Fréttablaðið - 08.04.2003, Síða 20
Sonur reggae-goðsins BobMarley hefur tekið að sér að
leika Rómeó í nýstárlegri kvik-
mynd eftir leikriti Shakespeares
sem gerist á Jamaíku. Útfærslan
er uppfærð til nútímans og kýs
Ky-Mani Marley að kalla hana
„One Love“ eftir einu lagi föður
síns. Myndinni verður leikstýrt af
Don Letts, sem þekktastur er fyr-
ir vinnu sína með bresku pönk-
sveitinni The Clash.
Ljósmyndir af Marilyn Monroesem aldrei hafa komið fyrir
sjónir almennings áður verða
sýndar á sýningu í London tileink-
aðri leikkonunni. Myndirnar eru
m.a. úr einkasafni fyrrum eigin-
manns hennar, Arthur Miller. Á
sýningunni verða einnig sýndir
skartgripir sem hún bar.
Söngvarinn Robbie Williams baðhina orðljótu Kelly Osbourne
um að opna alla tónleika
sína á væntanlegri
ferð hans um Evrópu.
Hann segist heillast
af því hvernig
stúlkunni virðist
sama um allan
mótbyr. Á tón-
leikaferðinni
leikur Williams
m.a. fyrir fleiri
áhorfendur en
hann hefur
nokkru sinni
gert áður. Það
gerist á tón-
leikaþrennu í
ágúst á hinum
fræga tónleikastað Knebworth.
Nýjasta breiðskífa The WhiteStripes fór rakleiðis í fyrsta
sæti breska sölulistans með nýj-
ustu plötu sína „Elephant“. Bretar
hafa ekki sparað lofsyrðin í garð
rokkdúettsins og setningar eins og
„bjargvættir rokksins“ hafa
heyrst. Nýja platan er öll unnin á
gamla mátann, tók 10 daga í upp-
tökum og kostaði innan við 628
þúsund krónur í framleiðslu.
Sveitin tók toppsætið af banda-
rísku þungarokksveitinni Linkin
Park.
Kvikmyndin „Phone Booth“, semfjallar um umsátur leyniskyttu
í New York, fór
beina leið á topp-
inn í Bandaríkj-
unum. Upphaf-
lega átti að frum-
sýna myndina,
sem skartar
Colin
Farrell í
aðalhlut-
verki, í
fyrra
en hætt
var við
það
eftir að leyniskytta í nágrenni
Washington drap 13 manns á göt-
um úti.
8. apríl 2003 ÞRIÐJUDAGUR20
DAREDEVIL b.i. 16 kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.20 SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 4
TWO WEEKS NOTICE kl. 6
THE HUNTED b.i. 16 kl. 5.50, 8, 10.10
THE RING b.i. 16 kl. 10.10
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20
Sýnd í lúxus kl. 8
Sýnd kl. 6 og 9 b.i. 14 ára
kl. 6, 8 og 10NÓI ALBINÓI
kl. 88 FEMMES
kl. 6 og 8CRUSH
kl. 10ADAPTATION
kl. 5.30 og 10.05NOWHERE IN AFRICA
Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 12 ára
Sýnd í lúxus kl. 6 og 10
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i. 16 ára
THUNDERPANTS kl. 4
25th HOUR kl. 10
4 og 6DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINN
Sýnd kl. 6 og 9
CHICAGO Sýnd í lúxus kl. 5.30 og 10.30
NATIONAL SECURITY bi 12 4, 6, 8, 10
Það er árið 1881 og í Súdan erkominn fram herskár spá-
maður, Al-Madhi, sem ógnar
breska heimsveldinu. Eina ráðið er
því að senda unga og hrausta her-
menn til að ganga milli bols og höf-
uðs á þessum villimanni. Þetta
hljómar nokkuð kunnuglega nú
þegar ungir og hraustir Bretar
hætta lífi sínu í Írak. Sá vondi
skálkur Saddam stenst að vísu
engan samanburð við Al-Mahdi, en
grundvallarþemað er þó svipað:
kristnir menn fara í stríð sem þeir
telja Guði þóknanlegt.
„Fjórar fjaðrir“ er í senn ástar-
saga, vináttusaga og hasarmynd
með góðum leikurum, vel og vand-
lega tekin. Og ekki vantar leik-
stjórann metnaðinn, en frumraun
hans var hin velheppnaða períódu-
mynd „Elísabet“ um meydrottn-
inguna frægu. Að þessu sinni tekst
honum þó ekki alveg jafn vel upp.
