Guðmundsdóttir.
Píanóleikari með henni
á tónleikunum er faðir
hennar, sem verður að
teljast harla óvenjulegt.
„Hann hefur spilað með
mér annað slagið í gegn-
um allt námið. Við höfð-
um ákveðið þetta fyrir
löngu að okkur langaði að
hafa tónleikana saman.“
Elfa Rún byrjaði að læra
fjögurra ára á fiðluna og segir að
annað hafi eiginlega aldrei
komið til greina. „Það
var samt ekki fyrr
en frá fjórtán ára
aldri eða svo sem
ég fór að taka
þetta af alvöru.
Þá fór maður
að verða
samvisku-
samari.”
Stöku
sinnum
kom fyrir að hún harðneitaði að
fara í spilatíma. „En þá fór
mamma bara fyrir mig. Síðan
kom hún heim með fullt af
skemmtilegum hlutum, nýjum
hugmyndum og nýju efni. Þá sá ég
náttúrlega eftir öllu.“
Elfa Rún segist ekki taka neina
tónlistarstefnu fram yfir aðra.
„Það er gaman að spila allt. En
það fer eiginlega eftir því hvað
maður er að spila hverju sinni.
Þegar maður er að spila
barokktónlist, þá langar mann
ekki til að spila neitt annað. Síðan
spilar maður kannski bara nú-
tímatónlist og þá vill maður
ekki sjá barokktímann.“
gudsteinn@frettabladid.is
■ TÓNLEIKAR
HRAFN JÖKULSSON
Besta kaffið í bænum er á Vega-mótum, það er mjög einfalt.
Ég er orðinn háður capuccinoinu
þeirra og þar að auki er matseðill-
inn prýðilegur og starfsfólkið dá-
samlegt.
Besta kaffiðí bænum
ELFA RÚN
KRISTINSDÓTTIR
Fiðlutónleikar hennar í Saln-
um í kvöld eru hluti af loka-
prófi hennar frá Listahá-
skóla Íslands.
Gaman að spila allt
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT