Fréttablaðið - 08.04.2003, Side 21
ÞRIÐJUDAGUR 8. apríl 2003
Fréttiraf fólki
21
SÍMI 553 2075
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15
Sýnd kl. 6, 8 og 10THE HUNTED kl. 10.10
THUNDERPANTS kl. 4 SKÓGARLÍF 2 m/ísl. tali kl. 4
CRUSH kl. 3.45, 5.50 og 8
ABOUT SCHMIDT kl. 5.30
FINAL DESTINATION kl. 8 og 10
Sýnd kl. 5.45, 8.30 og 10.10 b.i. 12 ára Sýnd kl. 5.50, 8, 10.10 og 12.10
FRIDA b.i. 12 kl. 5.30
THE HOURS b.i. 12 5.40, 8 og 10.20 HREIN OG BEIN kl. 8
GANGS OF NEW YORK b.i. 16 kl. 10.20
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40 b.i. 14 ára Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 b.i. 12 ára
Fatahönnuðurinn Calvin Klein erfarinn í meðferð vegna eitur-
lyfjafíknar. Hann komst í slúður-
fréttirnar vestanhafs eftir að hafa
fengið kast á körfuboltaleik. Ekki
er vitað hvaða lyfi hann berst
gegn í þetta skiptið. Hann hefur
áður farið í meðferð, það var árið
1988 þegar hann barðist við
áfengisdrykkju og verkjalyf.
Leikkonan og fyrirsætan Reb-ecca Romjin-Stamos þurfti aft-
ur að þola 5 klukkustunda bið í
förðunarstólnum fyrir tökur
framhaldsmyndarinnar um „X-
mennina“. Hún leikur aftur hina
bláu Mystique og þurfti að mála
nakinn líkama hennar frá toppi til
táar fyrir hverja einustu töku. Út-
lit persónu hennar er örlítið
breytt frá síðustu mynd, en það
þýddi að meira sést af holdi henn-
ar en áður.
Heitt, heitara,
heitast!
Ég get ekki annað en velt því fyr-ir mér hvort liðsmenn
kanadísku sveitarinnar Hot Hot
Heat séu einlægir aðdáendur The
Cure. Vísbendingarnar eru tvær. 1:
Hljómsveitarnafnið er hægt að
rekja til hinnar stórgóðu skífu „Hot
Hot Hot“. 2: Síðasta lag plötunnar
heitir „In Cairo“ sem gæti verið til-
vísun í lagið „Fire in Cairo“ af
fyrstu plötu The Cure.
Tónlistin er þó ólík þeirri sem
The Cure er þekkt fyrir en svipar
þó til þeirra tóna fyrstu plötunnar í
lok áttunda áratugarins þegar
sveitin var hluti af sömu bylgju og
The Clash. Samlíking við þá merku
sveit er líka óumflýjanleg í tilfelli
Hot Hot Heat.
Sem sagt, Hot Hot Heat er rokk-
sveit af gamla nýbylgjuskólanum.
Afturhvarf til þeirra tíma þegar
„út á kant“ sveitir skömmuðust sín
ekkert fyrir að semja grípandi lag-
línur. Lífsneistinn og spilagleðin
eru í hámarki, og áhersla lögð á
melódíuna en ekki pungsveittan
kraftinn. Það er samt örugglega al-
gjör upplifun að sjá þessa sveit á
tónleikum.
Í stuttu máli, hér eru 10 lög og
hvert öðru betra. Ég verð raulandi
þessi lög langt fram á sumar. Svo
klárast platan alltaf áður en maður
er tilbúinn að skilja við sveitina og
maður neyðist til þess að setja aft-
ur á byrjun. Maður finnur ekki
svona plötur oft á ári.
Birgir Örn Steinarsson
HOT HOT HEAT:
Make Up the Breakdown
Umfjölluntónlist