„Fjórar fjaðrir“ hefur marga kosti
og er á köflum mikilfengleg, en
sagan sjálf er tætingsleg og
áherslur óljósar. Og niðurstaðan er
varla samboðin öllu því sem á und-
an er gengið enda stendur ennþá
yfir blóðugt stríð í Súdan, stríð
sem hefur staðið í áratugi og eng-
inn á Vesturlöndum séð ástæðu til
að skakka þann ljóta leik. Enda er
lítið um olíu í Súdan.
Þráinn Bertelsson
THE FOUR FEATHERS
Aðalhlutverk: Heath Ledger, Kate Hudson,
Wes Bentley, Micael Sheen
Handrit: Michael Schiffer
Leikstjórn: Shekhar Kapur
Umfjöllunkvikmynd
Huglausa hetjan
Hljómsveitin Fritz varð til uppúr leifum rokksveitarinnar
Port, sem átti stutta lífdaga í lok
síðustu aldar. Sú sveit var í náðinni
hjá Skífunni um tíma og gaf meðal
annars út þrjú lög á safnplötunum
Spírur og kvistir. Af einhverjum
ástæðum liðaðist sveitin í sundur
þegar aðrir hlutir toguðu fastar en
tónlistin. Gítarleikarinn Magnús
Þór Magnússon hélt áfram að
semja tónlist og ákvað að senda inn
tvö lög í hljómsveitakeppni tónlist-
artímaritsins Sánd, sem haldin var
fyrir áramót, og vann. Við það
bretti Magnús upp ermarnar, kall-
aði til fyrrum trommara Port og
tvo aðra vini sína og stofnaði Fritz.
Hljómsveitin leikur rokktónlist og
neitar að skilgreina tóna sína frek-
ar.
„Við erum að klára að hljóð-
blanda þessi tvö lög sem ég sendi
inn á sínum tíma,“ segir Magnús
Þór Magnússon gítarleikari.
„Sveitin var bara stofnuð í kring-
um þessa keppni. Við vorum búnir
að tala lengi saman um að hittast
og djamma en aldrei komið því í
framkvæmd. Þegar ég svo vann
þessa „hljómsveitakeppni“ var
ekki til nein hljómsveit. Ég hringdi
þá bara í þessa stráka og þrýsti á
þá. Við ákváðum að stofna hljóm-
sveit. Núna hlökkum við til þess að
fara að semja lög saman.“
Þannig má segja að Fritz hafi
byrjað feril sinn á öfugum enda.
Vaninn er sá að sveitir æfi sig sam-
an og fari svo í hljóðver en þessi
sveit var sérstaklega sett saman til
þess að vinna sigurlögin í Hljóð-
rita. Fritz hefur því ekki enn kom-
ið fram á sínum fyrstu tónleikum.
Magnús segist hafa langað að
fara með lög sín í hljóðver lengi en
það sé afar dýrt. Það hafi því verið
gott framtak hjá Sánd að bjóða
ókeypis hljóðverstíma sem verð-
laun í keppninni.
„Þetta kemur mjög vel út. Lögin
hljóma samt ekki eins og þegar ég
sendi þau inn á sínum tíma en það
er eitthvað nýtt og skemmtilegt að
fæðast. Eftir þetta ætlum við að
byrja að æfa á fullu.“
Lögin tvö sem Fritz er að vinna
verða að öllum líkindum gefin út á
væntanlegri safnplötu IMP.
Nýjasta tölublað Sánd er komið
út og prýðir rokksveitin loðna
Brain Police kápu þess.
biggi@frettabladid.is
■ TÓNLISTFréttiraf fólki
FRITZ
„Það var hringt í mig á
fimmtudegi og mér til-
kynnt að við hefðum
unnið keppnina, nafnið
á sveitinni kom á föstu-
degi,“ útskýrir Magnús.
„Þetta er allt búið að
vera mjög undarlegt.“
Byrjað á öfugum enda
Í janúar voru tilkynnt úrslit í hljómsveitakeppni tónlistarblaðsins Sánd.
Sigurvegari var hljómsveitin Fritz, sem var ekki til fyrr en hún sigraði.
Fyrir sigurlaunin hljóðritaði sveitin tvö lög.
NÝTT AFL
Heimasíða: www.nu.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T